Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3146. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ásdís Kristjánsdóttir

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Beiðni um viljayfirlýsingu vegna kaupa Þroskahjálpar á íbúðum fyrir fatlað fólk

Frá velferðarsviði, dags. 10.10.2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir því að bæjarrráð veiti samþykki fyrir viljayfirlýsingu vegna kaupa Þroskahjálpar á íbúðum fyrir fatlað fólk.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum þátttöku fyrir sitt leiti í stofnframlagaumsókn Þroskahjálpar um kaup á allt að tveim íbúðum fyrir fatlað fólk.

02

Dalvegur 30, Glenn´s Kitchen ehf, Ambrosial kitchen. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 09.10.2023, lögð fram umsögn um umsókn Glenn´s Kitchen ehf. um rekstrarleyfi fyrir veitingarstað í flokki II að Dalvegi 30.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

03

Víkurhvarf 1, Kenzo ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 09.10.2023, lögð fram umsögn um umsókn Kenzo ehf. um tækifærisleyfi í tilefni af árshátíð sálfræðinema við HÍ þann 21.10.2023 að Víkurhvarfi 1.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

04

Styrkbeiðni vegna Íslandsmóts kvenna í skák í Kópavogi 2024

Frá Skáksambandi Íslands, dags. 15.09.2023, lögð fram styrkbeiðni vegna Íslandsmóts kvenna í skák í Kópavogi 2024. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 21.09 að vísa málinu til umsagnar bæjarritara. Nú lögð fram umsögn þar sem lagt er til að styrkja viðburðinn um kr. 200.000,-

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita styrk að upphæð kr. 200.000,- vegna Íslandsmóts kvenna í skák 2024.

05

Fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29.09.2023

Fundargerð 934 frá 29.09.2023.

Lagt fram.

06

Fundargerð 112. fundar stjórnar Markaðsstofu Kópavogs frá 29.09.2023

Fundargerð 112. fundar stjórnar Markaðsstofu Kópavogs frá 29.09.2023.

Lagt fram.

07

Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnafjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 03.10.2023

Fundargerð frá 03.10.2023.

Lagt fram.

08

Fundargerð 565. fundar stjórnar SSH frá 02.10.2023

Fundargerð 565 frá 02.10.2023.

Lagt fram.

09

Fundargerð 44. eigendafundar stjórnar Strætó frá 02.10.2023

Fundargerð 44. eigendafundar stjórnar Strætó frá 02.10.2023.

Lagt fram.

10

Fundargerð 44. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.10.2023

Fundargerð 44. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.10.2023.

Lagt fram.

11

Lista- og menningarráð - 157. fundur frá 04.10.2023

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.

12

Velferðarráð - 124. fundur frá 09.10.2023

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.