Bæjarráð - 2565. fundur
í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi
Mætt til fundar
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
327. fundur
Liður 3 í fundargerð atvinnu- og upplýsinganefndar 6/10: Fyrir liggur skýrsla um störf atvinnufulltrúa, sem ráðnir voru til Kópavogsbæjar í samstarfi við Vinnumálastofnun. Ráðningartími þeirra rennur út 1. nóvember nk.$line$Nefndin leggur til við bæjarráð að samstarfi Kópavogsbæjar og Vinnumálastofnunar verði haldið áfram.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
2. fundur
Kl. 8.10 mætti Ármann Kr. Ólafsson til fundar.
354. fundur
Kl. 8.12 mætti Rannveig Ásgeirsdóttir til fundar. Kl. 8.14 mætti Ómar Stefánsson til fundar.
308. fundur
Frá bæjarstjóra, lagðar fram reglur um kattahald í Kópavogi, sem vísað var til bæjarráðs í bæjarstjórn 28/9, til frágangs reglnanna og að þær verði auglýstar með réttum hætti.
Hlé var gert á fundi kl. 8.30. Fundi var fram haldið kl. 8.32.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
Frá bæjarstjóra, drög að bréfi um mál, sem bæjarstjórn leggur áherslu á við fjárlaganefnd Alþingis, ásamt verkefnum sem eiga að vera inni á fjárlögum.
Fyrir fjárlagaárið 2011 leggur bæjarráð höfuðáherslu á frekari uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Boðaþingi, vegaframkvæmdir við Arnarnesveg og að skuld Vegagerðarinnar við Kópavogsbæ verði greidd.
Frá bæjarritara, umsögn dags. 12/10, sem óskað var eftir í bæjarráði 9/9 sl., varðandi kostnaðarmat vegna varðveislu og afhendingu rafrænna skjalasafna.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarritara um skipan vinnuhóps.
Frá bæjarritara, drög að erindisbréfi umferðarnefndar, sem lögð voru fyrir umferðarnefnd 26/8 sl., sbr. lið 4 í fundargerð.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarritara og felur honum að vinna drög að erindisbréfum nefnda bæjarins með hliðsjón af endurskoðun á nefndakerfi bæjarins.
Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 30/9, umsögn varðandi afhendingu gagna vegna útboða.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra menningarmála, dags. 12/10, tillaga að svari við fyrirspurn um kostnað við Hamraborgarhátíðina 2010.
Bæjarráð samþykkir tillögu að svari.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá og lögðu fram eftirfarandi bókun:
""Undirritaðir sitja hjá þar sem að verkefnið var ekki á fjárhagsáætlun bæjarins.
Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Ingi Birgisson""
Frá deildarstjóra menningarmála, dags. 12/10, svar við fyrirspurn vegna 7. liðar í fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafns, 66. fundar, sem haldinn var 27/9 sl.$line$
Lagt fram.
Frá deildarstjóra menningarmála, dags. 12/10, upplýsingar vegna fyrirspurnar um kostnað við Hamraborgarhátíð.
Lagt fram.
Frá félagsmálastjóra, umsögn um greiðslur ríkisins vegna sérstakra húsaleigubóta sbr. bæjarráð 7/10 2010.
Lagt fram
Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dags. 6/10, áætlun um heildargreiðslu sveitarfélaga á almennum húsaleigubótum fjárhagsárið 2011, miðað við grunnfjárhæðir bóta.
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálastjóra og fjármála- og hagsýslustjóra til afgreiðslu.
Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 6/10, áætlun um heildargreiðslu sveitarfélaga á sérstökum húsaleigubótum fjárhagsárið 2011.
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálastjóra og fjármála- og hagsýslustjóra til afgreiðslu.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 8/10, varðandi námskeið, sem haldið verður 1. og 2. nóvember nk. um aðgerðaráætlanir í jafnréttismálum.
Bæjarráð vísar erindinu til jafnréttisfulltrúa til afgreiðslu.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 8/10, varðandi ráðstefnu um almannavarnir í sveitarfélögum 21/10 nk.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.
Frá SSH, dags. 11/10, drög að samningi um ""Samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna þjónustu við fatlaða"". Óskað er eftir að samningurinn fái umfjöllun og afgreiðslu sem fyrst.
Bæjarráð frestar afgreiðslu samningsins til næsta fundar og óskar eftir að félagsmálastjóri mæti á þann fund vegna málsins.
Frá Steypustöðinni Borg, dags. 12/10, óskað eftir fresti varðandi flutning stöðvarinnar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.
Bæjarráð ítrekar að málið er litið alvarlegum augum af hálfu Kópavogsbæjar.
Frá Samtökum iðnaðarins, dags. 5/10, varðandi útboðsmál í tengslum við mötuneyti í grunnskólum Kópavogs.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
22
Málþing um kirkjuna og borgarsamfélagið í tilefni af 70 ára afmæli Reykjavíkurprófastsdæmis
Frá Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og vestra, dags. 8/10, varðandi málþing sem haldið verður laugardaginn 16/10 nk., um kirkjuna og borgarsamfélagið.
Lagt fram.
Frá Þroskaþjálfafélagi Íslands, dags. 7/10, óskað eftir upplýsingum varðandi störf þroskaþjálfa vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.
Frá stjórn Reykjanesfólkvangs, dags. 11/10, varðandi skiptingu framlaga til fólkvangsins.
Bæjarráð vísar erindinu til fjármála- og hagsýslustjóra til afgreiðslu.
Frá íbúum í bænum, dags. 10/10, óskað eftir að bæjaryfirvöld stöðvi sumarbústaðaframleiðslu, sem fram fer á Hlíðarvegi 29 og sjái til að byggingariðnaður verði ekki stundaður þar í framtíðinni.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs til umsagnar.
Frá foreldrafélagi Kársnesskóla, dags. 7/10, mótmæli ásamt undirskriftalistum vegna áforma um að leggja niður skólaakstur í Kársnesskóla fyrir börn í Sæbólshverfi.
Bæjarráð þakkar ábendingu foreldrafélagsins.
Frá Neytendasamtökunum, dags. 11/10, beiðni um styrkveitingu vegna ársins 2011.
Bæjarráð getur því miður ekki orðið við erindinu.
Frá Lyfjastofnun, dags. 7/10, óskað eftir umsögn um umsókn um lyfsöluleyfi fyrir nýja lyfjabúð að Ögurhvarfi 3.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
Frá FÍSOS, Félagi íslenskra safna og safnmanna, dags. 20/9, kynning á íslensku safnastarfi og hvernig það snýr að sveitarstjórnarstiginu.
Bæjarráð vísar erindinu til lista- og menningarráðs til úrvinnslu.
Guðný Dóra Gestsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Frá Felix Arnkeli Guðmundssyni, nemanda í 9. bekk Salaskóla, ódags., óskað eftir að fá rampa á skólalóðina fyrir hjólabrettaiðkun.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs.
Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs,. dags. 11/10, umsögn um erindi Grétars Þórs Bergssonar, sem óskar eftir að skipta á lóðinni Hlíðarenda 14 í Hlíðarenda 16.$line$Mælt er með að bæjarráð heimili þessi skipti og úthluti Grétari Þór Bergssyni lóð nr. 16 við Hlíðarenda.
Bæjarráð samþykkir að úthluta Grétari Þór Bergssyni lóðina að Hlíðarenda 16.
Frá Liselotta E. Pétursdóttur og Einari Kristjáni Jónssyni, dags. 6/10, sem óska eftir að skila inn lóðinni að Álmakór 23.
Lagt fram.
Gunnar Ingi Birgisson leggur fram eftirfarandi bókun:
""Að gefnu tilefni leggur undirritaður áherslu á að erindi sem send eru bæjarráði séu lögð fram í ráðinu.
Gunnar Ingi Birgisson""
Gunnar Ingi Birgisson spurðist fyrir um lögfræðiálit, sem óskað var eftir vegna málsins
Formaður bæjarráðs upplýsti að lögfræðiálit lægi fyrir og að málið sé til frekari skoðunar m.a. hjá byggingarfulltrúa.
Gunnar Ingi Birgisson óskar eftir því að álitið verði lagt fram á næsta fundi.
Formaður tilkynnti að álitið verði lagt fyrir þegar málið verður tilbúið til afgreiðslu.
Gunnar Ingi Birgisson lagði fram eftirfarandi bókun:
""Samkvæmt upplýsingum formanns liggur það ljóst fyrir, að lögfræðiálitið er fyrir hendi og ítreka ég ósk mína um að það verði lagt fyrir á næsta fundi.
Gunnar Ingi Birgisson""
Ómar Stefánsson ítrekaði að tillaga hans um skipan áheyrnarfulltrúa komi til afgreiðslu bæjarráðs.
Formaður tilkynnti að tillagan verði á dagskrá næsta fundar.