Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2993. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Tillaga bæjarfulltrúa Theodóru S. Þorsteinsdóttur um að fá sérfræðing hjá Umhverfisstofnun á fund bæjarráðs til að fara yfir skyldu sveitarfélaga til að vinna loftlagsstefnu

Kynning frá Umhverfisstofnun til að fara yfir skyldu sveitarfélaga skv. lögum um loftlagsmál til að vinna loftlagsstefnu fyrir lok árs 2021.

Lagt fram.

02

Bláfjöll. Skíðasvæði, uppbygging, framkvæmdaleyfi.

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fara yfir framkvæmdir á Bláfjallasvæði.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 8:45, fundi fram haldið kl. 9:12.

03

Mánaðarskýrslur 2020

Frá bæjarritara, lögð fram mánaðarskýrsla vegna janúar.

Lagt fram.

04

Gulaþing 21. Beiðni um heimild til veðsetningar.

Frá lögfræðideild, dags. 10. mars, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Gulaþings 21, Gulaþing 21 ehf., um heimild til að veðsetja lóðina.

Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum umbeðna veðsetningu.

05

Sótt um leyfi til að halda skíðaskotfimimót

Frá lögfræðideild, dags. 9. mars, lögð fram beiðni skíðagöngunefndar Skíðasambands Íslands um leyfi fyrir notkun á landi til að mega halda skíðaskotfimimót í Bláfjöllum þan 23. mars nk. auk æfinga daginn fyrir mót.

Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum heimild til notkunar á landi með þeim fyrirvara að önnur leyfi yfirvalda liggi fyrir.

06

Útboð - Íþróttahúsið Digranes, gólf í íþróttasal

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 10. mars, lagðar fram niðurstöður útboðs í nýtt gólf í íþróttasal íþróttahússins Digranesi. Lagt til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Sport-tæki ehf.

Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum að ganga til samninga við lægstbjóðanda Sport-tæki ehf.

07

Malbiksyfirlagnir 2020

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 10. mars, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar til að bjóða út í opnu útboði malbiksyfirlagnir í Kópavogi 2020.

Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum heimild til útboðs í opnu útboði malbiksyfirlagnir í Kópavogi 2020.

08

Efnisútvegun, malbik 2020

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 10. mars, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar til að senda út lokaða verðfyrirspurn á tvo malbiksframleiðendur vegna kaupa á malbiki fyrir malbiksframkvæmdir árið 2020.

Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum heimild til umbeðinnar verðfyrirspurnar.

09

Útboð. Raforkukaup

Birkir Jón Jónsson vék af fundi vegna vanhæfis undir umræðum og afgreiðslu neðangreinds máls nr. 9.

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 10. mars, lagðar fram niðurstöður útboðs í raforkukaup fyrir almenna raforkunotkun utan götulýsingar. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda, Orkusöluna ehf.

Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Orkusöluna ehf.

10

Áætlun um refaveiðar 2020-2022

Frá Umhverfisstofnun, lögð fram áætlun um refaveiðar 2020-2022 ásamt uppgjöri áætlunar fyrir árin 2017-2020.

Lagt fram.

11

Menntaráð - 57. fundur frá 03.03.2020

Fundargerð í 3 liðum.

Lögð fram.

12

Fundargerð 879. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.02.2020

Fundargerð í 31 lið.

Lagt fram.

13

Fundargerð 380. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 22.01.2020

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

14

Fundargerð 381. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 26.02.2020

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

15

Fundargerð 483. fundar stjórnar SSH frá 02.03.2020

Fundargerð í 14 liðum.

Lagt fram.

16

Fundargerð 484. fundar stjórnar SSH frá 06.03.2020

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

17

Velferðarráð - 59. fundur frá 24.02.2020

59. fundur Velferðarráðs í 16. liðum

Lagt fram.


17.8 - 2002460 - Innleiðing á CareOn í sértæka heimaþjónustu

Greinargerð deildarstjóra, dags. 18. febrúar 2020 lögð fram.

Lagt fram til afgreiðslu.
Á fundinum kom fram að innleiðing kerfisins í sértækri heimaþjónustu kostar 600 þúsund krónur á ársgrundvelli.
Velferðarráð samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.


17

Velferðarráð - 60. fundur frá 09.03.2020

Fundargerð í 9 liðum.

Lagt fyrir.