Bæjarráð - 2957. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllTheódóra S Þorsteinsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Másson
Dagskrá fundar
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 7. maí, lagðar fram niðurstöður rammasamningsútboðs vegna þjónustu verktaka fyrir umhverfissvið. Lagt er til að gerður verði rammasamningur við verktaka í samræmi við framlagt erindi.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðan rammasamning.
Frá fjármálastjóra, lagðar fram mánaðarskýrslur fyrir nóvember og desember 2018.
Lagt fram.
Frá fjármálastjóra, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir janúar 2019.
Lagt fram.
Deildarstjóri framkvæmdadeildar, Stefán Loftur Stefánsson, mætir á fund bæjarráðs og gerir grein fyrir stöðu mála.
Fundarhlé hófst kl. 8:51, fundi fram haldið kl. 9:20.
Lagt fram.
05
Skipan starfshóps um aðgerðaráætlun í loftlagsmálum. Tillaga frá Pírötum, Samfylkingu og BF Viðreisnar.
Frá bæjarstjóra, dags. 7. maí, lagt fram minnisblað vegna tillögu um skipan starfshóps um aðgerðaráætlun í loftlagsmálum sem vísað var til umsagnar hans í bæjarráði þann 21. mars sl.
Lagt fram.
Bókun:
"Fulltrúar Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar fagna því að Kópavogsbær innleiði þrettánda heimsmarkmiðið um aðgerðir í loftslagsmálum, og ráðstafanir vegna loftslagsbreytinga verði þar með að finna í allri stefnumótun og skipulagi.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson og Einar Örn Þorvarðarson."
Bókun:
"Tökum undir ofangreinda bókun.
Karen E. Halldórsdóttir
Hjördís Ý. Johnson
Birkir J. Jónsson"
Frá bæjarlögmanni, lagt fram erindi JSG lögmannsstofu dags. 6. mars varðandi hesthúsin Funaholt 8 og 9. Bæjarlögmaður fór yfir tillögu að lausn málsins í samræmi við erindi bréfritara á síðasta fundi bæjarráðs þann 2. maí sl. Samþykkti bæjarráð að fresta afgreiðslu málsins til næsta fundar.
Fundarhlé hófst kl. 9:46, fundi framhaldið kl. 10:02
Bæjarráð samþykkir tillöguna með þremur atkvæðum og hjásetu Péturs H. Sigurðssonar og Einars Ö. Þorvarðarsonar og felur bæjarlögmanni að ljúka málinu.
Bókun:
"Bæjarfulltrúar Samfylkingar, Pírata og BF Viðreisnar geta ekki samþykkt uppkaup á ónýtu hesthúsi á Glaðheimasvæðinu fyrir einbýlishúsaverð. Hér er verið að setja endapunkt á hörmulega vegferð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem hófst með því að bjarga uppkaupsmönnum á hesthúsum á svæði hestamannafélagsins Gusts á árinu 2006. Þessi vegferð hefur vægt áætlað, kostað Kópavogsbæ tæplega 6 milljarða króna á verðlagi dagsins í dag, fyrir kaup á landi sem var þrátt fyrir allt í eigu Kópavogsbæjar. Er leitun að annarri framkvæmd sveitarfélags á Íslandi sem hefur skilað álíka tapi.
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Einar Ö. Þorvarðarson
Pétur H. Sigurðsson"
Bókun:
"Það er eins og að eiga framtíðarbók í traustum banka að eiga Glaðheimalandið í Kópavogi. Nú þegar hefur verið úthlutað lóðum fyrir um 330 íbúðir í fyrsta áfanga og er flutt inn í stóran hluta þeirra. Úthlutunin í þessum fyrsta áfanga gaf tæplega 1,4 milljarða króna í bæjarsjóð auk gatnagerðargjalds, þessu til viðbótar munu tekjur af svæðinu nema ríflega hálfum milljarði á ári hverju inn í framtíðina í formi útsvars og fasteignagjalda. Næsta úthlutun í öðrum áfanga mun gefa í kringum 1,5 milljarð og að sama skapi ríflega hálfan milljarð í tekjur ár hvert. Samtals eru þetta því tæpir þrír milljarðar í úthlutun byggingaréttar og ríflega milljarður í tekjur ár hvert. Ekki er ljóst hverju áfangar 3 og 4 munu skila en þar er um talsverðar fjárhæðir að ræða. Þá er bókfært verð Glaðheimasvæðisins í dag 2,5 milljarðar króna. Þá er rétt að benda á að árið 1988 þegar hreinn meirihluti vinstri flokkanna var við völd í Kópavogi var gerður 50 ára samningur við hestamenn um Glaðheimasvæðið sem sýnir hversu skammt var hugsað.
Ármann Kr. Ólafsson
Karen E. Halldórsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Birkir J. Jónsson"
Fundarhlé hófst kl. 10:07, fundi fram haldið kl. 10:12.
Bókun:
"Vissulega mun Glaðheimalandið skila Kópavogsbæ tekjum til framtíðar. Gagnrýnin snýr að því að landið var keypt fyrir allt of háar fjárhæðir á sínum tíma. Ef rétt hefði verið staðið að málum hefðu tekjur Kópavogsbæjar orðið umtalsvert meiri.
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Einar Ö. Þorvarðarson
Pétur H. Sigurðsson"
Frá lögfræðideild, dags. 7. maí, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Álalindar 18-20, Glaðsmíði ehf., um heimild til að veðsetja lóðina.
Bæjarráð samþykkir erindið samhljóða.
Frá fjármálastjóra og rekstrarstjóra menntasviðs, dags. 7. maí, lagt fram erindi um húsnæðismál tónlistarskólans Tónsala þar sem lögð eru til kaup húsnæðis að Ögurhvarfi 4a og útleiga til tónlistarskólans í kjölfarið.
Málinu frestað til næsta fundar.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 6. maí, lagt fram erindi um stöðu framkvæmda á lóðum í Tóna- og Turnahvarfi.
Lagt fram.
Frá rekstrarstjóra menntasviðs, dags. 7. maí, lagt fram minnisblað vegna fyrirhugaðrar uppsetningar öryggismyndavéla í Sala, Smára- og Hörðuvallaskóla. Einnig lagt fram að nýju erindi sviðsstjóra umhverfissviðs með tillögu um uppsetningu öryggismyndavélakerfis frá 5. mars.
Bæjarráð samþykkir samhljóða uppsetningu myndavélakerfis utandyra, þar með talið við anddyri, í öryggis- og eignavörsluskyni.
Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dags. 30. apríl, lögð fram tilkynning um að Grænbók um stefnu ríkisinsn í málefnum sveitarfélaga hafi verið lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 30. apríl, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um skráningu einstaklinga (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 30. apríl, lögð fram til umsagnar þingsályktunartillaga um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2019-2022 (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
Frá Jónínu Hólmfríði Haraldsdóttur, dags. 30. apríl, lagt fram erindi um kaup á eignarhluta bæjarins í hesthúsinu að Heimsenda 1.
Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og sviðsstjóra menntasviðs til umsagnar.
Fundargerð í 17. liðum.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í 8. liðum.
Lagt fram.
16.7 - 1903870 - Sameiginleg bakvakt vegna barnaverndar
Lagt fyrir bæjarráð beiðni um staðfestingu á áframhaldandi samstarfi barnaverndar Kópavogs, Hafnarfjarðar og Garðabæjar um sameiginlega bakvakt sveitarfélagana.
Barnaverndarnefnd Kópavogs samþykkti áframhaldandi samstarf fyrir sitt leiti á fundi sínum þann 30. apríl 2019
Barnaverndarnefnd samþykkir endurnýjun samkomulags um sameiginlega Bakvakt Kópavogs, Hafnafjarðar og Garðabæjar fyrir sitt leyti.
Formaður nefndarinnar undirritar umboð til starfsmanna til að sinna sameiginlegri bakvakt dags. 30. apríl 2019.
Bæjarráð samþykkir samhljóða endurnýjun samkomulags um sameiginlega bakvakt.
- Skýrsla Capacent. Bakvaktir í barnavernd, Hafnafjörður/Garðabær/Kópavogur, júní 2011
- Sameiginleg bakvakt barnaverndar, tillögur starfshóps á vegum SSH, febrúar 2013
- Tölvupóstur með bókun bæjarráðs Kópavogs, dagsettur 19. desember 2013
- Samkomulag um sameiginlega bakvakt. Aðildarsveitafélög Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, dagsett 6. janúar 2014
- Umboð barnaverndarnefndar Kópavogs til starfsmanna barnaverndarnefndar Hafnarfjarðar og Garðabæjar vegna sameingilegra bakvakta innan SHH, dagsett 12. desember 2013
- Skýrsla Expectus. Sameiginleg bakvakt barnaverndar á höfuðborgarsvæðinu, nóvember 2014
- Framlenging umboðs barnaverndarnefndar Kópavogs til starfsmanna barnaverndarnefndar Hafnafjarðar og Garðabæjar vegna sameiginlegra bakvakta innan SSH, dagsett 11. desember 2014
- Bréf frá SSH vegna framlengingar á samstarfssamningi vegna sameiginlegrar bakvaktar, dagsett 21. janúar 2015
- Tölvupóstur með bókun bæjarráðs Kópavogs, dagsettur 29. janúar 2015
- Samstarfsyfirlýsing sveitarfélaganna Kópavogs, Hafnarfjarðar og Garðabæjar með Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dagsett 15. maí 2015
- Átak gegn heimilisofbeldi, skýrsla RIKK, rannsóknarstofnunar í janfréttisfræðum, dagsett 28. apríl 2017
- Vinnuleiðbeiningar vegna bakvaktarskýrslu í barnavernd.
- Mat á áhrifum á persónuvernd samkvæmt 29. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og 35. gr GDPR reglugerðar ESB nr. 679/2016, ódagsett
- Verklag bakvaktar Kópavogs, Hafnarfjarðar og Garðabæjar, ódagsett
- Samkomulag sveitafélaganna Kópavogs, Hafnarfjarðar og Garðabæjar um sameiginlega bakvakt, dagsetning skráð við undirritun.
- Umboð barnaverndarnefndar Kópavogs til starfsmanna barnaverndarnefnda Hafnarfjarðar og Garðabæjar vegna sameiginlegra bakvakta, dagsett 30. apríl 2019
Fundargerð í 9. liðum.
Lagt fram.
17.5 - 1810762 - Brekkuhvarf 1a og 1b. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram erindi lóðarhafa Brekkuhvarfs 1a og 1b, dags. 2. maí 2019 þar sem óskað er eftir að tillaga Rafaels Campos De Pinho, arkitekts að breyttu deiliskipulagi framangreindra lóða verði tekin til umfjöllunar og afgreiðslu í skipulagsráði. Í tillögunni felst að í stað tveggja lóða fyrir einbýlishús á 1-2 hæðum og nýtingarhlutfalli 0,38 er gert ráð fyrir þremur parhúsum á 2 hæðum. Hver íbúð er áætluð um 180 m2 að samanlögðum gólffleti. Gert er ráð fyrir tveimur bílastæðum á íbúð. Nýtingarhlutfall er áætlað 0,57. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 3. maí 2019.
Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði kynnt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
17.8 - 1803757 - Hundagerði í Kópavogi
Á fundi Umhverfis- og samgöngunefndar nr. 114 dags. 8. apríl 2019 var kynnt tillaga að hundasvæði í Kópavogi, staðsett á svæði við göngustíga neðan Álfatúns. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti tillöguna og vísaði til umsagnar Skipulagsráðs.
Skipulagsráð samþykkir að unnin verði tillaga að breyttu deiliskipulagi austurhluta Fossvogsdals sbr. ofangreint. Tillagan verði kynnt með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1. lið.
Lagt fram.