Bæjarráð - 3227. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
01
Beiðni bæjarfulltrúa Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og Vina Kópavogs um upplýsingar varðandi starfslokasaminga sem Kópavogsbær hefur gert frá upphafi kjörtímabils
Frá mannauðsstjóra, dags. 16.09.2025. lagt fram yfirlit yfir starfslokasaminga sem Kópavogsbær hefur gert frá upphafi kjörtímabils.
Lagt fram.
Umræður.
Gestur vék af fundi kl. 9:27
Frá Jöfnunarstjóði sveitarfélaga, dags. 15.09.2025, lagt fram til kynningar fundarboð ársfundar sem haldin verður 1. október 2025.
Lagt fram.
Umræður.
Fundargerð í tíu liðum.
Bæjarráð vísar fundargerðinni til staðfestingar bæjarstjórnar.
Umræður.
Fundargerð í níu liðum.
Lagt fram.
Umræður
4.3 - 25022006 - Smiðjuvegur 7. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu umsókn Gunnars Páls Kristinssonar arkitekts dags. 20. júní 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 7 við Smiðjuveg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst 1485,1 m² viðbygging við núverandi húsnæði á lóðinni til vesturs. Viðbyggingin mun vera á einni hæð auk kjallara. Þak á fyrirhugaðri viðbyggingu verður í sömu hæð og þak núverandi byggingar. Einnig er fyrirhugað að byggja 35m² viðbyggingu á einni hæð við austurgafl hússins. Núverandi bílastæði færast niður í hluta af kjallaranum en þar er gert ráð fyrir um 14 bílastæðum í opnu kjallararými. Bílastæðum á lóðinni fækkar úr 81 í 69. Byggingarmagn eykst úr 3554 m² í 5039 m² og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,5 í 0,7. Uppdrættir dags. 20. júní 2025, uppfærðir 11. júlí 2025. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 12. september 2025 um umsögn sem barst á kynningartíma tillögunnar sem lauk 5. september 2025, ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 12. september 2025.
Samþykkt með áorðnum breytingum dags. 12. september 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Ágrip. 12. september 2025
- Smiðjuvegur 7. Breytt deiliskipulag.júlí 2025 Kynningaruppdráttur
- Umsögn skipulagsdeildar. 12. september 2025
- Smiðjuvegur 7. Breytt deiliskipulag.12 september 2025 uppfærður uppdráttur
- Smiðjuvegur 7. Athugasemd frá Veitum
- Glærur frá 14. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 15. september 2025
4.5 - 2411575 - Smiðjuvegur 4. Byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 1. nóvember 2024 þar sem byggingarleyfisumsókn Inga Gunnars Þórðarsonar byggingafræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Smiðjuveg er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að breyta notkun 110 m² atvinnurýmis á 2. hæð í gistiheimili. Uppdrættir dags. 1. september 2024.
Þá er einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2025.
Hafnað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
4.6 - 25043140 - Digranesvegur 8-16A. Ósk um upphaf deiliskipulagsvinnu.
Lagt fram að nýju erindi Skala arkitekta f.h. lóðarhafa Digranesvegar 8, 10 og 12 dags. 28. apríl 2025 þar sem óskað er eftir samvinnu við skipulagsyfirvöld um gerð deiliskipulags fyrir lóðirnar nr. 8, 10, 12, 14, 16 og 16A við Digranesveg í samræmi við 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt er óskað eftir að sveitarstjórn veiti heimild til að vinna tillögu að deiliskipulag fyrir umrætt svæði og afmarki mörk svæðisins. Þá er einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. september 2025.
Hafnað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. september 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
4.7 - 22061304 - Íbúasamráð í skipulagsmálum. Þróun verklagsreglna.
Lögð fram að nýju til afgreiðslu tillaga umhverfissviðs að verklagi fyrir íbúasamráð í skipulagsmálum dags. 11. september 2025.
Samþykkt með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarsonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Leós Snæs Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar og óskar eftir kynningu.
Umræður.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Umræður.
Fundargerð 984. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 12.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 273. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 15.08.2025.
Lagt fram.