Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1219. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Guðmundur Gísli Geirdal - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Viðbrögð við Covid-19 faraldrinum

Lagt fram.

02

Sex mánaða uppgjör Kópavogsbæjar 2020

Frá fjármálastjóra, lagt fram sex mánaða uppgjör.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 3011. fundur frá 20.08.2020

Lagt fram.


3.8 - 1701668 - Stefnumótun Kópavogsbæjar - Heimsmarkmiðavísitala

Frá verkefnastjóra stefnumótunar, lögð fram til samþykktar tillaga að heimsmarkmiðavísitölu Kópavogs. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum þann 2. júlí sl.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundarhlé hófst kl. 17:23, fundi fram haldið kl. 17:33

Frestað til næsta fundar með 10 atkvæðum og hjásetu Karenar E. Halldórsdóttur.


04

Forsætisnefnd - 160. fundur frá 20.08.2020

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

05

Skipulagsráð - 80. fundur frá 17.08.2020

Fundargerð í 19 liðum.

Lagt fram.


5.13 - 2007819 - Naustavör 52-58. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram erindi Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 23. júní 2020 fh. lóðarhafa Naustavarar 52-58. Í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi sem heimilar fjölgun íbúða í húsinu úr 44 í 45. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 26. júní 2020.

Skipulagsráð samþykkir erindið með tilvísan í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



5.14 - 2007569 - Birkigrund 60. Ósk um stækkun lóðar.

Lögð fram tillaga lóðarhafa Birkigrundar 60 að breyttu deiliskipulagi á lóðinni. Í breytingunni felst að annarsvegar stækki lóðin um 2 metra í norður og vestur inn á sameignarlóð og hinsvegar eru tillögur að byggingarreitum fyrir bílgeymslur fyrir Birkigrund 60 og 64. Þá lagðar fram skýringarmyndir og undirritað samþykki lóðarhafa Birkigrundar 56-74.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



5.15 - 2008277 - Ekrusmári 6. Breytt deiliskipulag.

Lagt fram erindi lóðarhafa Ekrusmára 6 dags. í júlí 2020 þar sem óskað er eftir að breyta einbýlishúsi á lóðinni í tvíbýlishús með tveimur fastanúmerum. Eftir breytingu verður íbúð á efri hæð um 165 m2 með bílskúr en íbúð á neðri hæð rúmlega 60 m2. Þá lögð fram skýringarmynd ásamt undirrituðu samþykki lóðarhafa í gennd, að hluta.

Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 9 atkvæðum, hjásetu Jóns Finnbogasonar og mótatkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur.