Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3102. fundur

Hilton Reykjavík Nordica

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

02

Sótt um aðstöðu fyrir söluskúr fyrir flugeldasölu

Frá lögfræðideild, dags. 11.10.2022, lögð fram umsögn um umsókn Gullborgar um aðstöðu fyrir söluskúr fyrir flugeldasölu.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að hafna erindinu.

03

Kársnes. Beiðni um tímabundin afnot af lóðum vegna geymslu á bílum

Frá Cozy Campers, dags. 05.10.2022, lagt fram erindi það sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að leigja lóður undir bifreiðar.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að vísa erindinu umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

04

Þakkir fyrir gjöf á 100 ára afmæli Norræna félagsins á Íslandi

Frá Norræna félaginu á Íslandi, dags. 06.10.2022, lagt fram þakkarbréf til Kópavogsbæjar.

Lagt fram og kynnt.

05

Áfangastaðastofa höfuðborgarsvæðisins

Frá SSH, dags. 10.10.2022, lögð fram bókun varðandi stofnun Áfangastaðastofu.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og fjármálasviðs.

06

Fundargerð 913. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.09.2022

Fundargerð 913. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.09.2022

Lagt fram.

07

Fundargerð 545. fundar stjórnar SSH frá 03.10.2022

Fundargerð 545. fundar stjórnar SSH frá 03.10.2022

Lagt fram.

08

Fundargerð 39. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 03.10.2022

Fundargerð 39. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 03.10.2022

Lagt fram.

09

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 11. fundur frá 22.09.2022

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.