Bæjarstjórn - 1204. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi
- Elvar Páll Sigurðsson - varafulltrúi
Starfsmenn
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2020 og tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun 2021-2023.
Kl. 17:50 vék Pétur Hrafn Sigurðsson af fundi og tók Elvar Páll Sigurðsson sæti hans.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa tillögu að fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára fjárhagsáætlun 2021-2023 til seinni umræðu.
Hlé var gert á fundi kl. 18:10. Fundi var fram haldið kl. 18:40.
Fundargerð í 30 liðum.
Lagt fram.
2.22 - 1910481 - Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. til samþykktar
Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, dags. 18. október, lögð fram til samþykktar gjaldskrá fyrir slökkviliðið.
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða gjaldskrá með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
4.2 - 1907192 - Þjónusta við íbúa við Kópavogsbraut 5a.
Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 1. nóvember, lögð fram drög að samningi við félagsmálaráðuneytið vegna yfirfærslu þjónustu við fjóra einstaklinga til heimilis að Kópavogsbraut 5a.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan samning við félagsmálaráðuneytið vegna yfirfærslu á þjónustu að Kópavogsbraut 5a.
Bæjarráð vísar erindi skipulagsráðs um nýtingu lóðanna Kleifakór 2 og 4 undir heimili fyrir fatlaða einstaklinga til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að lóðirnar Kleifakór 2 og 4 verði nýttar undir heimili fyrir fatlaða.
Fundargerð í 16 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 13 liðum
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 41 lið.
Lagt fram.
Fundargerð 8 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
12.7 - 1909105 - Desjakór 2. Stækkun lóðar. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi lóðarhafa Desjakórs 2 dags. 14. ágúst 2019 þar sem óskað er eftir stækkun lóðar til austurs og suðurs og reisa skjólgirðingu. Á fundi skipulagsráðs 7. október var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Desjakórs 1 og Dofrakórs 1. Lóðarhafi Desjakórs 2 skilaði inn undirrituðu samþykki lóðarhafa Desjakórs 1 og Dofrakórs 1 og því er kynningartími styttur. Uppdráttur í mkv. 1:200 og 1:2000 dags. 3. september 2019.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.
13.6 - 1907412 - Álmakór 9b. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Ríkharðs Oddsonar, byggingafræðings fh. lóðahafa að breyttu deiliskipulagi Álmakórs 9b. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir viðbyggingu til suður um 34 m2. Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. í júlí 2019. Á fundi skipulagsráðs 29. júlí 2019 var samþykkt með tilvísa til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/210 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Álmakórs 7a, 7b, 9a, 17a og 17b. Kynningartíma lauk 25. október 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
13.7 - 1910387 - Lækjasmári 114 og 116. Breytt staðföng.
Lagt fram erindi Gunnars Más Karlssonar, deildastjóra eignadeildar Kópavogsbæjar þar sem lagt er til að staðföngum lóðanna Lækjasmári 114 og 116 verði breytt í Dalsmári 23 og 25. Á lóðunum Dalsmári 21 og Lækjasmári 114 og 116 er leikskólinn Lækur. M.a. vegna aðkomu neyðarbíla er nauðsynlegt að samræma lóðarheitin og verði eftir breytingu Dalsmári 21, 23 og 25.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
13.8 - 1910460 - Fagraþing 1 og Glæsihvarf 4. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram tillaga Jakobs Líndal arkitekts dags. 16. október 2019 fh. lóðarhafa Fagraþings 1 og Glæsihvarfs 4 þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi. Í tillögunni felst að þessar tvær samliggjandi lóðir verði deilt upp í 3 lóðir. Glæsihvarf 4 er í dag óbyggð lóð en á Fagraþingi 1 er 186 m2 einbýlishús úr timbri, byggt 1999. Til samans eru þessar tvær lóðir 4235 m2. Gert er ráð fyrir að reisa tvö ný einbýlishús á lóðunum, bæði um 300 m2 á tveimur hæðum. Uppdrættir og lóðablað í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum.
Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 25 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 7. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.