Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1263. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Hannes Steindórsson - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Helga Jónsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 89. fundur frá 14.09.2022

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

02

Lista- og menningarráð - 143. fundur frá 15.09.2022

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

03

Leikskólanefnd - 144. fundur frá 15.09.2022

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.

04

Íþróttaráð - 123. fundur frá 19.09.2022

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

05

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 351. fundur frá 06.09.2022

Fundargerð í 13 liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

06

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 352. fundur frá 16.09.2022

Fundargerð í 6 liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

07

Menntaráð - 101. fundur frá 20.09.2022

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.

08

Bæjarráð - 3099. fundur frá 15.09.2022

Fundargerð í 14 liðum.

Lagt fram.

09

Bæjarráð - 3100. fundur frá 22.09.2022

Fundargerð í 17 liðum.

Lagt fram.


9.4 - 2209613 - Húsnæðisáætlun 2022

Frá bæjarritara, dags. 20. september 2022, lögð fram drög að húsnæðisáætlun fyrir Kópavogsbæ.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða áætlun.


10

Velferðarráð - 106. fundur frá 12.09.2022

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

11

Skipulagsráð - 127. fundur frá 19.09.2022

Fundargerð í 13 liðum.

Fundargerð í 13 liðum.


11.5 - 2208338 - Vatnsendahæð - Vatnsendahvarf. Breyting á aðalskipulagi. Skipulagslýsing.

Lögð fram með tilvísun í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillaga skipulagsdeildar að skipulagslýsingu dags. 15. september 2022 vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf.
Breytingarnar eru gerðar í tengslum við vinnu deiliskipulags fyrir svæðið í samræmi við ábendingar og umsagnir sem hafa borist. Í aðalskipulagsbreytingunni er afmörkun landnotkunarreita fyrir íbúðasvæði, opin svæði og samfélagsþjónustu breytt, fellt er út svæði fyrir verslun og þjónustu í útjaðri íbúðarsvæðisins og sú þjónusta sem þar var fyrirhuguð færð miðsvæðis inn í hverfið nálægt skóla og leikskóla, auk þess sem staðsetning minjasvæðis er leiðrétt.
Einnig lagt fram minnisblað menntasviðs vegna fjölgunar nemenda, dags. 1. sept. 2022.

Skipulagsráð samþykkir að framlögð skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 verð kynnt í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



11.6 - 2208241 - Leikskóli við Skólatröð. Skipulagslýsing.

Lögð fram tillaga skipulagsdeildar í samvinnu við Ask arkitekta, að skipulagslýsingu dags. í september 2022, með tilvísun í 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir nýtt deiliskipulag leikskóla við Skólatröð.

Skipulagsráð samþykkir að framlögð skipulagslýsing verði kynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



11.8 - 2208035 - Jöklalind 10. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju tillaga Garðars Snæbjörnssonar arkitekts fh. lóðarhafa dags. 20. júní 2022 að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 10 við Jöklalind. Á lóðinni er í gildi deiliskipulagið "Vesturhluti Fífuhvammslands - Íbúðasvæði norðan Fífuhvammsvegar," samþykkt í bæjarstjórn 15. ágúst 1995 m.s.br. og staðfest af skipulagsstjóra ríkisins 12. september 1995. Í breytingunni felst að breyta og stækka núverandi byggingarreit til austurs um 38,6 m² og koma þar fyrir tveggja herbergja aukaíbúð 52 m² að stærð, á einni hæð. Aðkoma að umræddri íbúð er á suðurhlið.
Uppdrættir í mælikvarða 1:100 og 1:500 ásamt greinargerð dags. 22. júní 2022.
Á fundi skipulagsráðs 5. september 2022 var framlagðri tillögu hafnað með sex atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur og vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 13. september var erindinu vísað til skipulagsráðs til frekari rýni.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði auglýst, með sex atkvæðum. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.


12

Fundargerð 402. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 11.08.2022

Fundargerð í 9 liðum.

Lagt fram.

13

Fundargerð 403. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 18.08.2022

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

14

Fundargerð 404. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 14.09.2022

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

15

Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 31.08.2022

16

Fundargerð aðalfundar Markaðsstofu Kópavogs frá 02.09.2022

17

Fundargerð 97. fundar Markaðsstofu Kópavogs frá 08.09.2022

Fundargerð í 7 liðum.

Lagt fram.

18

Fundargerð 37. fundar eigendafundar Strætó frá 05.09.2022

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

19

Fundargerð 38. fundar eigendafundar Sorpu bs. frá 05.09.2022

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

20

Fundargerð 469. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 08.07.2022

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

21

Fundargerð 4. fundar stefnuráðs byggðarsamlaganna frá 13.09.2022

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

22

Fundargerð 543. fundar stjórnar SSH frá 05.09.2022

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.

23

Fundargerð 544. fundar stjórnar SSH frá 12.09.2022

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.

24

Fundargerð 109. fundar svæðisskipulagsnefndar frá 16.09.2022

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.