Bæjarráð - 3237. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Kynning á kostnaði sveitarfélaga vegna löggildingar sáttmála SÞ um réttindi fatlaðs fólks.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl.9:34.
Gestir
- Arnar Haraldsson frá HLH Ráðgjöf - mæting: 08:15
- Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs - mæting: 08:15
Frá umhverfissviði, dags.21.11.2025, lögð fram tillaga að úthlutun atvinnuhúsalóðar að Urðahvarfi 12.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Kynning um réttindi og velferð nemenda í grunnskólum.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl.10:43
Gestir
- Silja Dís Guðjónsdóttir, klínískur atferlisráðgjafi grunnskóladeild - mæting: 09:37
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir deildarstjóri grunnskóladeildar - mæting: 09:37
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs - mæting: 09:37
- Atli F. Magnússon klínískur atferlisfræðingur í Arnarskóla - mæting: 09:37
Sviðsstjóri menntasviðs og deildarstjóri grunnskóladeildar kynnna.
Kynning og umræður.
Gestir viku af fundi kl.11:24
Gestir
- Ingunn Mjöll Birgisdóttir, verkefnastjóri menntasviði - mæting: 10:47
- Sigrún Hulda Jónsdóttir deildarstjóri leikskóladeildar - mæting: 10:47
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir sviðsstjóri menntasviðs - mæting: 10:47
- Salvör Þórisdóttir lögfræðingur - mæting: 10:47
Frá umhverfissviði, dags. 24.11.2025, lagt fram til samþykktar bæjarráðs niðurstaða valnefndar um þróun lóðarinnar að Dalvegi 1. Í niðurstöðunni er farið yfir feril málsins og umsögn um efstu fjórar tillögurnar. Ásamt niðurstöðu valnefndar eru lagðar fram innsendar tillögur og einkunnargjöf valnefndar. Óskað er eftir að gögnin verði meðhöndluð sem trúnaðargögn.
Frestað til næsta fundar.
06
Ósk bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur eftir upplýsingum um ástand og burðargetu holræsiskerfis Kópavogs
Sviðsstjóri umhverfissviðs fer yfir stöðu mála.
Frestað til næsta fundar.
Frá SSH, dags. 20.11.2025, lögð fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarjstjórnar starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.
Bæjarráð samþykkir framlagða starfs- og fjárhagsáætlun SSH fyrir árið 2026 og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
Frá innviðaráðuneyti, dags. 19.11.2025, lögð fram samantekt á aðgerðum sveitarfélaga í umhverfis- og loftlagsmálum.
Lagt fram.
Fundargerð í 50 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.