Bæjarstjórn - 1346. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - forseti
- Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalmaðurBoðaði forföllKristinn Jakobsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Hildur Einarsdóttir - aðalfulltrúi
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaðurBoðaði forföllBjörg Baldursdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Einar Jóhannes Guðnason - 1. varaforseti
- Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
- Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
- María Ellen Steingrímsdóttir - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Fundargerð í 28 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 20 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
3.7 - 2610657 - Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. 2027 til samþykktar
Frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, dags. 02.10.2026, lögð fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar gjaldskrá fyrir árið 2027.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða gjaldskrá og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða gjaldskrá SHS.
3.8 - 26093698 - Bókun 148. fundar svæðisskipulagsnefndar. Starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar 2027
Frá SSH, dags. 30.09.2026, lögð fram til samþykktar bæjarráðs tillaga að fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar fyrir árið 2027 og starfsáætlun nefndarinnar haustið 2026 og vorið 2027.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu að fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar fyrir árið 2027 og starfsáætlun nefndarinnar haustið 2026 og vorið 2027. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða gjaldskrá Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins, ásamt starfsáætlun.
Fundargerð í tíu liðum.
Lagt fram.
4.2 - 26092155 - Silfursmári 1-7. Breytt aðalskipulag. Skipulags- og matslýsing.
Lögð fram tillaga að sameiginlegri skipulags- og matslýsingu dags. 15. september 2026 vegna breytinga á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og breytinga á deiliskipulagi Silfursmára 1-7 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi þar sem til stendur að hækka hámarks hæðir húsa í allt að 10 hæðir, efsta inndregin, og breytingar á deiliskipulagi þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum, auka við heimilt byggingarmagn, breyta fyrirkomulagi og hæðum bygginga og bæta torgsvæði og tengingar við og um svæðið.
Samþykkt með vísan til 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulags- og matslýsing dags. 15. september 2026 verði auglýst með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar, Kristins Dags Gissurarsonar gegn atkvæðum Eydísar Ingu Valsdóttur og Orra Thors Eggertssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja hóflega og vandaða þéttingu byggðar, en telja fyrirliggjandi áform um allt að 10 hæða byggingar við Silfursmára ganga of langt. Þétting byggðar þarf að vera í samhengi við nærumhverfið og taka eðlilegt tillit til hagsmuna og væntinga þeirra íbúa sem þar búa, en ekki hafa verið færð knýjandi rök fyrir nauðsyn á aukningu byggingarmagns. Fyrir liggur að breytingarnar eru ekki gerðar í sátt við íbúa á svæðinu sem fjárfestu í íbúðum sínum á grundvelli gildandi skipulags sem er annars nýtt af nálinni. Núverandi deiliskipulag gerir ráð fyrir 2-4 hæða húsum á sama svæði og telja undirrituð ekki rök liggja fyrir í málinu til að bregða frá því, þótt að breytt deiliskipulag kunni að vera til bóta að öðru leyti.“
Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.
Bókun:
„Fulltrúi Viðreisnar styður við markmið skipulagsbreytinga í Silfursmára 1-7 þar sem, meðal annars, grænu og lifandi svæði er gert hærra undir höfði, en lýsir áhyggjum af aukningu á byggingarmagni í fyrirhuguðum breytingum og áhrifum þeirra á nærliggjandi byggð. Mikilvægt er að hafa í huga að íbúar hafa keypt húsnæði á svæðinu í góðri trú út frá gildandi skipulagi og mikilvægt er að tekið sé tillit til þeirra forsendna við áframhaldandi vinnslu málsins. Leggja þarf sérstaka áherslu á vandaða auglýsingu og kynningu þar sem skýrt kemur fram hvernig tillagan víkur frá gildandi skipulagi og hvaða áhrif breytingarnar hafa á nærumhverfið. Tryggja þarf samráð við íbúa, taka athugasemdir þeirra til efnislegrar skoðunar og gera grein fyrir því hvernig brugðist er við þeim áður en skipulag er samþykkt.“
Pétur Björgvin Sveinsson.
Bókun:
„Við teljum að þær breytingar sem hér eru lagðar til á aðal- og deiliskipulagi séu til þess fallnar að styðja enn frekar svæðiskjarnann í Smáranum og tengja hverfið betur við Smáralindina með byggð og torgsvæðum. Það er mikilvægt að við áframhaldandi vinnu og kynningu sé gerður skýr samanburður bæði við gildandi skipulag og þá tillögu sem áður var kynnt. Gert er ráð fyrir að aukning byggingarmagns sé minna en var gert ráð fyrir þegar bæjarstjórn samþykkti skipulagslýsinguna í ágúst 2025 en á kynningartímanum bárust 59 athugasemdir og hafa verið gerðar breytingar á tillögunni sem snúa beint að mörgum þeirra athugasemda sem þar komu fram. Þannig er byggingarmagn dregið saman um 2.500 m² frá fyrri útfærslu, sem er um fjórðungi minni aukning í byggingarmagni en fyrri tillaga gerði ráð fyrir, og gert ráð fyrir lækkun húsa, bæði næst byggð og í hærri húsunum tveimur, bæði með fækkun hæða en einnig með lækkun lofthæða þannig að hámarkshæð húsanna lækkar enn frekar. Við teljum að við áframhaldandi útfærslu þurfi sérstaklega að rýna bílastæðamál, m.a. með það að markmiði að fjölga bílastæðum í bílakjallara.“
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 7 atkvæðum gegn atkvæðum Einars Jóhannesar Guðnasonar, Jónasar Más Torfasonar og Eydísar Ingu Valsdóttur og hjásetu Maríu Ellenar Steingrímsdóttur.
4.3 - 26092156 - Silfursmári 1-7. Breytt deiliskipulag. Skipulags- og matslýsing.
Lögð fram tillaga að sameiginlegri skipulags- og matslýsingu dags. 15. september 2026 vegna breytinga á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og breytinga á deiliskipulagi Silfursmára 1-7 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi þar sem til stendur að hækka hámarks hæðir húsa í allt að 10 hæðir, efsta inndregin, og breytingar á deiliskipulagi þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum, auka við heimilt byggingarmagn, breyta fyrirkomulagi og hæðum bygginga og bæta torgsvæði og tengingar við og um svæðið.
Ingvi Jónasson framkvæmdastjóri Klasa og Halldór Eiríksson arkitekt hjá T.ark gerðu grein fyrir tillögunni. Sólveig Jóhannsdóttir, þróunarstjóri hjá Klasa, tók einnig sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt með vísan til 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulags- og matslýsing dags. 15. september 2026 verði auglýst með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar, Kristins Dags Gissurarsonar gegn atkvæðum Eydísar Ingu Valsdóttur og Orra Thors Eggertssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun:
„Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja hóflega og vandaða þéttingu byggðar, en telja fyrirliggjandi áform um allt að 10 hæða byggingar við Silfursmára ganga of langt. Þétting byggðar þarf að vera í samhengi við nærumhverfið og taka eðlilegt tillit til hagsmuna og væntinga þeirra íbúa sem þar búa, en ekki hafa verið færð knýjandi rök fyrir nauðsyn á aukningu byggingarmagns. Fyrir liggur að breytingarnar eru ekki gerðar í sátt við íbúa á svæðinu sem fjárfestu í íbúðum sínum á grundvelli gildandi skipulags sem er annars nýtt af nálinni. Núverandi deiliskipulag gerir ráð fyrir 2-4 hæða húsum á sama svæði og telja undirrituð ekki rök liggja fyrir í málinu til að bregða frá því, þótt að breytt deiliskipulag kunni að vera til bóta að öðru leyti.“
Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.
Bókun:
„Fulltrúi Viðreisnar styður við markmið skipulagsbreytinga í Silfursmára 1-7 þar sem, meðal annars, grænu og lifandi svæði er gert hærra undir höfði, en lýsir áhyggjum af aukningu á byggingarmagni í fyrirhuguðum breytingum og áhrifum þeirra á nærliggjandi byggð. Mikilvægt er að hafa í huga að íbúar hafa keypt húsnæði á svæðinu í góðri trú út frá gildandi skipulagi og mikilvægt er að tekið sé tillit til þeirra forsendna við áframhaldandi vinnslu málsins. Leggja þarf sérstaka áherslu á vandaða auglýsingu og kynningu þar sem skýrt kemur fram hvernig tillagan víkur frá gildandi skipulagi og hvaða áhrif breytingarnar hafa á nærumhverfið. Tryggja þarf samráð við íbúa, taka athugasemdir þeirra til efnislegrar skoðunar og gera grein fyrir því hvernig brugðist er við þeim áður en skipulag er samþykkt.“
Pétur Björgvin Sveinsson.
Bókun:
„Við teljum að þær breytingar sem hér eru lagðar til á aðal- og deiliskipulagi séu til þess fallnar að styðja enn frekar svæðiskjarnann í Smáranum og tengja hverfið betur við Smáralindina með byggð og torgsvæðum. Það er mikilvægt að við áframhaldandi vinnu og kynningu sé gerður skýr samanburður bæði við gildandi skipulag og þá tillögu sem áður var kynnt. Gert er ráð fyrir að aukning byggingarmagns sé minna en var gert ráð fyrir þegar bæjarstjórn samþykkti skipulagslýsinguna í ágúst 2025 en á kynningartímanum bárust 59 athugasemdir og hafa verið gerðar breytingar á tillögunni sem snúa beint að mörgum þeirra athugasemda sem þar komu fram. Þannig er byggingarmagn dregið saman um 2.500 m² frá fyrri útfærslu, sem er um fjórðungi minni aukning í byggingarmagni en fyrri tillaga gerði ráð fyrir, og gert ráð fyrir lækkun húsa, bæði næst byggð og í hærri húsunum tveimur, bæði með fækkun hæða en einnig með lækkun lofthæða þannig að hámarkshæð húsanna lækkar enn frekar. Við teljum að við áframhaldandi útfærslu þurfi sérstaklega að rýna bílastæðamál, m.a. með það að markmiði að fjölga bílastæðum í bílakjallara.“
Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 7 atkvæðum gegn atkvæðum Einars Jóhannesar Guðnasonar, Jónasar Más Torfasonar og Eydísar Ingu Valsdóttur og hjásetu Maríu Ellenar Steingrímsdóttur.
4.5 - 26043172 - Dalvegur 1. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.
Lögð fram skipulags- og matslýsing unnin af Kópavogsbæ dags. 17. september 2026 fyrir breytingu á aðal- og deiliskipulagi fyrir Dalveg 1. Fyrirhugað er að byggja upp verslunar- og þjónustuhúsnæði í góðum tengslum við Kópavogsdal í samræmi við tillögur Klasa þróunarfélags og Tendra arkitekta.
Samþykkt með vísan til 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulags- og matslýsing dags. 17. september 2026 verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundaegerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fimmtán liðum.
Lagt fram.
10
Fundargerð 48. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 28.09.26
Fundargerð 48. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.
Lagt fram.
Fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram.
Fundargerð 148. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar.
Lagt fram.
Fundargerð 633. fundar stjórnar SSH.
Lagt fram.
Fundargerð 282. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Lagt fram.
Fundargerð 283. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Lagt fram.