Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1332. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Kolbeinn Reginsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Bæjarráð - 3242. fundur frá 15.01.2026

Fundargerð í 14 liðum.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 3243. fundur frá 22.01.2026

Fundargerð í 12 liðum.

Lagt fram.

03

Leikskólanefnd - 176. fundur frá 15.01.2026

Fundargerð í þremur liðum.

Lagt fram.

04

Menningar- og mannlífsnefnd - 10. fundur frá 20.01.2026

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

05

Menntaráð - 155. fundur frá 20.01.2026

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

06

Skipulags- og umhverfisráð - 22. fundur frá 19.01.2026

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.

6.11 - 2508452 - Bakkabraut 9-23. Svæði 8. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram til afgreiðslu tillaga umhverfissviðs dags. 1. október 2025 að breytingu á deiliskipulagi Kársneshafnar fyrir lóðina nr. 9-23 við Bakkabraut, svæði 8 á þróunarsvæðinu á Kársnesi (ÞR-1). Í breytingunni felst breytt aðkoma að lóðinni, breytt fyrirkomulag bílastæða og djúpgáma. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 15. desember 2025 var tillögunni vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt minnisblaði frá skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2026.

Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.

6.4 - 25043169 - Silfursmári 1-7. Breyting á aðalskipulagi. Skipulagslýsing.

Lögð fram tillaga að sameiginlegri skipulags- og matslýsingu, dags. 16. janúar 2026, vegna breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og breytingar á deiliskipulagi fyrir Silfursmára 1-7 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi þar sem til stendur að hækka hámarks hæð húsa í allt að 11 hæðir, efsta inndregin, og breytingu á deiliskipulagi þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum, breyta fyrirkomulagi og hæðum bygginga og bæta torgsvæði og tengingar við og um svæðið. Lagt fram minnisblað dags. 16. janúar 2026.

Gunnar Sær Ragnarsson tók sæti á fundinum kl. 16:08.

Samþykkt að framlögð skipulags- og matslýsing verði kynnt með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Fundarhlé kl. 16:18, fundi framhaldið kl. 16:57.

Bókun:
„Skipulagsstofnun synjaði tillögu Kópavogsbæjar um að telja aðalskipulagsbreytinguna sem hér er til umfjöllunar óverulega. Í rökstuðningi stofnunarinnar kom fram að breytingin sé líkleg til að geta haft áhrif á hagsmuni íbúa og annarra hagsmunaaðila í nágrenninu. Í því ferli sem ógilt var gafst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum færi á að gera athugasemdir við deiliskipulagstillögu. Mikill fjöldi athugasemda barst m.a. um skort á greiningum og mælingum t.d. á aukningu byggingarmagns, fjölgun íbúða, vindálagi, umferðarmál og bílastæði, ófullnægjandi greiningu á grenndarhagsmunum og bent er á að meðalhóf skorti, ekki hafi verið gætt rannsóknarskyldu o.s.frv. Eftir að hafa kynnt okkur vel rökstuddar athugasemdir og málefnalegar áhyggjur íbúa telja undirrituð ekki koma til álita að kynna tillögu til breytingar á aðalskipulagi óbreytta. Við höfnum því.“
Helga Jónsdóttir, Hákon Gunnarsson, Andrés Pétursson og Indriði Ingi Stefánsson.

Bókun:
„Afstaða Skipulagsstofnunar gagnvart aðalskipulagsbreytingunni liggur fyrir og telur stofnunin breytinguna á aðalskipulagi ekki óverulega. Málið fer nú aftur í formlegt og gagnsætt skipulagsferli og verður tillagan því auglýst að nýju í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Þær ábendingar og athugasemdir sem bárust frá íbúum og hagsmunaaðilum í fyrra ferli eru málefnalegar og leggur meirihlutinn áherslu á að þessar athugasemdir muni nýtast við áframhaldandi vinnslu málsins og verða teknar til skoðunar í þeirri vinnu sem framundan er.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bæjarstjórn vísar málinu til leiðréttingar og nýrrar efnismeðferðar hjá skipulagsfulltrúa.

Fundarhlé hófst kl. 18:41, fundi fram haldið kl. 18:44

6.5 - 2411179 - Silfursmári 1-7. Breytt deiliskipulag. Skipulagslýsing.

6.9 - 25043616 - Nýbýlavegur 1. Breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.

Lögð fram að nýju tillaga skipulagsfulltrúa dags. 14. nóvember 2025 skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir lóðina nr. 1 við Nýbýlaveg. Í breytingunni felst að landnotkun á lóðinni verði breytt úr verslun og þjónustu í íbúðabyggð. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. nóvember 2025 var afgreiðslu frestað.

Fundarhlé kl. 17:33, fundi framhaldið kl. 18:06.

Samþykkt að framlögð skipulagslýsing verði kynnt með vísan til 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Andrésar Péturssonar, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun:
„Nýbýlavegur 1 er ein mikilvægasta og verðmætasta lóðin innan bæjarmarka Kópavogs. Fyrir liggur að breyta þarf landnotkun eða „tilgangi“ bygginga á lóðinni. Um það þarf Kópavogsbær að eiga viðræður við núverandi lóðarhafa og veghaldarann (Vegagerðina). Íbúar í grenndinni hafa sömuleiðis ríka hagsmuni af ákvörðun um ráðstöfun lóðarinnar og á raddir þeirra ber að hlusta. Það er ótímabært og gagnstætt hagsmunum íbúa og bæjarfélagsins að ákveða að þarna verði íbúabyggð eins og lagt er til í tillögunni. Við leggjumst gegn henni.“
Hákon Gunnarsson, Indriði Ingi Stefánsson, Helga Jónsdóttir og Andrés Pétursson.

Bókun:
„Núverandi svæði er í dag skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði en skipulagslýsingin gerir ráð fyrir að svæðið verði íbúðarbyggð. Meirihlutinn leggur áherslu á að vegtenging verði einungis frá Nýbýlavegi. Í skipulagsvinnu þarf að skoða byggingarheimildir, hæðir húsa og aðra skilmála varðandi frágang, ásýnd og gæði byggðar. Í kynningu á skipulagslýsingu gefst tækifæri til að eiga samráð við íbúana enda leggur meirihlutinn ríka áherslu á að skipulagsvinnan fari fram í góðri sátt.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum, gegn atkvæðum Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Indriða I. Stefánssonar, Helgu Jónsdóttur og Thelmu B. Árnadóttur.

07

Velferðar- og mannréttindaráð - 13. fundur frá 12.01.2026

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.

7.1 - 25122502 - Breytingar á reglum um útleigu félagslegra leiguíbúða vegna lagabreytinga

Tillögur að breytingum á reglum um félagslegar leiguíbúðir Kópavogsbæjar lagðar fram til afgreiðslu.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir tillögur að breytingum á reglum um félagslegar leiguíbúðir Kópavogsbæjar og vísar þeim áfram til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðar tillögur að breytingum á reglum um félagslegar leiguíbúðir Kópavogsbæjar.

08

Fundargerð 522. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 10.11.2025

Fundargerð 522. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 10.11.2025.

Lagt fram.

09

Fundargerð 523. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 10.12.2025

Fundargerð 523. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 10.12.2025.

Lagt fram.

10

Fundargerð 524. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 14.01.2026

Fundargerð 524. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 14.01.2026.

Lagt fram.

11

Fundargerð 413. fundar stjórnar Strætó frá 20.10.2025

Fundargerð 413. fundar stjórnar Strætó frá 20.10.2025.

Lagt fram.

12

Fundargerð 414. fundar stjórnar Strætó frá 22.10.2025

Fundargerð 414. fundar stjórnar Strætó frá 22.10.2025.

Lagt fram.

13

Fundargerð 415. fundar stjórnar Strætó frá 05.11.2025

Fundargerð 415. fundar stjórnar Strætó frá 05.11.2025.

Lagt fram.

14

Fundargerð 416. fundar stjórnar Strætó frá 14.11.2025

Fundargerð 416. fundar stjórnar Strætó frá 14.11.2025.

Lagt fram.

15

Fundargerð 417. fundar stjórnar Strætó frá 12.12.2025

Fundargerð 417. fundar stjórnar Strætó frá 12.12.2025.

Lagt fram.

16

Fundargerð 418. fundar stjórnar Strætó frá 17.12.2025

Fundargerð 418. fundar stjórnar Strætó frá 17.12.2025.

Lagt fram.

17

Fundargerð 419. fundar stjórnar Strætó frá 22.12.2025

Fundargerð 419. fundar stjórnar Strætó frá 22.12.2025.

Lagt fram.