Bæjarstjórn - 1333. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllTheódóra S Þorsteinsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Fundagerð í 23 liðum.
Fundarhlé hófst kl. 17:45, fundi fram haldið kl. 18:15.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar fundargerð byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 12 liðum.
2.2 - 26011425 - Viðbrögð við niðurstöðu ESA vegna tekjuskattsundanþágu Sorpu bs.
Frá SSH. dags. 16.01.2026, lagðar fram niðurstöður ESA vegna tekjuskattsundanþágu Sorpu bs. Niðurstaða Stefnuráðs byggðasamlaganna fellst fyrir sitt leyti á að fyrirliggjandi tillögum verði vísað til afgreiðslu aðildarsveitarfélaganna. Á grundvelli ofangreinds er farið fram á að meðfylgjandi tillaga um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga Sorpu bs., sem nánar er lýst í fylgiskjali 2, verði tekin til umræðu og afgreiðslu á vettvangi sveitarfélagsins.
Kynning og umræður.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 10:05
Gestir viku af fundi kl. 10.51
Bæjarráð vísar tillögu um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga Sorpu bs., Líf ehf. og Lok ehf., til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða tillögu SSH um stofnun tveggja nýrra dótturfélaga Sorpu bs., Líf ehf. og Lok ehf.
- Fylgibréf KOP- Niðurstöður ESA um undanþágur á greiðslu tekjuskatts byggðasamlaganna.
- 1. Ákvörðun ESA í máli 81738
- 2. Samantekt ESA-mál SORPU og tillaga um stofnun félaganna Lok ehf. og Líf ehf.
- 3. ESA kynning fyrir stefnuráð 7.11.2025.
- 4. Minnisblað vinnuhóps Sorpu bs. 18.06.2025.
- 5. Áhættumat vegna fyrirhugaðra breytinga á rekstri SORPU til að uppfylla kröfur ESA.
Fundargerð í 21 lið.
Lagt fram.
3.2 - 26012406 - Lántökur Kópavogsbæjar 2026
Frá deildarstjóra greiningardeildar, dags. 03.02.2026, lögð fram tillaga um að gefa út skuldabréf í skuldabréfaflokknum KOP24-1 að markaðsvirði allt að 3.000 milljónir. Jafnframt er óskað eftir heimild bæjarráðs og bæjarstjórnar til tímabundinnar hækkunar á lánalínum bæjarins hjá Arion banka ef með þarf, á meðan á sölu skuldabréfanna stendur.
Gestur vék af fundi kl. 11:55.
Dagskrártillaga:
"Undirritaðar óska eftir frestun til öflunar frekari upplýsinga í samræmi við neðangreinda bókun."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Bæjarráð hafnar með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur tillögu um frestun málsins.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðu gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur framlagða tillögu um útgáfu skuldabréfa í flokknum KOP24-1 og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bókun:
"Skrifstofa áhættu- og fjárstýringar var sett á fót til að sinna betur greiningu á áhættu og fjárfestingum. Skrifstofan á að móta áhættustefnu og tryggja virka áhættustýringu í starfsemi og rekstri bæjarins. Einn mikilvægasti þátturinn í hlutverkinu er skiljanleg lánastýring. Fjármagnskostnaður, sem nú er í hæstu hæðum, er áhættuþáttur, sem bæjarráð getur haft mikil áhrif á. Tillögur verða að byggjast á skýrri greiningu á kostnaði við mismunandi valkosti sem til greina koma við fjármögnun á verkefnum bæjarins. Þess er því óskað að fyrir bæjarráð verði lagt mun skýrara mat á mismunandi leiðum til fjármögnunar fjárfestinga og rekstrar Kópavogsbæjar ásamt yfirliti yfir lántökur síðustu fimm ára. Núllkosturinn til samanburðar er að nýta tekjur Kópavogsbæjar til niðurgreiðslu lána. Þá fyrst þegar slíkar upplýsingar hafa verið lagðar fyrir getur bæjarráð tekið afstöðu til þess hvernig og hvaða verkefni á að fjármagna með lánsfé.
Helga Jónsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Fundarhlé hófst kl. 11:15, fundi fram haldið kl. 11:42
Bókun:
"Fyrirliggjandi tillaga er í fullu samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og lántökuheimildir ársins 2026, þar sem þegar hefur verið gert ráð fyrir bæði lántökum og afborgunum langtímalána. Hér er því ekki verið að taka nýja stefnumótandi ákvörðun um aukna skuldsetningu heldur verið að útfæra fjármögnun sem þegar hefur verið samþykkt. Meirihlutinn fellst á tillögu deildarstjóra greiningardeildar og telur ekki ástæðu til að fresta málinu."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir
Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum, gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Einars A. Þorvarðarsonar og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur framlagða tillögu um að gefa út skuldabréf í skuldabréfaflokknum KOP24-1 að markaðsvirði allt að 3.000 milljónir króna. Jafnframt er samþykkt að heimila tímabundna hækkun á lánalínum bæjarins hjá Arion banka ef með þarf, á meðan á sölu skuldabréfanna stendur.
3.4 - 23031542 - Neyðarstjórn Kópavogsbæjar - Erindisbréf
Frá bæjarstjóra, dags. 03.02.2026, lagt fram uppfært erindisbréf neyðarstjórnar Kópavogs.
Bæjarráð vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum uppfært erindisbréf neyðarstjórnar Kópavogs.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 35 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
8.4 - 2512205 - Hæðarhvarf 2. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Hæðarhvarf dags. 1. desember 2025 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst aukning byggingarmagns 32,1 m2 vegna útbygginga yfir svölum, B-rými. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,44 í 0,49. Uppdrættir dags. 29. nóvember 2025 og skráningartafla ódags. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 8. desember 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 22. desember 2025 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2026.
Kristjana H. Kristjánsdóttir gerði grein fyrir erindinu.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2026 með fimm atkvæðum Andra Steins Hilmarssonar, Þorðvarðar Hrafns Ásgeirssonar, Leós Snæs Péturssonar Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Gunnars Sæs Ragnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
- Umsögn dags. 22. janúar 2026
- Grunnmynd 1.hæðar dags. 29. nóvember 2025
- Grunnmynd 2. hæð, dags. 29. nóvember 2025.
- Beiðni um deiliskipulagsbreytingu dags. 30. nóvember 2025
- Afstöðumynd og byggingarlýsing dgas. 29. nóvember 2025
- 305-0-Ásýndir
- Skráningartafla og orkurammi, ódags.
- Skematísk grunnmynd og ásýnd dags. 29. nóvember 2025
- Snið AA og BB dags. 29. nóvember 2025
- 3D mynd
- Glærur af 23. fundi skipulags- og umhverfisráðs
8.5 - 2402739 - Nónhæð. Nónsmári 1-17. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju til afgreiðslu tillaga Hrólfs Carls Cela arkitekts dags. 12. febrúar 2024 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1-17 við Nónsmára að breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst tilfærsla íbúða milli lóða og hækkun byggingarreita úr tveimur hæðum í þrjár á norðurhluta lóðanna. Heildarfjöldi íbúða á lóðunum tveimur helst óbreyttur, 100 íbúðir. Á lóðinni nr. 11-17 er íbúðum fjölgað úr 45 í 47 íbúðir. Hámarksflatarmál ofanjarðar er aukið um 490 m², úr 4.840 m² í 5.330 m², við það hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,92 í 1,01. Á lóðinni nr. 1-9 er íbúðum fækkað úr 55 í 53 íbúðir og stigahúsum fjölgar um eitt, úr fjórum í fimm. Nyrsti hluti byggingarreits hækkar úr tveimur í þrjár hæðir. Hámarksflatarmál ofanjarðar er aukið um 1.240 m², úr 5.960 m² í 7.200 m², við það hækkar nýtingarhlutfall úr 0,94 í 1,10. Lóðin stækkar um 185 m², úr 6.360 m² í 6.545 m² til austurs að göngu- og hjólastíg meðfram Smárahvammsvegi. Tillagan var auglýst frá 23. október til 15. janúar 2026, athugasemdir bárust. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 19. janúar 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt uppfærðum uppdrætti dags. 30. janúar 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa ásamt fylgiskjölum dags. 30. janúar 2026. Einnig eru lögð fram andmæli lóðarhafa við framkomnum athugasemdum dags. 26. janúar 2026 og 28. janúar 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. janúar 2026 með fimm atkvæðum Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Þorðvarðar Hrafns Ásgeirssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Leó Snæs Péturssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Fundarhlé hófst kl. 17:08, fundi framhaldið kl. 17:32.
Bókun:
„Undirrituð leggjast gegn breytingu á deiliskipulagi Nónhæðar. Þegar deiliskipulag liggur fyrir eftir vandaðan undirbúning og víðtækt samráð geta einstakir lóðarhafar ekki vænst breytinga til hagsbóta fyrir sig nema veigamiklar nýjar ástæður komi fram sem réttlæta þá breytingu. Nýjar upplýsingar sem réttlæta breytingu á deiliskipulaginu hafa ekki komið fram. Það er varhugavert fordæmi og rýrir trúverðugleika stjórnvalda ef þau gefa þau skilaboð að breyting á samþykktu deiliskipulag sé samningsatriði eftir á. Þetta mál hefur tafist vegna ítrekaðra breytingabeiðna og dráttur á verklokum er óhæfilegur og óásættanlegur fyrir íbúa í nágrenninu.“
Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.
Bókun:
„Eins og kemur fram í umsögn skipulagsfulltrúa hafa þær breytingar sem felast í tillögu að breyttu deiliskipulagi Nónsmára 1-9 og 11-17 óveruleg áhrif á nærliggjandi byggð og munu ekki raska hagsmunum nágranna að teljandi marki.“
Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson, Gunnar Sær Ragnarsson og Þorvarður Hrafn Ásgeirsson.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með sex atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Einars A. Þorvarðarsonar, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.
- Nónsmári 1-17_breytt dsk_umsögn skipulagsfulltrúa_janúar 2026
- Umsögn skipulagsfulltrúa 30 janúar 2026_fylgiskjöl
- Uppfærður uppdráttur dags 30 janúar 2026
- Auglýst tillaga að breyttu deiliskipulagi
- Andmæli f.h. lóðarhafa dags 26 janúar 2026
- Andmæli f.h. lóðarhafa dags. 28. janúar 2026
- Athugasemdir sem bárust á kynningartíma
- Glærur af 23. fundi skipulags- og umhverfisráðs
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 23.01.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 13. fundar stefnuráðs frá 07.11.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 621. fundar stjórnar SSH frá 19.01.2026
Lagt fram.
Fundargerð 55. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.01.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 277. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 09.01.2026.
Lagt fram.
Fundargerð 420. fundar stjórnar Strætó frá 23.01.2026.
Lagt fram.