Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3137. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sigvaldi Egill Lárusson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Indriði Ingi Stefánsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Samkvæmt 35. gr. laga nr. 138/2011 og 32. gr. samþykktar Kópavogsbæjar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella í sumarleyfi hennar.

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Umsókn um leyfi til að halda rallýaksturskeppni

Frá lögfræðideild, dags. 1. ágúst, lögð fram umsögn um beiðni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur til að halda rallýaksturskeppni við Sörlaholt 18. ágúst frá kl. 19.00 -21.00.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur að veita samþykki fyrir sitt leyti og vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra umhverfissviðs til útgáfu leyfis í samræmi við umbeðin tímamörk í umsókn.

Ýmis erindi

02

Ósk um samstarf eða styrk til að aukna fræðslu og þjónustu í sveitarfélaginu um ADHD

Frá ADHD samtökunum, dags. 26.07.2023, lögð fram styrkbeiðni að upphæð kr. 500.000,-.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.

Fundargerðir nefnda

03

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 372. fundur frá 21.07.2023

Fundargerð í 15 liðum.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með fimm atkvæðum.

Helga Jónsdóttir kom til fundarins kl. 8:25

Fundargerðir nefnda

04

Fundargerð 561. fundar stjórnar SSH frá 19.07.2023

Fundargerð 561. fundar stjórnar SSH frá 19.07.2023.

Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

05

Rafhjólaleigur - mál frá varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni

Frá varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, dags. 1. ágúst, lagt fram mál varðandi rafhjólaleigur.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra sem mun taka málið upp á vettvangi SSH.

Erindi frá bæjarfulltrúum

06

Umgengni við grenndargerði - mál frá varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni

Frá varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, dags. 1. ágúst, lagt fram mál varðandi umgengni við grenndargerði.

Umræður.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

Erindi frá bæjarfulltrúum

07

Ónæði vegna þyrluflugs í Kópavogi

Frá varabæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, dags. 1. ágúst, lagt fram mál varðandi þyrluflug.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs til að framkvæma hávaðamælingu.