Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1325. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir
    Boðaði forföll
    Theódóra S Þorsteinsdóttir
    Sat fundinn í staðinn
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Bæjarráð - 3224. fundur frá 28.08.2025

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 3225. fundur frá 04.09.2025

Fundargerð í 13 liðum.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 18:01, fundi fram haldið kl. 18:32


Bókun af fundi bæjarráðs 4.9 undir lið 2:

Í umræðu um framkvæmdir í miðbæ hefur verið skýr samstaða um að byggingarleyfi verði ekki veitt nema fyrir liggi fullnægjandi lausnir sem tryggja aðgengi allra, sbr. bókun meirihlutans 3. júlí sl.

Svarið sem nú er lagt fyrir fundinn byggist annað hvort á misskilningi eða vísvitandi útúrsnúningi. Fyrirspurn okkar er skýr og lýtur að aðgengi hreyfihamlaðra að byggingum í Fannborg á framkvæmdatíma. Ósk okkar var um sundurliðaðar upplýsingar fyrir hvern fasa fyrirhugaðrar uppbyggingar um fjarlægðir í metrum frá bílastæðum hreyfihamlaðra að aðalinngangi hverrar byggingar.

Svarið sem bæjarráð fær frá umhverfissviði er drög að aðgengisáætlun sem gera verði ráð fyrir að taki breytingum milli framkvæmdafasa. Engar vegalengdir eru málsettar og engin leið er að gera sér grein fyrir fjarlægð frá bílastæðum að aðalinngangi bygginga.

Við óskuðum eftir staðfestingu á að sérmerkt bílastæði hreyfihamlaðra verði ekki fjær en 25 m. frá aðalinngangi heimilis og þjónustustofnana eins og áskilið er í 1. mgr. 6.2.4. gr. byggingarreglugerðar. Vangaveltur um nýjar byggingar, gamlar byggingar, byggingar sem á að rífa eða byggingar sem fá að standa eiga ekkert erindi í svar við fyrirspurn okkar. Hreyfihamlaðir eiga einfaldlega tilkall til þess að fjarlægðin sé innan 25 metra meðan á áralöngum framkvæmdum á reitnum stendur.

Við hljótum að krefjast þess að fá án dráttar svar við fyrirspurn sem réttur okkar stendur til að fá skýrt og skilmerkilega.

Bergljót Kristinsdóttir

Einar Örn Þorvarðarson

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir


Bókun af fundi bæjarráðs 4.9 undir lið 2:

"Það er óásættanlegt og bæjarfulltrúum minnihlutans til minnkunar að væna starfsmenn bæjarins um útúrsnúning þegar þeir eru að sinna störfum sínum af ábyrgð og fagmennsku. Í fyrirliggjandi aðkomuáætlun er skýrt tekið fram að aðgengi og fjarlægðir að bílastæðum fyrir hreyfihamlaða verði sambærilegar og nú er. Þetta var ítarlega rakið og staðfest á fundi skipulags- og umhverfisráðs við afgreiðslu byggingaráforma. Gerð er krafa um að framkvæmdaraðilar uppfylli kröfur um fullnægjandi aðgengi á framkvæmdatíma og skuldbindi sig til að aðlaga aðgengið að þörfum hreyfihamlaðra í hverjum áfanga verksins. Fjarlægðir bílastæða fyrir hreyfihamlaða hafa verið kynntar og rökstuddar ítarlega í fylgigögnum byggingaráforma. Aðgengisáætlun og fjöldi bílastæða fyrir hreyfihamlaða verða aðlagaðar að þörfum íbúa eins og kostur er á meðan á framkvæmd stendur. Þá skal áréttað að farið verður eftir byggingarreglugerð, gildandi lögum og reglum á öllum stigum framkvæmdatíma."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Vignir Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Elísabet Sveinsdóttir



Bókun við lið 2 í fundargerð bæjarráðs frá 4.9.2025:

"Það er óviðunandi með öllu að kjörnir fulltrúar fái ekki skýrt svar við skýrri fyrirspurn sem beint er til stjórnsýslunnar. Svar umhverfissviðs fól alls ekki í sér þær upplýsingar sem um var beðið. Ætti öllum þó að vera ljóst hvað felst í spurningu um fjarlægð í metrum talið og skiptingu á mismunandi fasa verks. Upplýsingar um þetta efni hafa m.a. verið kynntar á fundi notendaráðs í málefnum fatlaðs fólks þannig að þær liggja þegar fyrir hjá stjórnsýslunni. Sorglegur skortur á skilningi á réttindum og skyldum bæjarfulltrúa og ráðinna starfsmanna kemur fram í bókun meirihlutans um að það sé óásættanlegt og bæjarfulltrúum minnihlutans til minnkunar að væna starfsmenn bæjarins um útúrsnúning í svarinu sem lagt var fyrir. Það er bæjarstjóra til minnkunar að undirrita bókunina og þar með fullyrðingu um að svar umhverfissviðsins hafi verið unnið af ábyrgð og fagmennsku. Það er nefnilega ábyrgð bæjarstjóra að sjá til þess að mál stjórnsýslunnar sem lögð eru fyrir bæjarráð séu vel undirbúin og upplýsandi."

Bergljót Kristinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Kolbeinn Reginsson

María Ellen Steingrímsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir


Bókun við lið 2 í fundargerð bæjarráðs frá 4.9.2025:

"Bæjarfulltrúar bera sameiginlega ábyrgð á málefnalegri umræðu og virðingu í samskiptum, bæði sín á milli og við starfsmenn bæjarins og það er ekki umræðunni til framdráttar að draga í efa heiðarleika eða fagmennsku þeirra sem sinna störfum fyrir bæinn. Bæjarfulltrúar hafa fullan rétt á því að finnast svör starfsmanna ófullnægjandi og þá er hægt að óska eftir frekari upplýsingum. Ásakanir minnihlutans á hendur starfsmönnum um vísvitandi útúrsnúning eru ómaklegar og óásættanlegar að mati meirihlutans."

Andri S. Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Björg Baldursdóttir

Elísabet B. Sveinsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Orri V. Hlöðversson



2.4 - 2509080 - Úthlutun lóða Skyggnishvarf 13-17

Tillaga að úthlutun lóða til Fjallasólar ehf.

Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum og hjásetu Einars Arnars Þorvarðarsonar og Helgu Jónsdóttur framlagða tillögu að úthlutun Skyggnishvarfs 13-17 til Fjallasólar ehf. og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Maríu Ellenar Steingrimsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur úthlutun að lóðunum Skyggnishvarfi 13-17 til Fjallasólar ehf.



2.5 - 2509081 - Úthlutun lóða Skyggnishvarf 19-23

Tillaga um úthlutun lóða til Fjallasólar ehf.

Bæjarráð samþykkir með tveimur atkvæðum og hjásetu Einars Arnars Þorvarðarsonar og Helgu Jónsdóttur framlagða tillögu að úthlutun Skyggnishvarfs 19-23 til Fjallasólar ehf. og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Maríu Ellenar Steingrimsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur úthlutun að lóðunum Skyggnishvarfi 19-21 til Fjallasólar ehf.



2.9 - 2509171 - Samningur sveitarfélaganna og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins

Frá SSH, dags. 01.09.2025, lögð fram drög að sameiginlegum samningi sveitarfélaganna og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins vegna áranna 2026-2028 og er skrifstofu SSH falið að senda þau til afgreiðslu á vettvangi sveitarfélaganna.

Bæjarráð samþykkir framlögð drög að sameiginlegum samningi sveitarfélaganna og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins vegna áranna 2026-2028 og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlögð drög að sameiginlegum samningi sveitarfélaganna og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins vegna áranna 2026-2028.


03

Velferðar- og mannréttindaráð - 7. fundur frá 25.08.2025

Fundargerð í níu liðum.

Lagt fram.

04

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 5. fundur frá 28.08.2025

Fundargerð í níu liðum.

Lagt fram.

05

Menntaráð - 147. fundur frá 02.09.2025

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

06

Skipulags- og umhverfisráð - 13. fundur frá 01.09.2025

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.


6.7 - 25032174 - Digranesvegur 15. Kópavogsskóli. Nýtt deiliskipulag.

Lögð fram tillaga umhvefissviðs að deiliskipulagslýsingu dags. 29. ágúst 2025, sbr. 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir nýtt deiliskipulag Kópavogsskóla að Digranesvegi 15. Fyrirhugað deiliskipulagssvæði er um 2,2 ha að flatarmáli og afmarkast af skipulagsmörkum deiliskipulags miðbæjar Kópavogs reiti B1-1, B4, B2 og B1-3 til vesturs, skipulagsmörkum deiliskipulags leikskóla við Skólatröð og að lóðarmörkum Vallartraðar 2, 6, 8 og 10 ásamt lóðamörkum Skólatraðar 1, 3, 5, 7, 9 og 11 til norðurs, skipulagsmörkum deiliskipulags Traðarreitar eystri til austurs og að lóðamörkum Digranesvegar 15 til suðurs.
Elín Mjöll Lárusdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.

Samþykkt með vísan til 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulagslýsing verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.


07

Innkaupanefnd - 6. fundur frá 01.09.2025

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

08

Fundargerð 36. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 25.08.2025

Fundargerð 36. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 25.08.2025.

Lagt fram.

09

Fundargerð 409. fundar stjórnar Strætó frá 15.08.2025

Fundargerð 409. fundar stjórnar Strætó frá 15.08.2025.

Lagt fram.