Bæjarstjórn - 1343. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - forseti
- Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalfulltrúi
- Hildur Einarsdóttir - aðalfulltrúi
- Orri Vignir Hlöðversson - 2. varaforseti
- Einar Jóhannes Guðnason - 1. varaforseti
- Jónas Már Torfason - aðalfulltrúi
- Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
- María Ellen Steingrímsdóttir - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
- Ólafur Þórður Þórðarson - starfsmaður nefndar
- Jóna Vigdís Kristinsdóttir - starfsmaður stjórnsýlusviðs
- Hlynur Sigurðarson - starfsmaður tæknisviðs
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
01
Tillaga bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og Jónasar Más Torfasonar um sumaropnun frístundaheimila í Kópavogi
Lögð fram tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingar varðandi sumaropnun frístundaheimila í Kópavogi.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 30 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 22 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 27 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 13 liðum.
5.1 - 2607668 - Aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins - kynning
Frá SSH. dags. 07.07.2026, lögð fram til samþykktar aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030. Óskað er eftir því að áætlunin verði tekin til efnislegrar umræðu, afgreiðslu og staðfestingar á vettvangi sveitarfélagsins. Til upplýsinga er einnig meðfylgjandi minnisblað til stjórnar SSH dagsett 16. júní 2026. Þá er þess óskað að við fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2027 verði tekið tillit til þess kostnaðar sem áætlað er að leggist á sveitarfélagið, sbr. 4. gr. samstarfssamnings sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um svæðisbundið farsældarráð á höfuðborgarsvæðinu.
Kynning verkefnastjóra farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins og umræður.
Gestir viku af fundi kl.8:49.
Bæjarráð vísar aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.3 - 26081077 - Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 - Aðildarviðræður við Evrópusambandið
Frá yfirkjörstjórn, dags. 17.08.2026, lagt fram erindi varðandi framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer þann 29. ágúst.
Bæjarráð vísar erindinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 13 liðum.
Lagt fram.
8.10 - 26012129 - Hlíðarhvarf 21. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Sigurðar Hilmars Ólafssonar dags. 24. janúar 2026 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 21 við Hlíðarhvarf. Í breytingunni felst að fyrirhugað einbýlishús á lóðinni verði á einni hæð í stað tveggja og nái samtals 13,5 m² út fyrir byggingarreit til vesturs. 1,9 m þar sem það er mest (6,8 m²) og 0,8 m þar sem það er minna (6,7 m²), ásamt því að ná 1,0 m út fyrir byggingarreit til norðurs, samtals 11,2 m². Nýtingarhlutfall lóðar verður 0,30. Þá eru bílastæði og aðkoma færð frá suð-austurhorni í norð- austurhorn, miðað við deiliskipulag. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. maí til 21. júní 2026. Einnig eru lagðar fram athugasemdir sem bárust á kynningartímanum ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026 og greinargerð skipulagshönnuða dags. 16. júlí 2026.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026 með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar, Eydísar Ingu Valsdóttur og Orra Thors Eggertssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
- Hlíðarhvarf 21_umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2026
- Athugasemdir sem bárust á kynningartíma
- Hlíðarhvarf 21_greinargerð skipulagshöfunda og skýringarmyndir
- Uppdráttur dags. 13. maí 2026
- A3-02-Hlíðarhvarf 21-snið-lóð
- A2-01-Hlíðarhvarf 21-grm-lóð.
- Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
- Hlíðarhvarf 21_breyting á deilisk._fylgigögn
- Hlíðarhvarf 21_fyrirspurn um br dsk_umsögn skipulagafulltrúa, janúar 2026
- Glærur af 32_fundi skipulags_og umhverfisráðs
8.5 - 26032451 - Askalind 2. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni ásamt því að bæta við stigahúsi með lyftu norðan megin við húsið og fjölga bílastæðum. Tillagan var auglýst frá 28. maí til 12. júlí 2026, athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026.
Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
8.6 - 26042448 - Stígagerð í botni Kópavogs. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Betri Samgangna ohf. dags. 17. apríl 2026 um framkvæmdaleyfi á grundvelli Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Í framkvæmdinni felst að útbúa aðskilda göngu- og hjólastíga frá stígamótum við undirgöng við Hafnarfjarðarveg við Kópavogstún sem liggur vestan Hafnarfjarðarvegar að sveitarfélagamörkum við Garðabæ. Jafnframt verður sett upp ný brú fyrir gangandi ásamt gegnsæjum hljóðvegg. Umsóknin var grenndarkynnt frá 6. júní til 2. júlí 2026, athugasemdir bárust. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. júlí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026.
Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 11 atkvæðum.
- Umsögn skipulagsdeildar um athugasemdir 11. ágúst 2026
- leyfi til framkvæmda búsvæðaverndarsvæði Skerjafjörður í Kópavogi
- Yfirlitsmynd-f-Náttúruvernd
- Afnotaleyfi vegna vinnu á vegsvæði, Hafnarfjarðarvegur (40-02,03) Betri Samgöngur
- Grenndarkynning. Stígagerð í botni Kópavogs.
- Umsögn gatnadeildar maí 2026
- Umsögn skipulagsfulltrúa 1. júní 2026
- Teikningasett f. stíg í Kópavogi 2. áf.-febrúar 2026
- Minnisblað með lýsingu á framkvæmd uppfært 13. ágúst 2026
- Heildar teikningasett hjólastígar í Kópavogi og Garabæ 2. áf.- febrúar 2026
- Athugasemdir sem bárust á kynningartíma
- VL Þrír stígar. Göngu- og hjólastígar 2. áfangi
- Viðbragðsáætlun
- Glærur af 32_fundi skipulags_og umhverfisráðs
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Kosning í hverfakjörstjórn Smáranum.
xx er kosinn sem aðalfulltrúi í stað xx.
Kosning eins aðalfulltrúa og eins varafulltrúa í lýðheilsu - og íþróttanefnd.
xx er kosinn sem aðalmaður í stað xx.
Xx er kosinn sen varamaður í stað xx.
Kosning eins aðalafulltrúa og eins varafulltrúa í velferðarráð.
xx er kosinn sem aðalfulltrúi í stað xx.
xx er kosinn sem varafulltrúi í stað xx.
Kosning eins aðalafulltrúa og eins varafulltrúa í skipulags- og umhverfisráð.
xx er kosinn sem aðalfulltrúi í stað xx.
xx er kosinn sem varafulltrúi í stað xx.