Bæjarráð - 3047. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 25.05.2021, lögð fram uppfærð tillaga varðandi kaup á starfssemi leikskólans Undralands. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 20.05.2021.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um kaup á starfsemi leikskólans Undralands og felur sviðsstjóra fjármálasviðs að leggja viðauka við fjárhagsáætlun fyrir næsta fund bæjarstjórnar.
02
Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að bæta við vaxtarsvæði túlípana í bæjarlandi og auki við gróðursetningu sumarblóma og blómstrandi runna
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 25.05.2021, lögð fram umsögn ásamt greinargerð garðyrkjustjóra vegna tillögu bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að Kópavogsbær bæti við vaxtarsvæði túlípana í bæjarlandinu.
Lagt fram.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 21.05.2021, lögð fram umsögn um tillögu um trjáræktarsvæði fyrir almenning. Umsögninni fylgir minnisblað garðyrkjustjóra.
Lagt fram.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 25.05.2021, lagt fram erindi þar sem óskað eftir heimild bæjarráðs til að bjóða út eftirlit með byggingu Kársnesskóla.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild til að bjóða út eftirlit með byggingu Kársnesskóla.
Frá lögfræðideild, dags. 14.05.2021, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Turnarhvarfs 2, Eignarhaldsfélagsins Ögur ehf., um heimild til að veðsetja lóðina.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna veðsetningu.
06
Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 640. mál
Frá atvinnuveganefnd Alþingis lögð fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um endurskoðun á laga- og reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, 640. mál
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
Frá velferðarnefnd Alþingis lögð fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um nýja velferðarstefnu fyrir aldraðra, 720. mál.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar bæjarlögmanns.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundagerð í 8 liðum.
Lagt fram.
10.8 - 2105064 - Umhverfisviðurkenningar 2021
Lögð fram tillaga að útfærslu og verklagi á umhverfisviðurkenningum 2021.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögur af útfærslu og verklagi 2021.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
13
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Péturs H. Sigurðssonar um kostnað vegna auglýsinga á samfélagsmiðlum
Frá bæjarfulltrúa Pétri Hrafni Sigurðssyni, dags. 20.05.2021, lögð fram fyrirspurn varðandi kostnað vegna auglýsinga á erlendum samfélagsmiðlum á árunum 2020, 2019 og 2018, sundurliðað eftir árum. Jafnframt er óskað eftir yfirliti yfir 10 stærstu (dýrustu) viðburðina sem auglýstir voru á samfélagsmiðlum, skipt eftir ofangreindum árum.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til sviðsstjóra fjármálasviðs.