Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3104. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Mánaðarskýrslur og uppgjör

Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagðar fram mánaðarskýrslur fyrir janúar - ágúst 2022.

Kynning.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Fjárhagsáætlun 2023

Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2023.

Bæjarráð frestar erindinu.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Þriggja ára fjárhagsáætlun 2024-2026

Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að þriggja ára fjárhagsáætlun 2024-2026.

Bæjarráð frestar erindinu.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Göngu- og hjólastígur meðfram Lindarvegi

Frá bæjarlögmanni, dags. 25.10.2022, lögð fram umsögn um uppfærða verkáætlun deildarstjóra gatnadeildar frá 29.08.2022.

Umræður.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

06

Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur að farið verði yfir stofnframkvæmdir fyrir árið 2022 í bæjarráði

Fjármálastjóri og sviðsstjóri umhverfisviðs fara yfir stofnframkvæmdir umhverfissviðs 2022.

Kynning.

Ýmis erindi

07

Tilkynning um ágóðahlutagreiðslu 2022

Frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands, dags. 21.10.2022, lögð fram tilkynning um ágóðahlutagreiðslu 2022.

Lagt fram.

Ýmis erindi

08

Styrkbeiðni vegna gerð barnabókarefnis á táknmáli

Frá Félag heyrnarlausra, dags. 22.10.2022, lögð fram beiðni um styrk vegna þýðingar barnabókmennta yfir á táknmál.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarritara.

Ýmis erindi

09

Styrkbeiðni til að auka fræðslu og þjónustu í sveitarfélaginu um ADHD og fyrir fólk með ADHD

Frá ADHD samtökunum, dags. 19.10.2022, lög fram styrkbeiðni til að auka fræðslu og þjónustu í sveitarfélaginu um ADHD og fyrir fólk með ADHD.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.

Ýmis erindi

10

Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 231. mál

Frá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um úttekt á tryggingavernd í kjölfar náttúruhamfara, 231. mál.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.

Fundargerðir nefnda

11

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 354. fundur frá 13.10.2022

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Lista- og menningarráð - 144. fundur frá 24.10.2022

Fundagerð í einum lið.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13

Leikskólanefnd - 145. fundur frá 20.10.2022

Fundargerð í níu liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14

Velferðarráð - 108. fundur frá 24.10.2022

Fundargerð í níu liðum.

Framlagningu fundargerðarinnar frestað til næsta fundar.

Fundarhlé hófst kl. 11:33, fundi fram haldið kl. 11:47

Fundargerðir nefnda

15

Fundargerð 914. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 12.10.2022

Fundargerð 914. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 12.10.2022

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16

Fundargerð 361. fundar stjórnar Strætó frá 14.10.2022

Fundargerð 361. fundar stjórnar Strætó frá 14.10.2022

Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

17

Ósk um umfjöllun og ákvörðun um uppsögn móttökustoðvar Sorpu á Dalvegi

Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, lagt fram erindi varðandi ákvörðun um uppsögn móttökustoðvar Sorpu á Dalvegi

Umræður.

Erindi frá bæjarfulltrúum

18

Fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi heimildir sveitarfélagsins séu til að stýra lofthelginni yfir Kópavogi.

Frá bæjarfulltrúa Andra Stein Hilmarssyni, lögð fram fyrirspurn varðandi heimildir sveitarfélagsins til að stýra lofthelginni yfir Kópavogi.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.