Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3066. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Ármann Kristinn Ólafsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Einar Örn Þorvarðarson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Ásmundur Alma Guðjónsson - áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Viðbrögð við Covid-19 faraldrinum

Farið yfir stöðu faraldursins hjá Kópavogsbæ.

Umræður.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Markaðsstofa Kópavogs

Kynning á markaðsstofu Kópavogs.

Kynning.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Traðarreitur eystri. Kæra vegna afgreiðslu bæjarstjórnar á tillögu að deiliskipulagi

Frá lögfræðideild, dags. 5. nóvember 2021, lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 112/2020 þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar um að samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir Traðarreit eystri.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Akrakór 8A, 8B. Heimild til framsals lóðarréttinda

Frá lögfræðideild, dags. 8. nóvember 2021, lögð fram umsögn varðandi Akrakór 8A og 8B. Óskað er heimildar bæjarráðs til framsals lóðarréttinda.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Þjónustusamningur við Kópavogsbæ um viðhald á útilýsingu.

Frá lögfræðideild, dags. 9. nóvember 2021, lagt fram erindi um uppsögn á þjónustusamningi við Orkuveitu Reykjavíkur um viðhald á útilýsingu.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að samningi við Orkuveituna um viðhald á útilýsingu verði sagt upp í samræmi við erindið.

Ýmis erindi

06

Tilnefning varamanna í Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins

Frá SSH, lagt fram erindi þar em óskað er eftir tilnefningu tveggja varamanna í Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

07

Erindi frá SSH. Óskað eftir umboði til undirritunar samkomulags sveitarfélaganna um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins

Frá SSH, lagt fram erindi þar sem óskað eftir fullu og ótakmörkuðu umboði sveitarstjóra til undirritunar samkomulags sveitarfélaganna um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Ýmis erindi

08

Bókun 529. fundar stjórnar SSH. Áfangastaða- og markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins

Frá SSH, dags.8. nóvember 2021, lögð fram bókun um Áfangastaða- og markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins. Bókunin er send til kynningar og umræðu hjá aðildarsveitarfélögunum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

09

Fundargerð 459. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 15.10.2021

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.