Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1169. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Ása Richardsdóttir - aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Birkir Jón Jónsson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

01

Bæjarráð - 2898. fundur frá 11.01.2018

Hlé var gert á fundi kl. 17.52. Fundi var fram haldið kl. 17.55.

Fundargerð í 7 liðum.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 2899. fundur frá 18.01.2018

Fundargerð í 14 liðum.

Lagt fram.

03

Forsætisnefnd - 105. fundur frá 24.11.2017

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

04

Forsætisnefnd - 107. fundur frá 04.01.2018

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

05

Forsætisnefnd - 108. fundur frá 18.01.2018

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

06

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 233. fundur frá 28.12.2017

Fundargerð í 9 liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

07

Íþróttaráð - 78. fundur frá 12.12.2017

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

08

Íþróttaráð - 79. fundur frá 11.01.2018

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

09

Lista- og menningarráð - 82. fundur frá 04.01.2018

Fundargerð í 40 liðum.

Lagt fram.

10

Skipulagsráð - 21. fundur frá 15.01.2018

Fundargerð í 12 liðum.

Lagt fram.


10.10 - 1712884 - Melgerði 11. Kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram erindi Hauks Ásgeirssonar verkfræðings fh. lóðarhafa Melgerðis 11 að breyttu fyrirkomulagi á lóðinni. Í breytingunni felst viðbygging á tveimur hæðum við vesturhlið íbúðarhússins alls 150 m2 að stærð. Fyrirhugað er að í viðbyggingunni verði tvær íbúðir, ein á hvorri hæð. Jafnframt er bílastæðum á lóðinni fjölgað úr tveimur í sex. Byggingarmagn á lóðinni hækkar úr 202,2 m2 í 350.2 m2 við breytinguna og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,26 í 0,46. Fjöldi íbúða eykst úr einni í þrjár. Greinargerð og uppdrættir í mkv. 1:200 og 1:500 dags. 4. janúar 2018.

Skipulagsráð hafnar erindinu og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.



10.11 - 1712885 - Langabrekka 5. Kynning á byggingarleyfi.

Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem m.a. kemur fram að þann 16. nóvember 2017 hafi verið tekið fyrir mál nr. 113/2015 þar sem kærð var ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar frá 12. nóvember 2015 um synjun um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við bílskúr að Löngubrekku 5. Í úrskurðarorðum kemur fram að ákvörðun byggingarfulltrúa sé felld úr gildi.

Frá byggingarfulltrúa:
Lögð fram að nýju erindi Teiknivangs f.h. lóðarhafa dags. 22.6.2015. Óskað er eftir að byggja við bílskúr til suðurs á lóðinni Löngubrekku 5. Viðbygging er 2,5 x 7,5 metrar að stærð eða um 19 m2 að grunnfleti. Hæð viðbyggingar verður 3,3 m og er 0,5 m frá lóðarmörkum við Álfhólsveg 61. Gólfkóti viðbyggingar verður 1,3m lægri en lóðin við Álfhólsveg 61 sbr. meðfylgjandi uppdrætti dags. 22.6.2015.

Skipulagsráð hafnar erindinu og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.



10.12 - 1403302 - Furugrund 3. Breyting á aðalskipulagi

Lögð fram að nýju tillaga að breyttu Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024. Breytingin nær til reits VÞ-5, lóðarinnar nr. 3 við Furugrund þar sem verslunar- og þjónustusvæði er breytt í íbúðarsvæði. Verslun- og þjónusta auk geymslna fyrir íbúðir verður í u.þ.b. 1/3 húsnæðisins (kjallara) en íbúðir í u.þ.b. 2/3 hluta (1-2 hæð). Breyta á núverandi húsnæði að Furugrund 3 þannig að byggð verður hæð ofan á núverandi hús. Eftir breytinguna verður húsið að Furugrund 3 um 1.800 m2 að samanlögðum gólffleti með allt að 12 íbúðum. Ofangreind breyting kemur til af því að innan reits VÞ-5 hefur verslunarstarfsemi dregist saman á undanförnum árum og færst á önnur verslunar- og þjónustusvæði meðal annars við Nýbýlaveg. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 ásamt greinargerð dags. í maí 2017.

Tillagan var auglýst frá 24. október 2017 með tilvísun í 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga 123/2010 með athugasemdafrest til 11. desember 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust.
Lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 15. janúar 2018.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu ásamt umsögnum í greinargerð dags. 15. janúar 2018. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Guðmundur Geirdal, Andrés Pétursson, Sigríður Kristjánsdóttir, Kristinn Dagur Gissurarson, Júlíus Hafstein og Hreiðar Oddsson greiða atkvæði með tillögunni.

Ása Richardsdóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni.

Bókun frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur:
"Breyting á aðalskipulagi Kópavogs vegna Furugrundar 3, gerir það að verkum að íbúar munu væntanlega ekki eiga möguleika í framtíðinni að geta sótt verslun innan hverfis og í göngufæri frá heimili sínu.
Þegar ný hverfi eru skipulögð, er jafnan gert ráð fyrir verslun og þjónustu innan hverfis og er það í anda sjálfbærrar þróunar, samkvæmt hugmyndafræði aðalskipulags Kópavogs og Svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins.
Þegar þjónustukjarnar rísa rétt utan hverfanna er hætta á að verslun hætti að þrífast í hvefunum. Í þessa kjarna þurfa svo íbúar að sækja á bílum, sem er ekki í anda sjálfbærrar þróunar.
Íbúar í nágrenni Fururgrundar 3 hafa ítrekað mótmælt fyrirhugaðri breytingu á Furugrund 3 og gert fjölmargar athugasemdir og komið með tillögur. Ákjósanlegast hefði verið að Kópavogsbær hefði keypt húseignina og nýtt í þágu íbúa hverfisins.
Mjög mikilvægt er að þegar hafist verður handa við að deiliskipuleggja Furugrund 3 sem íbúðarhúsnæði, að virðing verði borin fyrir nágrönnum og velferð þeirra og tekið tillit til athugasemda. Ég er mótfallinn þessari aðalskipulagsbreytingu".

Bókun frá Ásu Richardsdóttur:
"Undirrituð tekur undir með íbúum er gera þær athugasemdir að verði þessi eini atvinnureitur í hverfinu tekinn undir íbúðir verður það ekki aftur tekið.
Þétting byggðar og breyttar áherslur í skipulagi á höfuðborgarsvæðinu eru brýnar. Eitt helsta markmið breytinga er að með þeim skapist skilyrði fyrir þjónustu í nærumhverfi.
Varast skal að kjörnir fulltrúar taki ákvarðanir nú sem vinna gegn því markmiði, til lengri framtíðar.
Langt er í þjónustu fyrir flesta íbúa og aðgengi fyrir börn að verslunarþjónustu mjög slæmt. Ég hef verið á móti þessari aðalskipulagsbreytingu frá upphafi og er það enn. Ég greiði atkvæði á móti".

Fundarhlé gert kl 18:27
Fundi fram haldið kl 18:42

Bókun frá Guðmundi Geirdal, Andrési Péturssyni, Sigríði Kristjánsdóttur, Júlíusi Hafstein, Ármann Kr. Ólafssyni og Hreiðari Oddssyni:

"Í Furugrund 3 hefur ekki þrifist verslun í tæp 10 ár þrátt fyrir tilraunir í þá veru. Nú er verið að samþykkja að hámarki 12 íbúðir í næsta nágrenni við skólana í hverfinu. Í kjölfar þess að mikill íbúðaskortur skapaðist á höfuðborgarsvæðinu hefur það verið stefna Kópavogs að fjölga litlum og meðalstórum íbúðum. Þessi stefna birtist í þverpólitískri húsnæðisskýrslu bæjarins, aðalskipulagi Kópavogsbæjar og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.
Þessi niðurstaða er einnig fengin eftir fjölda samráðsfunda með íbúum hverfisins".

Kristinn Dagur Gissurnarson tekur undir bókunina.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með átta atkvæðum þeirra Margrétar Friðriksdóttur, Theódóru Þorsteinsdóttur, Ármanns Kr. Ólafssonar, Sverris Óskarssonar, Karenar Halldórsdóttur, Hjördísar Ýr Johnson, Guðmundar Geirdal og Kristins Dags Gissurarsonar gegn þremur atkvæðum þeirra Ásu Richardsdóttur, Margrétar Júlíu Rafnsdóttur og Péturs Hrafns Sigurðssonar.



10.4 - 1710517 - Langabrekka 25. Skipting einbýlishúss í tvær eignir.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Helgu Guðrúnar Vilmundardóttur arkitekts fyrir hönd lóðarhafa Löngubrekku 25 þar sem óskað er eftir að skipta einbýlishúsi upp í tvær aðskildar séreignir. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500, dags. 27. september 2017. Á fundi skipulagsráðs 6. nóvember 2017 var samþykkt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Löngubrekku 18, 20, 22, 23 og 27. Athugasemdafrestur er til 25. janúar 2018 en lóðarhafar hafa lagt fram undirritað samþykki lóðarhafa í grennd og þar með stytt kynningartímann í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



10.5 - 1710174 - Fossvogsbrún, þjónustuíbúðir. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.

Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að breyttu deiliskipulagi við Fossvogsbrún. Í gildi er deiliskipulag Fossvogsdals, austurhluta, samþykkt í bæjarráði/bæjarstjórn 14. maí 1996. Breytingin tekur til svæðis norðaustan Fossvogsbrúnar 2. Í breytingunni felst að þar verði ný lóð, Fossvogsbrún 2a, með byggingarreit fyrir íbúðakjarna fyrir fatlaða með allt að sjö íbúðum ásamt þjónusturými. Stærð lóðarinnar er áætluð 1200 m2 og stærð byggingarreits 600 m2. Hámark nýtingarhlutfalls á lóðinni er verður 0,5. Aðkoma er frá Fossvogsbrún og þar sem fyrir eru tíu bílastæði, ráðgert er að fjölga þeim um fimm.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



10.7 - 1801305 - Aflakór 6. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga Krark fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 6 við Aflakór. Í tillögunni felst að í stað einbýlishúss verði byggt parhús á lóðinni, byggingarmagn er aukið úr 350 m2 í 420 m2, heimilaðar verði útbygging á efri hæð út fyrir byggingarreit 2,5 x 3,6 m á norður og suður hlið, hámarkshæð verði 6,7 m miðað við aðkomuhæð í stað 6,3m. Uppdrættir í mkv. 1:1000 og 1.500 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 11. janúar 2018.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



10.8 - 1801080 - Engihjalli 9, kynning á byggingarleyfi.

Lagt fram erindi Reynis Adamssonar arkítekts fyrir hönd húsfélagsins Engihjalla 9 dags. 12. desember 2017 þar sem óskað er eftir að fá samþykkta áðurgerða íbúð í kjalla hússins samtals um 106 m2, klæða húsið með álklæðningu og bæta við svalalokunum. Uppdrættir í mkv. 1:100 ásamt undirrituðu samþykki meirihluta lóðarhafa.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.


11

Velferðarráð - 21. fundur frá 08.01.2018

Fundargerð í 7 liðum.

Lagt fram.

12

Fundargerð 452. fundar stjórnar SSH frá 8.1.2018

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

13

Fundargerð 278. fundar stjórnar Strætó bs. frá 12.12.2017

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

14

Fundargerð 279. fundar stjórnar Strætó bs. frá 05.01.2018

Fundargerð í 5 liðum.

Jafnframt eru lögð fram tvö fylgigögn, annars vegar áhættumat vagna hjá Strætó og hins vegar bókun frá fundi hverfisráðs Grafarvogs þann 19. desember sl.

Lagt fram.

15

Urðarhvarf 12, umsókn um lóð.

Frá lögfræðideild, dags. 18. desember, lögð fram umsögn varðandi umsókn um lóðina Urðarhvarf 12 frá Módís ehf. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda fellur umsóknin að kröfum Kópavogsbæjar fyrir úthlutun.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum og samþykkir að úthluta lóðinni Urðarhvarfi 12 til Módís ehf.