Bæjarráð - 2977. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
Starfsmenn
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Kynning á stöðu þróunar á hugbúnaðinum Mælkó.
Lagt fram.
Hlé var gert á fundi kl. 8:20. Fundi var fram haldið kl. 9:15.
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 1. nóvember, lögð fram drög að samningi við félagsmálaráðuneytið vegna yfirfærslu þjónustu við fjóra einstaklinga til heimilis að Kópavogsbraut 5a.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning við félagsmálaráðuneytið vegna yfirfærslu á þjónustu að Kópavogsbraut 5a.
Bæjarráð vísar erindi skipulagsráðs um nýtingu lóðanna Kleifakór 2 og 4 undir heimili fyrir fatlaða einstaklinga til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs og deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 31.október, lagðar fram niðurstöður útboðs í ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi 2020-2025. Lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Teit Jóhannsson ehf.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við Teit Jónasson ehf. um ferðaþjónustu fatlaðra í Kópavogi 2020-2025.
Frá starfsmannadeild, dags. 7. október, lögð fram umsókn Guðbjargar Sóleyjar Þorgeirsdóttur um launað námsleyfi. Lagt er til að henni verði veitt launað námsleyfi í 3 mánuði á vorönn 2020 og 3 mánuði á haustönn 2020 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma. Bæjarráð samþykkti 3 mánaða námsleyfi vegna vorannar 2020 á síðasta fundi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umsókn um námsleyfi í 3 mánuði á vorönn 2020 og 3 mánuði á haustönn 2020.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 41 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.
7.6 - 1907412 - Álmakór 9b. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Ríkharðs Oddsonar, byggingafræðings fh. lóðahafa að breyttu deiliskipulagi Álmakórs 9b. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir viðbyggingu til suður um 34 m2. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. í júlí 2019. Á fundi skipulagsráðs 29. júlí 2019 var samþykkt með tilvísa til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/210 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Álmakórs 7a, 7b, 9a, 17a og 17b. Kynningartíma lauk 25. október 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.7 - 1910387 - Lækjasmári 114 og 116. Breytt staðföng.
Lagt fram erindi Gunnars Más Karlssonar, deildastjóra eignadeildar Kópavogsbæjar þar sem lagt er til að staðföngum lóðanna Lækjasmári 114 og 116 verði breytt í Dalsmári 23 og 25. Á lóðunum Dalsmári 21 og Lækjasmári 114 og 116 er leikskólinn Lækur. M.a. vegna aðkomu neyðarbíla er nauðsynlegt að samræma lóðarheitin og verði eftir breytingu Dalsmári 21, 23 og 25.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.8 - 1910460 - Fagraþing 1 og Glæsihvarf 4. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram tillaga Jakobs Líndal arkitekts dags. 16. október 2019 fh. lóðarhafa Fagraþings 1 og Glæsihvarfs 4 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í tillögunni felst að þessar tvær samliggjandi lóðir verði deilt upp í 3 lóðir. Glæsihvarf 4 er í dag óbyggð lóð en á Fagraþingi 1 er 186 m2 einbýlishús úr timbri, byggt 1999. Til samans eru þessar tvær lóðir 4235 m2. Gert er ráð fyrir að reisa tvö ný einbýlishús á lóðunum, bæði um 300 m2 á tveimur hæðum. Uppdrættir og lóðablað í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum.
Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í 25 liðum.
Lagt fram.
Theódóra Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 10:45.