Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2895. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

01

Bakkabraut 9. Óskað eftir leiðréttingu á lóðarmörkum

Frá Nes Þróunarfélagi slhf., dags. 8. desember, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir leiðréttingu á lóðarmörkum.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Nes Þróunarfélag slhf. um stækkun á lóðamörkum í samræmi við gildandi deiluskipulag. Takist samkomulag verði það lagt fyrir bæjarráð til samþykktar.

02

Smiðjuvegur 44, 46, landspilda austan lóðanna.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 6. desember, lagt fram erindi er varðar samning um afnotarétt af landspildu austan lóðanna Smiðjuveg 44 og 46.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.

03

Tónahvarf 6. Leyfi til veðsetningar

Frá lögfræðideild, dags. 8. desember, lagt fram erindi f.h. lóðarhafa Tónahvarfs 6, Leigugarða ehf., um heimild til veðsetja lóðina.

Jafnframt lögð fram umsögn lögfræðideildar um erindið, dags. 8. desember.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veitt verði umbeðið veðleyfi.

04

Gulaþing. Umsagnarbeiðni vegna áramótabrennu

Frá lögfræðideild, dags. 11. desember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 11. desember, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Árna Þórs Árnasonar, kt. 240366-5179, um leyfi fyrir áramótabrennu ofan við Gulaþing í Kópavogi á gamlárskvöld 31. desember 2017 kl. 20:30. Lagt er til að veitt verði jákvæð umsögn.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

05

Boccialið Gjábakka. Beiðni um styrk til keppnisferða í Boccia

Frá Boccia-liði Gjábakka, dags. 22. nóvember, lögð fram beiðni um styrk til keppnisferða í Boccia.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til afgreiðslu.

06

Umsókn um leyfi fyrir áramótabrennu í Smárahvammi

Frá Breiðablik, dags. 8. desember, lagt fram erindi þar sem sótt er um leyfi fyrir áramótabrennu í Smárahvammi á gamlárskvöld þann 31. desember 2017 kl. 20:30.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.

07

Sótt um leyfi til að halda flugeldasýningu í Kópavogsdal að kvöldi 31.12.2017

Frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi, dags. 5. desember, lagt fram erindi þar sem annars vegar er óskað eftir umsögn bæjaryfirvalda vegna flugeldasýningar í Kópavogsdal á svæði fótboltavallar Breiðabliks þann 31. desember 2017 milli kl. 21-21:30 og hins vegar leyfi til að halda flugeldasýninguna á fyrrgreindum stað.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.

08

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 231. fundur frá 24.11.2017

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

09

Barnaverndarnefnd - 74. fundur frá 08.12.2017

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

10

Hafnarstjórn - 107. fundur frá 11.12.2017

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

11

Íþróttaráð - 77. fundur frá 07.12.2017

Fundargerð í 71 lið.

Lagt fram.


11.71 - 1711636 - Ósk um viðbótarúthlutun í Fífunni vorið 2018

Lagt fram erindi frá framkvæmdastjóra Breiðabliks, dags. 23.11 sl., þar óskað er eftir æfingatímum í Fífunni á þriðju- og fimmtudögum frá kl. 21:00-22:00 út vorönn 2018, til viðbótar þeim æfingatímum sem úthlutað var til félagsins sept. sl. Breiðablik mun leita leiða til að byrja fyrr á daginn (kl. 14:00) með æfingar yngri flokka til að auka nýtinguna í Fífunni eins og kostur er.

Íþróttaráð tekur vel í beiðni félagsins fyrir sitt leiti og vísar erindinu til bæjarráðs til endalegar afgreiðslu.
Íþróttaráð óskar eftir því að íþróttadeild taki saman yfirlit yfir breytingar á fjölda æfingartíma sem úthlutað hefur verið til knattspyrnudeildar Breiðabliks frá úthlutun haustið 2014 til dagsins í dag.

Bæjarráð samþykkir erindi Breiðabliks með fimm atkvæðum.

12

Lista- og menningarráð - 81. fundur frá 07.12.2017

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

13

Menntaráð - 19. fundur frá 05.12.2017

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.

14

Fundargerð 41. aðalfundar SSH 2017 frá 03.11.2017

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

15

Fundargerð 79. fundar svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 24.11.2017

Fundargerð í 13 liðum.

Lagt fram.