Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2891. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Ólafur Þór Gunnarsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Kópavogsbærinn, Hressingarhælið, Hringshús, ákvörðun um friðun.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 13. nóvember, lögð fram umsögn varðandi útfærslu flóttaleiðar af efri hæðum Hressingarhælisins.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu sviðsstjóra umhverfissviðs um útfærslu flóttaleiðar.

02

Tillaga um styrkumsókn á sviði velferðarþjónustu

Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 14. nóvember, lögð fram umsögn varðandi auglýsingu Velferðarráðuneytisins eftir styrkumsókn til nýsköpunarverkefnis á sviði velferðarþjónustu sveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum erindi bréfritara.

03

Vallakór 14, Kórinn gervigras, útboð.

Frá deildarstjóra framkvæmdardeildar, dags. 14. nóvember, lagt fram erindi er varðar niðurstöðu útboðs vegna Vallarkórsins.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að ganga til samninga við Metatron í samræmi við niðurstöðu útboðs.

04

Hlíðarsmári 5-7. Tribe Iceland ehf. Umsagnarbeiðni vegna nýs rekstrarleyfis f. gististað í flokki IV

Frá lögfræðideild, dags. 10. nóvember, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 12. september, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Tribe Iceland ehf., kt. 670616-0610, um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki IV, að Hlíðarsmára 5-7, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt c-lið 1.tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitastjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum og staðfestir að umfang rekstrarleyfisins samrýmist stefnu skipulags.

05

Beiðni um styrk fyrir jólin

Frá Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, lögð fram beiðni þar sem óskað er eftir stuðningi við starfsemina vegna úthlutunar um jólin.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarritara til afgreiðslu.

06

Upplýsingagjöf sveitarstjórna við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs

Frá Umhverfisstofnun, dags. 6. nóvember, lagt fram bréf er varðar upplýsingagjöf sveitarstjórna við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs.

Lagt fram.

07

Tilkynning um fasteignamat 2018

Frá Þjóðskrá Íslands, dags. 1. nóvember, lagt fram bréf varðandi leiðrétt fasteignamat 2018.

Lagt fram.

08

Menntaráð - 17. fundur frá 07.11.2017

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

09

Lista- og menningarráð - 79. fundur frá 09.11.2017

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

10

Fundargerð 275. fundar stjórnar Strætó bs. frá 27.10.2017

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

11

Auðbrekkusvæðið - staða mála. Fyrirspurn frá Pétri Hrafni Sigurðssyni

Frá Pétri Hrafn, bæjarfulltrúa, óskað eftir því að bæjarstjóri upplýsi bæjarráð um stöðu mála varðandi Auðbrekkusvæðið. Óskar eftir upplýsingum um hvort að verkefnið sé á áætlun og hvort einhverjar fyrirhugaðar breytingar séu framundan.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.