Bæjarstjórn - 1265. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Hannes Steindórsson - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaðurBoðaði forföllKolbeinn Reginsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Fundargerð í níu liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 30 liðum.
Lagt fram.
Fundi frestað kl. 17:05, fundi fram haldið kl. 17:29.
Fundi frestað kl. 18:09, fundi fram haldið kl. 18:33.
2.12 - 2210437 - Fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlitsins og gjaldskrá fyrir árið 2023
Frá Heilbrigðiseftirliti Garðabæjar, dags. 13.10.2022, lögð fram fjárhagsáætlun og greinargerð með fjárhagsáætlun fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bókun:
"Bæjarráð óskar eftir samantekt á kostnaðarþróun Kópavogsbæjar frá árinu 2018."
Bæjarstjórn samþykkir að fresta erindinu.
- Kostnaður við heilbrigðiseftirlit 2018-2021
- Bréf til bæjarstjóra og fjármálastjóra - gjaldskrá og fjárhagsáætlun 2023
- GJALDSKRÁ fyrir matvæla-, heilbrigðis og mengunareftirlit 2023
- GJALDSKRÁ fyrir hundahald 2023
- Greinargerð með fjárhagsáætlun 2023 - 30.09.2022
- Fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlits og gjaldskrá fyrir 2023
2.13 - 2210526 - Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. 2023 til samþykktar
Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðis bs, dags. 18.10.2022, lögð fram til samþykktar gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. 2023.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum gjaldskrá SHS fyrir árið 2023.
Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
3.11 - 2210283 - Aðalskipulag Kópavogs. Fyrirspurn frá Skipulagstofnun.
Lögð fram fyrirspurn frá Skipulagsstofnun dags. 10. október 2022 um áform um endurskoðun aðalskipulags og gerð eða endurskoðun svæðisskipulags.
Jafnframt lagt fram minnisblað skipulagsdeildar dags. 12. október 2022.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að ekki sé ástæða til heildarendurskoðunar Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040 með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Helgu Jónsdóttur.
Gildandi aðalskipulag er í megindráttum í takt við tímann og í samræmi við aðrar áætlanir. Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Hákon Gunnarsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum, gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Telmu Bergmann, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
3.5 - 2012282 - Vesturvör 36. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju tillaga Hauks Ásgeirssonar byggingarverkfræðings dags. í nóvember 2020 f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulag á lóðinni nr. 36 við Vesturvör. Í breytingunni felst að byggðar verði viðbyggingar við austur- og vesturhlið núverandi húss á lóðinni, hvor um sig 546, 25 m² að flatarmáli. Heildaraukning byggingarmagns á lóðinni yrði samtals 1.092,5 m². Fjöldi bílastæða og fyrkomulag breytist og gert er ráð fyrir breyttri aðkomu að bílstæðum á norðurhluta lóðar. Frágangur á lóðarmörkum breytist. Erindinu fylgja uppdrættir í mælikvarða 1:500 dags. í apríl 2021 og í nóvember 2020.
Þá lagðar fram skýringarmyndir dags. 12. september 2022.
Á fundi skipulagsráðs 3. maí 2021 var samþykkt að hafin yrði vinna við endurskoðun deiliskipulags á svæðinu.
Skipulagsráð hafnar framlagðri tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum og hafnar tillögunni.
- TILLAGA 2 30 APR 21
- VESTURVÖR 36_FYRIR OG EFTIR STÆKKUN
- 2020 11 14 Vesturvör 36 stækkun tillaga 2 teikning 6
- 2020 11 14 Vesturvör 36 Stækkun tillaga 2 teikning 5
- 2020 11 14 Vesturvör 36 Stækkun tillaga 2 teikning 4
- 2020 11 19 Vesturvör 36 tillaga Stækkun til vesturs teikning 3
- Nýtingarhlutfall-íbúðarfjöldi-nágrenis
- 2012282 - Glærur skipulagsráð 129
3.6 - 2207192 - Aflakór 12. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Brynhildar Sólveigardóttur arkitekts f.h. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi Rjúpnahæðar, Austurhluta sem samþykkt var í bæjarráði 7. september 2006 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 9. október 2006. Breytingin nær aðeins til lóðarinnar Aflakórs 12.
Í breytingunni felst að núverandi byggingarreitur er stækkaður til norðvesturs að hluta til um 2,5 metra. Gert er ráð fyrir að hluti núverandi verandar á norðvestur hlið húss verði lokað með gleri og þakkantur framlengdur.
Við þessar breytingar eykst byggingarmagn íbúðarhússins úr 395,8 m² í 416,1 m² og nýtingarhlutfall verður 0.5 í stað 0.48.
Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulag fyrir Rjúpnahæð - austurhluta með síðari breytingu samþykkta í bæjarráði 31. júlí 2007 og birt í B- deild Stjórnartíðinda 27. september 2007.
Meðfylgjandi er deiliskipulagsuppdráttur í mkv. 1:2000 ásamt skýringarmynd í mkv. 1:200 dags. 1. september 2022.
Á fundi skipulagsráðs 5. september 2022 var samþykkt með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum í Aflakór 1-20.
Kynningartíma lauk 10. október 2022, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Bæjarstjórn samþykkir að fresta framlagningu fundargerðarinnar.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Bæjarstjórn samþykkir að fresta framlagningu fundargerðarinnar.
Fundargerð 98. fundar Markaðsstofu Kópavogs frá 06.10.2022
Lagt fram.
Fundargerð 913. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.09.2022
Fundargerð 39. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 03.10.2022
Lagt fram.
Fundargerð 110 fundar svæðisskipulagsnefndar frá 14.10.2022
Lagt fram.
Fundargerð 545. fundar stjórnar SSH frá 03.10.2022
Lagt fram.
Fundargerð 470. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 26.08.2022
Lagt fram.
Fundargerð 471. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 23.09.2022
Lagt fram.
Fundargerð 472. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 29.09.2022
Lagt fram.
Fundargerð 406. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 12.10.2022
Lagt fram.
Fundargerð 360. fundar stjórnar Strætó frá 16.09.2022
Lagt fram.