Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1201. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Margrét Friðriksdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

01

Bæjarráð - 2969. fundur frá 12.09.2019

Fundargerð í 20 liðum.

Lagt fram.


1.1 - 1909161 - Tónahvarf 12. Umsókn um lóð undir atvinnuhúsnæði

Frá bæjarlögmanni, dags. 9. september, lögð fram umsókn um lóðina Tónahvarf 12 frá Byggingarfélaginu Bestlu ehf. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að úthluta lóðinni Tónahvarfi 12 til Byggingarfélags Bestlu ehf.


02

Bæjarráð - 2970. fundur frá 19.09.2019

Fundargerð í 15 liðum.

Lagt fram.

03

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 274. fundur frá 30.08.2019

Fundargerð í 11 liðum

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum

04

Barnaverndarnefnd - 95. fundur frá 05.09.2019

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

05

Fundargerð 18. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 26.08.2019

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

06

Fundargerð 19. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.09.2019

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

07

Forsætisnefnd - 142. fundur frá 19.09.2019

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.


7.2 - 1806578 - Ungmennaráð Kópavogs - erindisbréf

Erindisbréf ungmennaráðs og þóknun fyrir fundarsetu.

Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að leggja til við bæjarstjórn að greitt verði 1% af viðmiðunarfjárhæð greiðslna til kjörinna fulltrúa fyrir setinn fund í ungmennaráði Kópavogs. Greitt verði að hámarki fyrir sex fundi á ári.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu forsætisnefndar með 11 atkvæðum.


08

Fundargerð 128. fundar framkvæmdastjórnar vatnsverndarsvæða

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

Bæjarstjórn samþykkti eftirfarandi ályktun með 11 atkvæðum:

"Bæjarstjórn Kópavogs tekur undir bókanir og tillögur framkvæmdastjórnar um vatnsvendarsvæði höfuðborgarsvæðisins sem fram komu á fundi þann 4. september síðastliðinn er varða mengunarhættu gagnvart vatnsbólum höfuðborgarsvæðisins."

09

Lista- og menningarráð - 104. fundur frá 12.09.2019

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

10

Menntaráð - 46. fundur frá 03.09.2019

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

11

Skipulagsráð - 58. fundur frá 16.09.2019

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

12

Fundargerð 872. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 21. júní 2019

Fundargerð í 19 liðum.

Lagt fram.

13

Fundargerð 873. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. ágúst 2019

Fundargerð í 38 liðum.

Lagt fram.

Karen Halldórsdóttir og Guðmundur Geirdal lögðu fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð vilja taka undir eftirfarandi bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga um urðunarskatt:

"Stjórnin telur að frumvarp um urðunarskatt sé ótímabært, óútfært og án nauðsynlegrar tengingar við stefnumótun í úrgangsmálum og loftslagsmálum.

Stjórnin leggst því eindregið gegn því að frumvarp um urðunarskatt verði lagt fram á haustþingi og kallar eftir víðtæku samráði um mögulega útfærslu slíkrar skattheimtu áður en ákvörðun er tekin um lagabreytingar."

Guðmundur Gísli Geirdal, Karen Elísabet Halldórsdóttir"

14

Fundargerð 474. fundar stjórnar SSH frá 02.09.2019

Fundargerð í 7 liðum.

Lagt fram.

15

Velferðarráð - 49. fundur frá 09.09.2019

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.


15.5 - 1901896 - Endurskoðun á reglum um ferðaþjónustu fatlaðra

Drög að reglum lögð fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks með 11 atkvæðum.



15.6 - 1905602 - Endurskoðun á reglum um akstursþjónustu aldraðra

Drög að reglum lögð fram til afgreiðslu.

Velferðarráð samþykkti reglurnar fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur um akstursþjónustu aldraðra með 11 atkvæðum.



15.8 - 16082183 - Reglur um félagslega heimaþjónustu. Breyting á 2.gr.

Lögð fram tillaga deildarstjóra dags. 2. september 2019 um reglubreytingu.

Velferðarráð samþykkti breytingatillöguna fyrir sitt leyti. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur um félagslega heimaþjónustu með 11 atkvæðum.