Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1336. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Björg Baldursdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Björg Baldursdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Kolbeinn Reginsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Sigurbjörg E. Egilsdóttir varaforseti stýrði fundi í fjarveru Bjargar Baldursdóttur forseta bæjarstjórnar.

Dagskrá fundar

01

Bæjarráð - 3249. fundur frá 12.03.2026

Fundargerð i 20 liðum.

Lagt fram.


1.10 - 2603728 - Bókun 624. fundar stjórnar SSH. Almenningssamgöngur - þjónustusamningur og samstarfssamningur

Frá SSH, dags. 04.03.2026, lögð fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar, drög að þjónustusamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins við
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. Jafnframt eru fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi milli Strætó bs. og Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.

Kynning og umræður

Gestir viku af fundi kl. 9:49

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa drögum að þjónustusamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. til staðfestingar í bæjarstjórnar.

Jafnframt samþykkir bæjarráð með fimm atkvæðum að vísa drögum að samstarfssamningi milli Strætó bs. og Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum drög að þjónustusamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum drög að samstarfssamningi milli Strætó bs. og Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.



1.2 - 2602652 - Dalvegur 1. Lóðarvilyrði

Frá umhverfissviði, dags. 27.02.2026, lögð fram til samþykktar bæjarráðs drög
að lóðarvilyrði. Bæjarráð frestaði málinu þann 05.03.2026.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að vísa framlögðum drögum að lóðarvilyrði að Dalvegi 1 til Klasa ehf., til tveggja ára, til staðfestingar bæjarstjórnar með breytingum bæjarráðs.

Bæjarstjórn staðfestir með átta atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur framlögð drög að lóðarvilyrði að Dalvegi 1 til Klasa ehf., til tveggja ára.


02

Bæjarráð - 3250. fundur frá 19.03.2026

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.


2.1 - 2602909 - Loftslagsstefna innri reksturs Kópavogsbæjar

Frá umhverfissviði, lögð fram drög að loftlagsstefnu innri rekstrar Kópavogsbæjar. Lagt er til við bæjarráð að samþykkja sviðsmynd B. Jafnframt er lagt til að setja fram aðgerðaráætlun til tveggja ára í senn.
Kynning og umræður.

Gestur vék af fundi kl. 8.57.

Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 12.03.2026.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti með þremur atkvæðum og hjásetu Einars A. Þorvarðarsonar og Helgu Jónsdóttur framlögð drög og aðgerðaráætlun til tveggja ára og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Þórarins Ævarssonar drög að loftlagsstefnu innri rekstrar Kópavogsbæjar og aðgerðaráætlun til tveggja ára.

Bókun:
"Stefna höfuðborgarsvæðisins í loftslagsmálum frá september 2022 miðast við kolefnishlutleysi 2035. Þar er lögð áhersla á að eðli málsins samkvæmt sé útfærsla á stefnu og markmiðum í loftslagsmálum á ábyrgð hvers sveitarfélags fyrir sig, miklu fremur en samtaka sveitarfélaga. Aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda séu því hagkvæmari og árangursríkari sem fyrr er gripið til þeirra. Því þurfi að leggja allt kapp á að hefja sem fyrst aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu kolefnis. Það er ábyrgðarleysi að fyrst nú á árinu 2026 líti dagsins ljós tillaga meirihlutans að loftslagsstefnu fyrir Kópavogsbæ. Stefnan sýnir skort á metnaði og ábyrgðarkennd og aðgerðir eiga að stuðla að kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 en ekki 2035 eins og stefnan sem Kópavogsbær gekkst undir með öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Helga Jónsdóttir
Þórarinn Ævarsson


03

Forsætisnefnd - 252. fundur frá 19.03.2026

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

04

Innkaupanefnd - 15. fundur frá 16.03.2026

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

05

Menntaráð - 158. fundur frá 03.03.2026

Fundargerð í fimm liðum.

Lagt fram.

06

Menntaráð - 159. fundur frá 17.03.2026

Lagt fram.


6.3 - 26022644 - Undirbúningur reksturs leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi

Minnisblað varðandi undirbúning reksturs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi lagt fram.

Viljayfirlýsing lögð fram til samþykktar.

Pálmi Þór Másson, Steinn Sigríðar Finnbogason og Sindri Sveinsson víkja af fundi kl. 18:45.

Umræður

Fundarhlé hófst kl. 18:45, fundi fram haldið kl. 19:10.

Dagskrártillaga:
“Lagt er til að málinu verði frestað til næsta fundar menntaráðs."

Björn Þór Rögnvaldsson
Hreiðar Oddsson
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.

Dagskrártillögu um frestun hafnað með fjórum atkvæðum gegn atkvæðum Björns Þór Rögnvaldssonar, Hreiðars Oddssonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur.

Bókun:
"Undirrituð telja ekki tímabært að undirrita viljayfirlýsingu um rekstur nýs skóla í Vatnsendahvarfi á þessu stigi máls. Ekki liggja fyrir nauðsynlegar valkostagreiningar og ekki hefur verið gerð fullnægjandi grein fyrir samningsmarkmiðum sveitarfélagsins. Því liggja ekki fyrir þær upplýsingar sem þarf til að meta hvort að það að fara í umræddar viðræður sé gert á málefnalegum og faglegu grunni.

Jafnframt er það verulegt áhyggjuefni að sveitarfélagið skuli ganga til viðræðna við einn tiltekinn aðila án þess að öðrum hafi verið gefinn kostur á að koma að borðinu. Með því er ekki aðeins komið í veg fyrir að hægt sé að bera saman ólíkar leiðir áður en afstaða er tekin, heldur vakna einnig spurningar um hvort jafnræðis sé gætt með fullnægjandi hætti við undirbúning málsins. Undirrituð telja því að áður en til undirritunar viljayfirlýsingar kemur þurfi að liggja fyrir opnari og vandaðri undirbúningur málsins.

Björn Þór Rögnvaldsson
Hreiðar Oddsson
María Ellen Steingrímsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Bókun:
“Meirihlutinn fagnar því að Kópavogsbær hyggst ganga til samninga við Skóla Ísaks Jónssonar um rekstur nýs samrekins leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Meirihlutinn telur að tilkoma Ísaksskóla samræmist vel menntastefnu Kópavogsbæjar og verði mikilvæg viðbót við það öfluga skólasamfélag sem þegar er til staðar í Kópavogi.
Skóli Ísaks Jónssonar býr yfir áratugalangri reynslu af menntun yngstu barna og hefur sinnt markvissri kennslu fimm ára barna og nemenda á yngsta stigi grunnskóla frá stofnun hans árið 1926. Meirihlutinn er stoltur af því að skóli með slíka reynslu og þekkingu hafi sýnt áhuga á að útvíkka starfsemi sína og taka þátt í uppbyggingu skólastarfs í Kópavogi.

Hanna Carla Jóhannsdóttir
Hildur Karen Sveinbjarnardóttir
Jónas H. T. Einarsson
Hjördís Einarsdóttir

Menntaráð samþykkir fyrir sitt leyti viljayfirlýsingu milli Kópavogsbæjar og Skóla Ísaks Jónssonar ses. með fjórum atkvæðum og hjásetu Björns Þórs Rögnvaldssonar, Hreiðars Oddssonar og Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur og vísar málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Fundarhlé hófst kl. 16:47, fundi fram haldið kl. 17:28.

Tillaga:

Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa opinberlega eftir áhugasömum sjálfstætt starfandi skólum sem fullnægja málefnalegum kröfum bæjarins til samstarfs um áformaðan samrekinn leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi. Kópavogsbær mun leggja til og vera eigandi að skólahúsnæðinu sem og þeim búnaði sem bærinn leggur til. Reiknað húsnæðisframlag mun koma á móti reiknaðri leigu. Framlag Kópavogsbæjar til þjónustusamningsins byggist á að ekki verði innheimt skólagjöld í skólanum.

Greinargerð:
Almenna reglan er sú að sveitarfélög auglýsi með opinberum hætti fyrirhugaða samninga um verk, vöru eða þjónustu, sem fleiri en einn aðili geta veitt. Þannig gefst öllum sem fullnægja kröfum færi á að upplýsa um þekkingu sína, reynslu og hæfni til að takast á við verkefnið. Það er í samræmi við grundvallareglur stjórnsýsluréttar um jafnræði og sjónarmið um vandaða stjórnsýsluhætti. Nokkrir sjálfstætt starfandi skólar annast skólastarf samkvæmt þjónustusamningum við einstök sveitarfélög. Búast má við að einhverjir úr þeim flokki myndu lýsa áhuga á að eiga viðræður við Kópavogsbæ um þjónustu sína. Með opinberri auglýsingu er unnt að tryggja út frá málefnalegum sjónarmiðum að þeir gefi sig fram sem áhuga hafa og telja sig geta nýtt mjög verðmætt tækifæri til nýsköpunar í skólastarfi í Kópavogi.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Helga Jónsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Þórarinn Ævarsson

Bæjarstjórn hafnar tillögunni með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Þórarins Ævarssonar

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Þórarins Ævarssonar drög að viljayfirlýsingu á milli Kópavogsbæjar og Skóla Ísaks Jónssonar ses.

Bókun:
"Meirihlutinn sér ekki tilefni til þess að hverfa frá viljayfirslýsingunni og leggur til að gengið verði til samningaviðræðna við Ísaksskóla.
Við fögnum því að Kópavogsbær hyggst ganga til samninga við Skóla Ísaks Jónssonar, skóli sem hefur 100 ára sögu og sterka hefð. Tilkoma Ísaksskóla samræmist vel menntastefnu Kópavogsbæjar og verði mikilvæg viðbót við það öfluga skólasamfélag sem þegar er til staðar í Kópavogi.
Meirihlutinn er stoltur af því að skóli með slíka reynslu hafi áhuga á að útvíkka starfsemi sína í fyrsta skipti og kýs að horfa til Kópavogs."

Ásdis Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. HIlmarsson
Elísabet B. Sveinsdóttir
Gunnar Sær Ragnarsson


07

Skipulags- og umhverfisráð - 26. fundur frá 16.03.2026

Fundargerð í níu liðum.

Lagt fram.

08

Velferðar- og mannréttindaráð - 15. fundur frá 09.03.2026

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.

09

Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 03.03.2026

Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 03.03.2026.

Lagt fram.

10

Fundargerð 624. fundar stjórnar SSH frá 02.03.2026

Fundargerð 624. fundar stjórnar SSH frá 02.03.2026.

Lagt fram.

11

Fundargerð 278. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 20.02.2026

Fundargerð 278. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 20.02.2026.

Lagt fram.

12

Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 13.02.2026

Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 13.02.2026.

Lagt fram.

13

Kosningar í forsætisnefnd 2022-2026

Kosning varamanns í forsætisnefnd.

Helga Jónsdóttir er kosin varamaður í forsætisnefnd.

14

Kosningar í yfirkjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninga, alþingiskosninga og forsetakosninga 2022-2026

Kosning varamanns í yfirkjörstjórn.

Hannes Hafstein er kjörinn varamaður í yfirkjörstjórn í stað Vignis S. Halldórssonar.

15

Kosningar í hverfakjörstjórnir 2022-2026

Kosning í hverfakjörstjórnir.

Hildur Karen Sveinbjarnardóttir er kosin varamaður í hverfakjörstjórn - Kórinn í stað Karenar Kristínar Pye.

16

Kosning í lýðheilsu- og íþróttanefnd 2025-2026

Kosning aðalmanns og varmanns í lýðheilsu- og íþróttanefnd.

Þorvar Hafsteinsson er kjörinn aðalmaður.

Bergljót Kristinsdóttir er kjörin varmaður.