Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3231. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Andri Steinn Hilmarsson - bæjarstjóri
    Sat fundinn í staðinn
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Theódóra S Þorsteinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Helga Jónsdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Stöðumat Barnvæns sveitarfélags Kópavogur 2025

Frá menntasviði, dags. 10. október 2025, lögð fram greinargerð og minnisblað um verkefnið Barnvænt sveitarfélag í Kópavogi sem er liður í áframhaldandi innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hjá Kópavogsbæ.

Lagt fram og kynnt.

Umræður.

Gestir viku af fundi kl. 8:33

02

Sólarhvarf 5. Úthlutun lóðar

Frá umhverfissviði, dags. 13.10.2025.2025, lögð fram tillaga að úthlutun lóðarinnar Sólarhvarf 5.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Thelmu B. Árnadóttur og Einars A. Þorvarðarsonar framlagaða tillögu að úthlutun lóðarinnar Sólarhvarf 5 til Egils Gauta Þorkelssonar og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

03

Stöðvarhvarf 2-4. Beiðni um heimild til veðsetningar

Frá umhverfissviði, dags. 13.10.2025, lögð fram beiðni um heimild til veðsetningar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Thelmu B. Árnadóttur og Einars A. Þorvarðarsonar umbeðna heimild til veðsetningar.

04

Stöðvarhvarf 5-11. Beiðni um heimild til framsals og veðsetningar

Frá umhverfissviði, dags. 13.10.2025, lögð fram beiðni um heimild til framsals og veðsetningar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Thelmu B. Árnadóttur og Einars A. Þorvarðarsonar umbeðna heimild til framsals og veðsetningar.

05

Stöðvarhvarf 6-8. Beiðni um heimild til veðsetningar

Frá umhverfissviði, dags. 13.10.2025, lögð fram beiðni um heimild til veðsetningar.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Thelmu B. Árnadóttur og Einars A. Þorvarðarsonar umbeðna heimild til veðsetningar.

06

Fyrirspurn bæjarfulltrúa um upplýsingar um framlög til íslenskukennslu ÍSAT nemenda og notkun framlaganna.

Frá menntasviði, lagt fram svar við fyrirspurn um framlög til íslenskukennslu ÍSAT nemenda og notkun framlaganna.

Lagt fram.

Umræður.

Gestir viku af fundi kl. 8:50

07

Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins - Bókun 613. fundar stjórnar SSH.

Frá SSH, dags. 15.09.2025, lagt fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar, drög að samningi milli Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar um svæðisbundið farsældarráð í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að samningi milli Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar um svæðisbundið farsældarráð í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

08

Til umsagnar frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 153. mál

Frá atvinnuveganefnd Alþingis, dags. 13.10.2025, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 153. mál.

Lagt fram.

09

Til umsagnar frumvarp til laga um leikskóla (innritun í leikskóla), 45. mál

Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um leikskóla (innritun í leikskóla), 45. mál.

Lagt fram.

10

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 429. fundur frá 10.10.2025

Fundargerð í 20 liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

11

Menningar- og mannlífsnefnd - 7. fundur frá 01.10.2025

Menningar- og mannlífsnefnd - 7. fundur frá 01.10.2025

Lagt fram.

12

Menningar- og mannlífsnefnd - 8. fundur frá 08.10.2025

Menningar- og mannlífsnefnd - 8. fundur frá 08.10.2025.

Lagt fram.

Bókun:

Óskað er eftir útreikningi á framlagi bæjarins til Lista- og menningarsjóðs Mannlífs- og menningarnefndar ef það væri í samræmi við reglur sjóðsins eða 0,5% af 6,7% útsvarsstofni Kópavogsbæjar. Í dag er framlagið 50 milljónir. Einnig er óskað eftir að málið verði tekið til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar.

Bergljót Kristinsdóttir.

13

Velferðar- og mannréttindaráð - 9. fundur frá 13.10.2025

Fundargerð í tíu liðum.

Lagt fram.


13.5 - 2509095 - Reglur um notendasamninga

Lögð fram til afgreiðlsu drög að nýjum reglum Kópavogsbæjar um notendasamninga.

Velferðar- og mannréttindaráð vísar drögum að nýjum reglum um notendasamninga til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir framlögð drög að nýjum reglum um notendasamninga til fyrir sitt leiti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.


14

Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 22. fundur frá 06.10.2025

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

15

Öldungaráð - 29. fundur frá 09.10.2025

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

16

Fundargerð 411. fundar stjórnar Strætó frá 24.09.2025

Fundargerð 411. fundar stjórnar Strætó frá 24.09.2025.

Lagt fram.

17

Fundargerð 615. fundar stjórnar SSH frá 06.10.2025

Fundargerð 615. fundar stjórnar SSH frá 06.10.2025.

Lagt fram.

18

Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 09.09.2025

Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 09.09.2025.

Lagt fram.