Bæjarstjórn - 1145. fundur
í bæjarstjórnarsal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
- Ása Richardsdóttir - aðalfulltrúi
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllKaren Elísabet S Halldórsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalmaðurBoðaði forföllÓlafur Þór Gunnarsson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
- Sverrir Óskarsson - aðalmaðurBoðaði forföllSverrir Óskarsson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Til fundarins er boðað sem aukafundar með vísan til 2. mgr. 28. gr. bæjarmálasamþykktar fyrir Kópavogsbæ.
Dagskrá fundar
Frá kjörstjórn, dags. 26. október, lögð fram kjörskrá í Kópavogi með áorðnum breytingum vegna alþingiskosninga þann 29. október 2016. Einnig lögð fram breyting á skipan í undirkjörstjórnir vegna alþingiskosninganna, dags. 27. október sl.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum framlagða kjörskrá í Kópavogi með áorðnum breytingum og samþykkir með 10 atkvæðum breytingar á skipan í undirkjörstjórnir.
Jafnframt samþykkir bæjarstjórn einróma að fela bæjarstjóra umboð til að úrskurða um vafaatriði er varða kjörskrá í Kópavogi eða önnur atriði er upp kunna að koma vegna alþingiskosninga þann 29. október 2016. Þá samþykkir bæjarstjórn að veita bæjarstjóra umboð til að gera breytingar á skipan í undirkjörstjórnir ef upp koma forföll á kjördag.