Bæjarráð - 2998. fundur
Fjarfundur - Microsoft Teams
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Kynning á húsasorpsrannsókninni o.fl.
Fundarhlé hófst kl. 8:16, fundi fram haldið kl. 9:45.
Bókun:
"Undirritaður óskar eftir upplýsingum frá Íslenska gámafélaginu varðandi sorphirðu félagsins í Kópavogi. Óskað er eftir upplýsingum um magn pappírs og plasts sundurliðað eftir mánuðum. Enn fremur er óskað eftir upplýsingum um förgun pappírs og plasts. Hversu mikið fer í endurvinnslu, hvar er það magn endurunnið og hversu mikið fer í urðun. Þessar upplýsingar verði lagðar fram í bæjarráði Kópavogs sem fyrst."
Pétur Hrafn Sigurðsson
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Bókun:
"Við tökum undir bókun Péturs H. Sigurðssonar."
Birkir Jón Jónsson, Hjördís Ýr Johnson, Karen E. Halldórsdóttir, Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Sigurbjörg E. Egilsdóttir.
Gestir
- Gyða Sigríður Björnsdóttir sérfræðingur Sorpu í sjálfbærni og samfélagsábyrgð - mæting: 08:15
- Helgi Þór Ingason framkvæmdastjóri Sorpu - mæting: 08:45
Frá fjármálastjóra, lagður fram ársreikningur 2019.
Bæjarráð samþykkir að fresta málinu til næsta fundar.
Gestir
- Ingólfur Arnarson fjármálastjóri - mæting: 09:45
03
Fyrirspurn um stöðu framkvæmda: Kársnesskóla, Kópavogsvelli og húsnæði fyrir Skólahljómsveit Kópavogs
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 14. apríl, lagt fram svar við fyrirspurn um stöðu framkvæmda á Kársnesskóla, Kópavogsvelli og húsnæði fyrir Skólahljómsveit Kópavogs sem barst í bæjarráði þann 2. apríl sl.
Lagt fram.
Gestir
- Stefán L. Stefánsson deildarstjóri framkvæmdadeildar - mæting: 10:45
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 14. apríl, lagðar fram niðurstöður útboðs í malbiksyfirlagnir á götum í Kópavogi árið 2020. Lagt er til að leitað verði samninga við Loftorku Reykavík.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við Loftorku Reykjavík um malbiksyfirlagnir í Kópavogi árið 2020.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 14. apríl, lagðar fram niðurstöður verðfyrirspurnar í malbikskaup árið 2020. Lagt er til að leitað verði samninga við Hlaðbæ - Colas.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við Hlaðbæ - Colas um malbikskaup fyrir árið 2020.
Frá lögfræðideild, dags. 6. apríl, lagður fram úrskurður umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 86/2019 þar sem kærð var breyting á deiliskipulagi Vatnsenda - Þings vegna lóðarinnar Gulaþings 21.
Lagt fram.
Frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, dags. 1. apríl, lögð fram hvatning til sveitarfélaga um að eiga samtal við íþróttafélögin um rekstur í kjölfar áhrifa af Covid-19 og hækkun frístundastyrkja.
Lagt fram og vísað til menntasviðs.
Fundargerð í 11 liðum.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í 31 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram og kynnt.
Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram og kynnt.
16
Fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi stöðu mála um nýjan losunarstað fyrri sorp á höfuðborgarsvæðinu
Frá bæjarfulltrúa Pétri Hrafni Sigurðssyni, óskað er eftir upplýsingum varðandi stöðu mála um nýjan losunarstað fyrir sorp á höfuðborgarsvæðinu í ljósi þess að heimild til urðunar sorps í Álfsnesi rennur út um næstu áramót. Hvar er ætlunin að urða þau tugþúsundir tonna af sorpi sem falla til á ári hverju á höfuðborgarsvæðinu eftir að heimild til urðunar sorps í Álfsnesi rennur út um næstu áramót?
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar umhverfissviðs.