Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3006. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Birkir Jón Jónsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ármann Kristinn Ólafsson - varamaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Aðalskipulag Kópavogs 2019-2031 - Kynning að beiðni Theódóru S. Þorsteinsdóttur

Kynning á aðalskipulagi Kópavogs.

Lagt fram.

Bókun:

"Þakka fyrir kynninguna og óska eftir vinnufundi með bæjarstjórn er varðar aðalskipulagið áður en lengra er haldið."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

02

Mánaðarskýrslur 2020

Frá bæjarritara, lögð fram mánaðarskýrsla vegna starfsemi í apríl.

Lagt fram.

03

Svæði fyrir rafhleðslustöðvar bifreiða og reiðhjóla

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 8. júní, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að ganga til samninga við Veitur ohf. vegna uppsetningar rafhleðslustöðva í bæjarlandi Kópavogs skv. framlögðum samningsdrögum. Einnig óskað heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði innaup og rekstur á rafhleðslustöðvum í Kópavogi.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

04

Okkar Kópavogur 2019 - 2021

Frá verkefnastjóra íbúatengsla, dags. 4. júní, lögð fram til kynningar skýrslan Endurmat á Okkar Kópavogi.

Lagt fram.

05

Bæjarlind 14-16, BJS ehf, Nonnabita. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 3. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 26. júní, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn BJS ehf., kt. 480909-0700 um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn sem umsagnaraðili staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

06

Bæjarlind 6, Spot. Sportborg. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 3. júní, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 22. maí, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn Sportborgar ehf., kt. 510520-1650 um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki III, að Bæjarlind 6, 201 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn sem umsagnaraðili staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

07

Fífuhvammur 25, kæra vegna byggingarleyfi.

Frá lögfræðideild, dags. 20. maí, lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 31/2020 þar sem kærð var ákvörðun skipulagsráðs um að samþykkja byggingarleyfi fyrir gróðurhúsi á þaki bílskúrs að Fífuhvammi 25.

Lagt fram.

08

Beiðni um afnot af bátaskýli við Naustavör fyrir kajakdeild Ýmis

Frá sviðsstjórum umhverfissviðs og menntasviðs, dags. 29. maí, lagt fram svar við beiðni Siglingafélagsins Ýmis um afnot af bátaskýli við Naustavör fyrir aðstöðu kajakdeildar félagsins.

Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu með vísan til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

09

Forsetakosningar 2020

Frá formanni kjörstjórnar, dags. 8. júní, lagt fram erindi vegna forsetakosninga sem eru fyrirhugaða þann 27. júní nk. Lagt er til við bæjarráð að tveir kjörstaðir verði í Kópavogi, íþróttahúsinu Smáranum með 17 kjördeildir og íþróttahúsinu Kórnum með 7 kjördeildir, og að aðsetur kjörstjórnar verði í Smáranum. Einnig lagður fram listi yfir undirkjörstjórnir með fyrirvara um breytingar.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

10

Átak í fráveituframkvæmdum

Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samorku, dags. 2. júní, lagt fram erindi um átak í uppbyggingu í fráveitumálum hjá sveitarfélögum og veitufyrirtækjum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.

Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

11

Sumarstörf á Úlfljótsvatni. Beiðni um samstarf

Frá Skátunum, dags. 3. júní, lagt fram erindi um samstarf um sumarstörf fyrir unga skáta til starfa á Úlfljótsvatni með stuðningi Kópavogsbæjar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

12

Leikskólanefnd - 118. fundur frá 19.05.2020

Fundargerð í 29 liðum.

Lagt fram.

13

Lista- og menningarráð - 114. fundur frá 04.06.2020

Fundargerð í 10 liðum.

Lagt fram.

14

Menntaráð - 63. fundur frá 02.06.2020

Fundargerð í 9 líðum.

Lagt fram.


14.4 - 20051187 - Arnarskóli-Reglur um innritun og útskrift

Endurskoðaðar reglur um innritun og útskrift nemenda fyrir Arnarskóla lagðar fram.

Menntaráð samþykkir reglur Arnarskóla um innritun og útskrift nemenda með öllum greiddum atkvæðum og vísar þeim til bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.


15

18. fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 18.05.2020

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

16

Fundargerð 23. eigendafundar stjórnar Strætó frá 25.05.2020

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

17

Fundargerð 324. fundar stjórnar Strætó frá 29.05.2020

Fundargerð í 7 liðum.

Lagt fram.

18

Fundargerð 93. fundar svæðisskipulagsnefndar frá 08.05.2020

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

19

Umhverfis- og samgöngunefnd - 128. fundur frá 02.06.2020

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram.


19.4 - 20051100 - Kynning frá Hopp Mobility og ósk um tilraunaverkefni með upspetningu á rafskútuleigu í Kópavogi

Lagt fram erindi Hopp varðandi tilraunaverkefni í Kópavogi með uppsetningu á rafskútuleigu dags. 26.5.2020. Eyþór Máni Steinarsson, rekstrarstjóri Hopp gerir grein fyrir erindinu.

Umhverfis- og samgöngunefnd mælir með að farið verði í tilraunaverkefni í Kópavogi. Að gerður verði þjónustusamningur við Hopp mobility til 1. okt. 2020 um rekstur á rafskútuleigu í Kópavogi.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjóra.


20

Velferðarráð - 65. fundur frá 08.06.2020

Lagt fram.


20.11 - 2006261 - Búsetu- og stuðningsúrræði fyrir börn og ungmenni með fjölþættan vanda

Greinargerð deildarstjóra dags. 4.6.2020 ásamt þar til greindu fylgiskjali lögð fram til afgreiðslu.

Hlé var gert á fundi kl.18:02.
Fundur hófst að nýju kl.18:09.

Velferðarráð samþykkir framlagða tillögu að uppbyggingu búsetu- og stuðningsúrræðis fyrir sitt leyti. Því til viðbótar kallar velferðarráð eftir samræmdri stefnumótun í málefnum barna og ungmenna með fjölþættan vanda þar sem ljóst er að um flókin mál er að ræða.

Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.



20.13 - 2003212 - Reglur um félagslega heimaþjónustu. Tillaga að breytingu.

Regludrög ásamt umsögn öldungaráðs lögð fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkir framlagða breytingu fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.