Bæjarstjórn - 1149. fundur
í bæjarstjórnarsal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
- Ása Richardsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllÁsa Richardsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaðurBoðaði forföllGuðmundur Gísli Geirdal - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
2850. fundur í 19. liðum.
Lagt fram.
1.7 - 1612204 - Fróðaþing 27, umsókn um lóð.
Frá sviðsstjóra umhverfisssviðs, dags. 14. desember, lögð fram umsókn um lóðina Fróðaþing 27 frá Ármanni Bendiktssyni, kt. 080147-4819. Lagt er til við bæjarráð að samþykkja úthlutun lóðarinnar til umsækjenda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Ármanni Bendiktssyni kost á byggingarrétti á lóðinni Fróðaþingi 27 og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.
2851. fundur í 25. liðum.
Lagt fram.
2.12 - 1610412 - Sérstakur húsnæðisstuðningur
Frá lögfræðideild, dags. 21. desember, lögð fram greinagerð vegna tillögu að breytingum á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning til leigenda á almennum markaði voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs þann 13. desember.
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu að breytingum á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning með 11 atkvæðum.
2.8 - 1612291 - Dalaþing 7, umsókn um lóð.
Frá fjármálastjóra, dags. 14. desember, lögð fram umsókn um lóðina Dalaþing 7 frá Hilmari Rafni Kristinssyni, kt. 300681-4179 og Kristni Sigurjóni Gunnarssyni, kt. 261059-4449. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjenda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópvogsbæjar fyrir úthlutun.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gefa Hilmari Rafni Kristinssyni og Kristni Sigurjóni Gunnarssyni kost á byggingarrétti á lóðinni Dalaþing 7 og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráð með 11 atkvæðum.
2852. fundur í 18. liðum.
Lagt fram.
3.2 - 1701072 - Samningur um yfirdráttarlán á veltureikningi
Frá fjármálastjóra, lagður fram til samþykktar samningur um yfirdráttarlán á veltureikningi við Arion banka.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir framlagðan samning um yfirdráttarlán á veltureikningi við Arion banka með 10 atkvæðum. Jón Finnbogason vék af fundi undir afgreiðslu málsins.
3.4 - 1511039 - Vesturvör 2 - Lóðarleigusamningur
Frá bæjarlögmanni, dags. 3. janúar, lögð fram drög að ákvörðun um innlausn hluta lóðarinnar Vesturvör 2.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum innlausn hluta lóðarinnar Vesturvör 2 með vísan til erindis bæjarlögmanns.
3.5 - 16111052 - Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda
Frá lögfræðideild, dags. 21. desember, lögð fram greinargerð vegna tillögu að breytingum á reglum um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda. Reglur um sölu félagslegra leiguíbúða til leigjenda voru samþykktar í bæjarstjórn Kópavogs þann 13. desember sl.
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir að fresta afgreiðslu málsins og vísa því til bæjarráðs.
203. fundur í 9. liðum.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
204. fundur í 8. liðum.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
205. fundur í 1. lið.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
1424. fundur í 13. liðum.
Lagt fram.
85. fundur í 1. lið.
Lagt fram.
65. fundur í 23. liðum.
Lagt fram.
112. fundur í 6. liðum.
Lagt fram.
356. fundur í 4. liðum.
Lagt fram.
369. fundur í 10. liðum.
Lagt fram.
437. fundur í 5. liðum.
Lagt fram.
256. fundur í 9. liðum.
Lagt fram.
71. fundur í 7. liðum.
Lagt fram.
72. fundur í 8. liðum.
Lagt fram.
Frá bæjarlögmanni, dags. 22. nóvember, lögð fram til samþykktar endurskoðuð samþykkt um hænsnahald í Kópavogi ásamt umsögn. Bæjarráð samþykkti að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar þann 13. desember sl. fór fram fyrri umræða.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða samþykkt um hænsnahald í Kópavogi.
Frá skipulagsstjóra, dags. 22. nóvember, lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Lýsingin er lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fjallar um breytingu á landnotkun og talnagrunni í Nónhæð, sem skv. núgildandi aðalskipulagi er áætlað fyrir samfélagsþjónustu og opin svæði en breytist skv. ofangreindri lýsingu í íbúðarbyggð og opin svæði. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða lýsingu og að hún verði kynnt í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi þann 13. desember sl.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.
Frá fulltrúum Samfylkingar og Vinstri grænna, lögð fram tillaga um skipan nefndar sem verði falið að skoða heildarskipulag á Kársnesi ásamt greinargerð.
Bæjarstjórn hafnar tillögunni með 8 atkvæðum gegn 3 atkvæðum Ólafs Þórs Gunnarssonar, Kristínar Sævarsdóttur og Péturs Hrafns Sigurðssonar.
Aðalmaður Samfylkingar verður Magnús Norðdahl í stað Önnu Kristinsdóttur.
Varamaður Samfylkingar verður Kristín Sævarsdóttir í stað Magnúsar Norðdahl.