Bæjarstjórn - 1207. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Fundargerð í 22 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 22 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 13 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 14 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 17 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 69 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 42 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
15.2 - 2001022 - Bláfjöll. Skíðasvæði. Framkvæmdaleyfi.
Lögð fram umsókn Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, greinargerð VSÓ; Endurbætur á skíðasvæðinu í Bláfjöllum, umsókn um framkvæmdaleyfi dags. í desember 2019. Þá lögð fram tillaga skipulagsstjóra að leyfi fyrir framkvæmdum á skíðasvæði Bláfjalla. Fyrirhugaðar framkvæmdir felast í landmótun, uppsetningu á lausum lögnum og girðingum og aðrar framkvæmdir sem unnar eru samhliða reisingu á nýjum skíðalyftum Gosa og Drottningu. Skíðalyftur samanstanda af undirstöðum, möstrum, línum, stólum, neðri og efri stjórnhúsum og stólageymslu. Einnig framkvæmdir sem tengjast uppsetningu snjóframleiðslubúnaðar, gerð borplans, miðlunarlóns og uppsetningu á lögnum og snjóbyssum. Framkvæmdirnar eru í samræmi við deiliskipulag skíðasvæðisins í Bláfjöllum samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs 25. september 2018. Í framkvæmdaleyfinu koma fram þau hönnunargögn og önnur gögn sem framkvæmdaleyfið byggir á sem og skilyrði og skilmálar leyfisveitenda.
Skipulagsráð samþykkir tillöguna. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
- Bláfjöll Framkvæmdaleyfi umsókn 191220
- Framkvæmdaleyfi_Skíðasvæði (003) Breytt 2.1.20
- 15239-BF-LL-F-Y-01
- 14347-191220 Purchase of ski-lifts for The Reykjavik Capital Area Ski-Areas
- 14348-191220-Purchase of snow-making equipment for The Reykjavik Capital Area Ski-Areas
- 19154_Verklagsreglur Bláfjöll_júlí2019
- a) afturköllun kæru
15.4 - 1901120 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040. Breytt vaxtamörk á Álfsnesi.
Lagt fram erindi Hrafnkels Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóra dags. 30. desember 2019 og varðar breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 þar sem vaxtamörk á Álfsnesi eru færð út. Umrædd tillaga að breytingu á svæðisskipulagi ásamt umhverfisskýrslu var auglýst 30. ágúst 2019. Frestur til athugasemda og ábendinga var til 11. október 2019. Samhliða breytingunni var jafnframt kynnt breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur 2030; nýtt deiliskipulag fyrir Álfsnesvík ásamt frummatsskýrslu vegna nýrrar staðsetningar Björgunar á Álfsnesi. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma. Að lokinni kynningu var umrædd breyting á svæðisskipulaginu lögð fyrir að nýju í svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins 29. nóvember 2019 ásamt framkomnum athugasemdum og ábendingu og viðbrögðum svæðisskipulagsnefndar við þeim. Frá auglýstri tillögu hefur verið bætt við fyllri umsögn í umhverfisskýrslu um áhrif á hljóðvist, umfjöllun um þætti sem geta haft áhrif á fok sem og umfjöllun um útivistarsvæði. Þá hefur verið leiðrétt misritun um stækkunarmöguleika lóðar Björgunar í Álfsnesvík. Að öðru leyti kalla umsagnir ekki á breytingu á skipulagstillögum eða umhverfisskýrslu vegna svæðisskipulagsins. Svæðisskipulagsnefnd samþykkti tillöguna og vísaði henni til afgreiðslu aðildarsveitarfélaga SSH.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 2. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
- A1234-088-U01_Svædisskipulag-VaxtarmorkAlfsnes-tillaga-í-augl-m
- Bæjarstjórn - 1188 (22.1.2019) - Samþykkt tillaga að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins við Álfsnes. Óskað eftir afgreiðslu aðildarsveitarfélaga
- 1. A1234-100-U01-Svæðisskipulag-VaxtarmörkÁlfsnes-til staðfestingar
- 2. A1234-101-D02-Álfsnes-Umhverfisskýrsla til staðfestingar
- 3. A1234-103-U01-Svæðisskipulag-umsagnir og svör
- 4. Umsagnir-7
- Lokaafgreiðsla á breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 -KÓP
15.5 - 1910605 - Nýbýlavegur 32. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Einars Ólafssonar arkitekts dags. 25. júlí 2019 fh. lóðarhafa Nýbýlavegar 32. Í erindinu er óskað eftir að breyta þriðju hæð hússins úr iðnaðarhúsnæði í íbúðarhúsnæði og koma fyrir fjórum íbúðum á hæðinni. Byggt verður yfir svalir að hluta svo gólfflöturinn stækkar um 39,9 m2 og komið fyrir nýjum stiga á suður hlið hússins, Dalbrekkumegin. Gólfflötur þriðju hæðar er í dag 171,1 m2 en verður 211 m2 eftir breytingu. Íbúðirnar fjórar verða 61 m2, 51 m2, 50 m2 og 49 m2. Á fundi skipulagsráðs 18. nóvember 2019 var samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Nýbýlavegar 30 og Dalbrekku 27, 29, 54, 56 og 58. Kynningartíma lauk 18. desember 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartímanum.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
15.6 - 1811314 - Dalaþing 36. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts dags. 10. október 2018 fh. lóðarhafa Dalaþings 36 þar sem óskað er eftir að byggja opið garðskýli á suðurhluta lóðarinnar og breyta skráningartöflu. Á fundi skipulagsráðs 19. nóvember 2018 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Dalaþings 15, 26 a og b, 27 og 34. Kynningu lauk 18. desember 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartímanum.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
15.9 - 1910451 - Bakkabraut 7a. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Sigurðar Hafsteinssonar byggingatæknifræðings dags. 9. ágúst 2019 fh. lóðarhafa Bakkabrautar 7a þar sem óskað er eftir leyfi til að breyta skráningu á 121 m2 rými neðri hæðar úr iðnaðarhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Á fundi skipulagsráðs 4. nóvember 2019 var samþykkt að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Bakkabrautar 5a til 5e og Bakkabrautar 7b til 7d. Kynningartíma lauk 20. desember 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartímanum.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson greiðir atkvæði gegn erindinu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 9 atkvæðum og hjásetu Karenar E. Halldórsdóttur og mótatkvæði Guðmundar G. Geirdal.
Fundargerð í 43 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 8 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram og kynnt.
Fundargerð í 8 liðum
Lagt fram.
Jón Magnús Guðjónsson kjörinn varamaður í stað Bergljótar Kristinsdóttur.