Bæjarstjórn - 1209. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllBergljót Kristinsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Lögð fram skýrsla um úttekt á Sorpu bs.
Lagt fram.
Fundargerð í 22 liðum.
Lagt fram.
Fundarhlé hófst kl. 18:35, fundi fram haldið kl. 19:14
2.5 - 1811071 - Jafnréttisáætlun Kópavogs 2018-2022
Frá jafnréttisráðgjafa, lögð fram jafnréttisáætlun Kópavogsbæjar ásamt aðgerðaáætlun. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi þann 16. janúar.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir jafnréttisáætlun, ásamt aðgerðaráætlun með 1l atkvæðum.
Bókun:
Undirritaðir fagna að jafnréttisáætlun sé komin fram.
Í aðgerðaráætlun, verkefni nr. 12 er gert ráð fyrir að “Við úthlutun verkefna, tilfærslur í störfum og uppsagnir skal þess gætt að starfsmönnum sé ekki mismunað eftir kyni. Hér er mikilvægt að bæta við , trúarbragða, uppruna, aldurs o.s.frv.
Við verkefni nr. 18 þá þarf að taka tillit til bæði starfsmanna og nemenda þannig að setningin verði "Gera viðhorfskönnun meðal starfsmanna og nemenda á því hvort það telji brotið á sér.."
Pétur Hrafn Sigurðsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Elvar Páll Sigurðsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Fundargerð í 17 liðum.
Lagt fram.
3.3 - 2001260 - Málefni skíðasvæðanna
Frá fjármálastjóra, dags. 4. febrúar, lögð fram umsögn um viðauka við samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Jafnframt lögð fram uppfærð umsögn fjármálastjóra vegna málsins frá 10. febrúar.
Lagt fram.
Bæjarstjórn samþykkir erindið með 11 atkvæðum.
- Málefni skíðasvæðanna - IA
- Málefni skíðasvæðanna -KÓP
- 01a_Skidasvaedin_a_hofudborgarsvaedinu-Vidauki
- 01b_Drog_ad_framkvaemdaaaetlun_til_arsins_2025
- 02_Minnisblad_uppbygging_skidasvaedunum
- 02a_afturköllun kæru
- 02g_Skidasvaedin_Samkomulag_undirritad_2018_05_07
- 02h_Skidasvaedi_Erindisbref_05.03.2018
- 02e_viðauki erindisbref verkefnhóps
- 02b_SSH_07_Skidasvaedin_framlog_2020_4.11.2019
- 02f_Skíðasvæðin_samstarfssamningur_2016_11_07_UNDIRRIT
- Skíðasvæðin - uppfærð umsögn fjármálastjóra 10. feb
Fundargerð í 7 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
Fundargerði í 9 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 59 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
12.13 - 19081140 - Hlíðarvegur 31 og 31a. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Jóns H. Hlöðverssonar arkitekts dags. 9. ágúst 2019 fh. lóðarhafa Hlíðarvegar 31 þar sem óskað er eftir að skipta lóðinni upp og reisa nýtt íbúðarhús á nýrri lóð, Hlíðarvegi 31a. Um er að ræða byggingu á einni hæð án bílskúrs og gert ráð fyrir þremur bílastæðum á lóð. Ný lóð væri 466 m2 og íbúðarhúsið 128,3 m2, nýtingarhlutfall 0,28. Á fundi skipulagsráðs 4. nóvember 2019 samþykkti skipulagsráð með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum við Hlíðarveg 28, 29, 30, 31, 32, 33, 34, 35, 36, 37, 38, 39, 40 og 72, Hrauntungu 48, 50, 52 og Grænutungu 8. Kynningartíma lauk 10. desember 2019. Ábendingar og athugasemdir bárust á kynningartímanum. Á fundi skipulagsráðs 16. desember 2019 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar. Þá lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 28. janúar 2020.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
12.4 - 2001204 - Smárinn vestan Reykjanesbrautar. Bílastæðahús. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram tillaga ASK arkitekta að þriggja hæða bílastæðahúsi fyrir 310 bíla norðan Smáralindar að Hagasmára 1. Í tillögunni felst jafnframt að lóðamörk Hagasmára 1 breytist við aðkomugötu frá Fífuhvammsvegi að Smáralind og aðkomugatan hliðrast að hluta til vesturs næst Smáralind og fyrirkomulag bílastæða og gatnatengingar næst norðurhlið Smáralindar breytast. Uppdrættir í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 28. janúar 2019.
Ennfremur lagt fram erindi Helga S. Gunnarssonar, forstjóra Regins hf. dags. 24. janúar 2020 varðandi fyrirhugað bílastæðishús norðan Smáralindar.
Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
12.8 - 2001835 - Lundur 22. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram tillaga Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 24. janúar 2020 fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðina Lund 22. Í breytingunni felst að íbúð á 3. hæð hússins er stækkuð til suðurs í átt að Nýbýlavegi. Uppdrættir ásamt skýringarmyndum í mkv. 1:100 dags. 24. janúar 2020.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
12.9 - 2001897 - Naustavör 44-50. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram erindi Gunnars Páls Kristinssonar arkitekts dags. 16. október 2018 fh. lóðarhafa Naustavarar 44-50 þar sem óskað er eftir að stækka íbúð á 4. hæð þannig að stofa stækkar um 10 m2 og þaksvalir stækka til austurs. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. í janúar 2020 ásamt skýringarmyndum.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Fundarhlé hófst kl. 20:26, fundi fram haldið kl. 20:29
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
Fundargerði í 9. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.