Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2835. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hreiðar Oddsson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Margrét Friðriksdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Kristinn Dagur Gissurarson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Karen Halldórsdóttir stýrði fundi.

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Auðnukór 8, umsókn um lóð.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29. ágúst, lögð fram umsókn um lóðina Auðnukór 8 frá Ólafi Baldurssyni, kt. 100469-5029 og Heiðu Ragnarsdóttur, kt. 040272-3219. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Ólafi Baldurssyni og Heiðu Ragnarsdóttur kost á byggingarrétti á lóðinni Auðnukór 8 og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Fróðaþing 7, umsókn um lóð.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29. ágúst, lögð fram umsókn um lóðina Fróðaþing 7 frá Aflmóti ehf., kt. 460794-2349. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Aflmóti ehf. kost á byggingarrétti á lóðinni Fróðaþingi 7 og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Hlíðarendi 13. Umsókn um lóð undir hesthús.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 29. ágúst, lögð fram umsókn um lóðina Hlíðarenda 13 frá Jóhannesi Árnasyni, kt. 121266-3939. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Jóhannesi Árnasyni kost á byggingarrétti á lóðinni Hlíðarenda 13 og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Þverbrekka 4, Rut Jónsdóttir. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi f.gististað.

Frá lögfræðideild, dags. 30. ágúst, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 15. ágúst, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Rutar Jónsdóttur, kt. 181272-3849, um nýtt rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II, að Þverbrekku 4, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 23. gr. rgl. nr. 585/2007. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé utan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð leggst gegn veitingu umbeðins leyfis með vísan til framlagðrar umsagnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Laufbrekka 6. Umsagnarbeiðni um staðsetningu ökutækjaleigu.

Frá lögfræðideild, dags. 18. júlí, lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 8. júlí, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Ágústs Sigurðssonar, kt. 080854-3239 f.h. Aukabónusar ehf., kt. 471085-0579 um rekstrarleyfi fyrir ökutækjaleigu með átta bifreiðar að Laufbrekku 6, 200 Kópavogi. Sveitarstjórn staðfestir sem umsagnaraðili að aðkoma henti fyrir fyrirhugaða starfsemi, rekstrarleyfið er í samræmi við skipulag á umsóttu svæði og fjöldi bílastæða nægir fyrir umsóttum fjölda ökutækja.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

06

Smiðjuvegur 56. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstur ökutækjaleigu.

Frá lögfræðideild, dags. 29. ágúst, lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 14. júní, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn Egils Hjartarsonar, kt. 281081-5359 f.h. Réttingarverkstæðis Hjartar (Hjörtur Bragason ehf.), kt. 540900-2640 um rekstrarleyfi fyrir ökutækjaleigu með sex bifreiðar að Smiðjuvegi 56, 200 Kópavogi. Sveitarstjórn staðfestir sem umsagnaraðili að aðkoma henti fyrir fyrirhugaða starfsemi, rekstrarleyfið er í samræmi við skipulag á umsóttu svæði og fjöldi bílastæða virðist nægja fyrir umsóttum fjölda ökutækja þar sem um endurnýjun á rekstrarleyfi er að ræða.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fimm atkvæðum.

Ýmis erindi

07

Árshlutareikningur Sorpu bs., janúar-júní 2016.

Frá Sorpu, dags. 22. ágúst, lagt fram sex mánaðar árshlutauppgjör fyrir Sorpu.

Lagt fram.

Ýmis erindi

08

Frumvarp til laga um Umhverfisstofnun, 674. mál. Beiðni um umsögn.

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 24. ágúst, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög), 674. mál (stjórnarfrumvarp).

Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.

Fundargerðir nefnda

09

Félagsmálaráð, dags. 22. ágúst 2016.

1415. fundur félagsmálaráðs í 10. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10

Forvarna- og frístundanefnd, dags. 25. ágúst 2016.

40. fundur forvarna- og frístundanefndar í 1. lið.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, dags. 29. ágúst 2016.

215. fundur heilbrigðisnefndar í 80. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Leikskólanefnd, dags. 25. ágúst 2016.

72. fundur leikskólanefndar í 12. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13

Lista- og menningarráð, dags. 18. ágúst 2016.

62. fundur lista- og menningarráðs í 8. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14

Fundargerðir stjórnar SSH, dags. 16. ágúst 2016.

432. fundur stjórnar SSH í 4. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15

Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins, dags. 18. ágúst 2016.

68. fundur svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins í 5. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16

Umhverfis- og samgöngunefnd, dags. 25. ágúst 2016.

77. fundur umhverfis- og samgöngunefndar í 1. lið.

Lagt fram.

Önnur mál

17

Sala korta í líkamsrækt. Fyrirspurn frá Ólafi Þór Gunnarssyni.

Frá bæjarlögmanni og deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 30. ágúst, lagt fram svar við fyrirspurn af fundi bæjarráðs 16.06.2016 varðandi hver beri ábyrgð á sölu árskorta Gym-heilsu í Sundlaugar Kópavogs.

Lagt fram.