Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3012. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Bláfjöll. Skíðasvæði, uppbygging, framkvæmdaleyfi.

Yfirferð yfir stöðu framkvæmda á skíðasvæði Bláfjalla.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Hópamyndanir í grunnskólum á kvöldin

Umræða um hópamyndanir í skólum á kvöldin.

Frestað til næsta fundar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Gulaþing 23, framsal lóðarréttinda.

Frá bæjarlögmanni, dags. 25. ágúst, lögð fram beiðni f.h. lóðarhafa Gulaþings 23, Þórarins Þórarinssonar og Helenu Viggósdóttur, um heimild til að framselja lóðina til Finns Sverris Magnússonar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framsal lóðarinnar til Finns Sverris Magnússonar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Kæra vegna ákvörðunar um val á þátttakendum hönnunarsamkeppni um Brú yfir Fossvog

Frá lögfræðideild, dags. 21. ágúst, lagður fram úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 4/2020 þar sem kærð var ákvörðun Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar um val á þáttakendum í forvalinu fyrir hönnunarsamkeppni vegna Fossvogsbrúar.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Átak í fráveituframkvæmdum

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. ágúst, lögð fram umsögn um erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samorku frá 2. júní þar sem vakin er athygli á því að unnið er að gerð frumvarps um átak í fráveitumálum.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

06

Kársnesskóli við Skólagerði - Hönnun

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 24. ágúst, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út í opnu útboði byggingu Kársnesskóla við Skólagerði.

Bæjarráð frestar erindinu með fimm atkvæðum til frekari rýni.

Aukinheldur óskar bæjarráð eftir minnisblaði um uppgjör vegna hönnunar Mannvits á forsendum útboðsins.

Fundargerð

07

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 297. fundur frá 12.08.2020

Fundargerð í 3 liðum.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

08

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 77. fundur frá 20.08.2020

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

Fundargerð

09

Lista- og menningarráð - 115. fundur frá 20.08.2020

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

Fundargerð

10

Menntaráð - 64. fundur frá 18.08.2020

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Fundargerð 326. fundar stjórnar Strætó frá 14.08.2020

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Fundargerð nr. 500 stjórnarfundar SSH frá 07.08.2020

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.