Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3239. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Einar Örn Þorvarðarson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Thelma Bergmann Árnadóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Undirbúningsfélag um byggingu brennslu

Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri Sorpu fer yfir stöðu máls og næstu skref.

Kynning og umræður.

Gestur vék af fundi kl. 8:46.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Ósk bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur eftir upplýsingum um ástand og burðargetu fráveitukerfis Kópavogs

Frá umhverfissviði, dags. 09.12.2025, lagt fram svar við erindi bæjarfulltrúa Samfylkingar. Jafnframt er lögð fram drög greinargerð unnin af Verkfræðistofu Bjarna Viðarssonar ehf.

Lagt fram.

Umræður.

Gestur vék af fundi kl. 9:09

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Kynning á stöðu langtímahættumats Veðurstofu Íslands - Hraunavá

Framkvæmdastjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins kynnir stöðu langtímahættumats.

Kynning og umræður.

Gestir viku af fundi kl. 10:27.

Fundargerðir nefnda

04

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 433. fundur frá 05.12.2025

Fundargerð í 20 liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

05

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 8. fundur frá 04.12.2025

Fundargerð í 26 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

06

Velferðar- og mannréttindaráð - 12. fundur frá 08.12.2025

Fundargerð í tíu liðum.

Lagt fram.


6.4 - 23032023 - Samræmd móttaka flóttafólks

Lagður fram til afgreiðslu viðauki við samning um samræmda móttöku vegna ársins 2026.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir sitt leyti að ritað verði undir viðauka III við núgildandi samning um móttöku flóttafólks. Málinu vísað áfram til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

Gestur vék af fundi kl. 9:25

Bæjarráð vísar erindinu til staðfestingar bæjarstjórnar.



6.6 - 2204193 - Reglur Kópavogsbæjar um stuðnings- og stoðþjónustu

Lögð fram til kynningar og afgreiðslu uppfærð gjaldskrá vegna stuðningsþjónustu í formi heimastuðnings.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir uppfærða gjaldskrá vegna stuðningsþjónustu og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar erindinu til staðfestingar bæjarstjórnar.


Fundargerðir nefnda

07

Fundargerð 619. fundar stjórnar SSH frá 01.12.2025

Fundargerð 619. fundar stjórnar SSH frá 01.12.2025.

Lagt fram.