Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1161. fundur

Í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Ása Richardsdóttir - aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Theódóra S Þorsteinsdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Bæjarráð - 2881. fundur frá 07.09.2017

Fundargerð í 22. liðum.

Lagt fram og frestað til næsta fundar.


1.7 - 1603662 - Fluglestin - tillaga að samstarfssamningi við SSH og aðildarsveitarfélög

Frá SSH, dags. 14. júní, lögð fram drög að tillögu að samstarfssamningi milli SSH og Fluglestarinnar-þróunarfélags ehf. vegna Hraðlestar til og frá Keflavíkurflugvelli, sem stjórn SSH vísaði til efnislegrar umfjöllunar hjá aðildarsveitarfélögunum á fundi þann 6. júní síðastliðinn. Bæjarráð frestaði erindinu á síðasta bæjarráðsfundi 10.ágúst.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 8 atkvæðum gegn 1 atkvæðum Birkis Jóns Jónssonar og hjásetu Guðmundar Gísla Geirdal og Karenar E. Halldórsdóttur.

Bókun:
Ég tel ekki rétt að bæjaryfirvöld í Kópavogi leggi blessun sína yfir framhald verkefnisins. Ég hef ekki trú á því að sú kostnaðaráætlun sem fyrir liggur standist, sérstaklega ef mið er tekið af áætluðum kostnaði við Borgarlínuverkefnið. Í ljósi nýlegrar einkaframkvæmdar í jarðgangagerð er hætta á að skattgreiðendur muni á endanum þurfa að greiða kostnað vegna þessa verkefnis ef áætlanir ganga ekki eftir.
Mikilvægi verkefnisins mun verða æ minna eftir því sem tækniframförum á sviði samgöngumála vindur fram s.s. með sjálfkeyrandi bílum sem mun valda byltingu í almenningssamgöngum. Að auki hefur komið fram að umtalsvert dýrara verður að nýta sér fluglestina en t.d. flugrútuna.
Ef þessu verkefni verður hleypt áfram er ljóst að heilmikið rask mun verða fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Bora þarf rannsóknarholur með nokkur hundruð metra millibili og heilmikil vinna sem starfsmenn sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu þurfa að leggja af mörkum til breytinga á gildandi skipulagi.
Birkir Jón Jónsson


02

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 223. fundur frá 02.08.2017

Fundargerð í 8. liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

03

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 224. fundur frá 15.08.2017

Fundargerð í 9. liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

04

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 225. fundur frá 22.08.2017

Fundargerð í 1. lið.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

05

Barnaverndarnefnd - 68. fundur frá 31.08.2017

Fundargerð í 2. liðum.

Lagt fram.

06

Forsætisnefnd - 99. fundur frá 06.09.2017

Fundargerð í 5. liðum.

Lagt fram.

07

Fundargerð 226. fundar heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 22.08.2017

Fundargerð í 94. liðum.

Lagt fram.

08

Leikskólanefnd - 85. fundur frá 24.08.2017

Fundargerð í 8. liðum.

Lagt fram.

09

Lista- og menningarráð - 74. fundur frá 24.08.2017

Fundargerð í 6. liðum.

Lagt fram.

10

Menntaráð - 13. fundur frá 05.09.2017

Fundargerð í 7. liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð 445. fundar stjórnar SSH frá 13. júní 2017

Fundargerð í 1. lið.

Lagt fram.

12

Fundargerð 269. fundar stjórnar Strætó bs. frá 7.7.2017

Fundargerð í 3. liðum.

Lagt fram.

13

Fundargerð 270. fundar stjórnar Strætó bs. frá 18.08.2017

Fundargerð í 5. liðum.

Lagt fram.

14

Umhverfis- og samgöngunefnd - 90. fundur frá 22.08.2017

Fundargerð í 12. liðum.

Lagt fram.


14.10 - 1704446 - Bílastæðasjóður Kópavogsbæjar

Lögð fram tillaga að samþykkt um bílastæðasjóðs Kópavogsbæjar dags. 17.8.2017

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagðar tillögur að samþykktum að stofnun bílastæðasjóð Kóapvogs. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum