Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1297. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Orri Vignir Hlöðversson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Kolbeinn Reginsson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Sameiginlegt erindi fulltrúa Viðreisnar, Samfylkingar, Pírata og Vina Kópavogs um Miðbæ Kópavogs - framtíðarsýn

Dagskrármál að beiðni fulltrúa Viðreisnar, Samfylkingar, Pírata og Vina Kópavogs um Miðbæ Kópavogs - framtíðarsýn. Lögð fram tillaga ásamt greinargerð.

Tillaga fulltrúa Viðreisnar, Samfylkingar, Pírtata og Vina Kópavogs:

"Bæjarstjórn samþykkir að hefja undirbúning að rammahluta aðalskipulags fyrir miðbæ Kópavogs. Svæðið afmarkast af Borgarholti til vesturs, Vallartröð til austurs, Digranesvegi og

Borgarholtsbraut til suðurs og Hamraborg til norðurs. Markmiðið er að festa heildarsýn og tengingar fyrir miðbæjarsvæði Kópavogs í sessi í samráði við íbúa og aðra hagaðila."

Fundarhlé hófst kl. 18:40, fundi fram haldið kl. 19:30.

Bókun:

"Meirihlutinn telur mikilvægt að mótuð verði áætlun og heildstæð stefna um þróun miðbæjarins. Þær áherslur birtast m.a. í fjárhagsáætlun bæjarins sem var samþykkt á síðasta ári en þar er gert ráð fyrir að skipulagsvinnan hefjist á næsta ári. Nokkrar leiðir eru færar að því markmiði. Sú umræða þarf að fara fram í skipulagsráði áður en hún kemur til afgreiðslu bæjarstjórnar. Leggur því meirihlutinn til að tillögunni verði vísað til skipulagsráðs eins og hún er orðuð í breytingartillögu. Það er rétt að geta þess að það deiliskipulag sem er í gildi fyrir hluta svæðisins hefur enn ekki komið til framkvæmda. Bæjaryfirvöld hafa lagt áherslu á það við framkvæmdaaðila að gerð verði raunhæf framkvæmdaáætlun fyrir Fannborgarreitinn, m.a. um hvernig aðgengi íbúa að eignum sínum verði tryggt á framkvæmdatíma. Ljóst er að uppbyggingarinnar er víða beðið með eftirvæntingu.

Tillaga um undirbúning að rammahluta aðalskipulags felur í sér breytta forgangsröðun verkefna sem þegar eru í vinnslu. Slíkar ákvarðanir eru teknar við fjárhagsáætlunargerð og hefði umræða um aðra forgangsröðun átt heima í þeirri umræðu. Verkefni skipulagsdeildar eru mörg og ærin og hluti þeirra verkefna sem nú eru á borðum tengjast þeirri vinnu sem hér er til umræðu, svo sem þau atriði sem taka til almenningssamgangna með tilkomu Fossvogsbrúar og tengingu leiðakerfis við Hamraborg og miðbæjarsvæði Kópavogs."

Ásdís Kristjánsdóttir

Elísabet B. Sveinsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

Björg Baldursdóttir

Sigrún H. Jónsdóttir


Bókun:

"Heildarsýn fyrir miðbæjarsvæði Kópavogs hefur lengi verið á dagskrá bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða 25. maí 2021 að hefja skipulagsvinnu á miðbæjarsvæðinu að Borgarholti til vesturs. Sérfræðingar frá Alta voru fengnir til að vinna forsendugreiningu að heildarsýn fyrir svæðið. Vönduð forsendugreining sérfræðinganna var til umfjöllunar á vinnufundi bæjarstjórnar í ágúst 2022 og dagsetning lokaskýrslu er 4. október 2022. Síðan hefur ekkert gerst. Hlutar miðbæjarsvæðisins eru í mikilli niðurníðslu og deiliskipulag sem samþykkt var fyrir hluta svæðisins hefur reynst óframkvæmanlegt. Á meðan sitja íbúar svæðisins í algjörri óvissu um framtíðarþróun mála.

Í uppbyggingarsamningi Kópavogsbæjar við lóðarhafa er stefnt að því að ljúka framkvæmdum á árinu 2025. Fyrir liggur að ekki er unnt að efna samninginn samkvæmt efni sínu og því er nauðsynlegt að láta reyna á réttarstöðu bæjarins samkvæmt þessum samningi. Það eru hagsmunir íbúa og bæjarins að eyða óvissu í málinu."

Helga Jónsdóttir

Thelma B. Árnadóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Theódóra Þorsteinsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir


Breytingartillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks:

"Bæjarstjórn samþykkir að vísa til skipulagsráðs að hafinn verði undirbúningur að gerð áætlunar og heildstæðrar stefnu um þróun miðbæjar Kópavogs. Kostir og gallar ólíkra leiða verði skoðaðar. Svæðið afmarkast af Borgarholti til vesturs, Vallartröð til austurs, Digranesvegi og Borgarholtsbraut til suðurs og Hamraborg til norðurs. Markmiðið er að festa heildarsýn og tengingar fyrir miðbæjarsvæði Kópavogs í sessi í samráði við íbúa og aðra hagaðila."

Bæjarstjórn samþykkir breytingartillöguna samhljóða.

02

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 389. fundur frá 22.03.2024

Fundargerð í sex liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa samhljóða.

03

Bæjarráð - 3169. fundur frá 04.04.2024

Fundargerð í 18 liðum.

Lagt fram.


3.2 - 24011786 - Tillaga um úrsögn Kópavogsbæjar úr Reykjanesfólksvangi

Á fundi bæjarráðs þann 1. febrúar var lagt fram erindi frá Reykjavíkurborg þar sem tilkynnt er úrsögn Reykjavíkurborgar úr Reykjanesfólkvangi. Nú lögð fram umsögn bæjarlögmanns um málið.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu um úrsögn Kópavogsbæjar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir samhljóða tillögu um úrsögn Kópavogsbæjar úr Reykjanesfólkvangi.


04

Forsætisnefnd - 224. fundur frá 04.04.2024

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

05

Íþróttaráð - 141. fundur frá 21.03.2024

Fundargerð i sex liðum.

Lagt fram.

06

Lista- og menningarráð - 162. fundur frá 22.03.2024

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

07

Velferðarráð - 131. fundur frá 25.03.2024

Fundargerð í ellefu liðum.

Lagt fram.


7.6 - 24031371 - Nýjar reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar

Lögð fram til afgreiðslu drög að nýjum reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar.

Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti nýjar reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannskostnaðar og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu velferðarráðs samhljóða


08

Öldungaráð - 25. fundur frá 25.03.2024

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

09

Umhverfis- og samgöngunefnd - 172. fundur frá 19.03.2024

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

10

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 22.03.2024

Fundargerð stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 22.03.2024.

Lagt fram.

11

Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnaness frá 25.03.2024

Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnaness frá 25.03.2024.

Lagt fram.

12

Fundargerð 946. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 15.03.2024

Fundargerð 946. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 15.03.2024.

Lagt fram.

13

Fundargerð 575. fundar stjórnar SSH frá 18.03.2024

Fundargerð 575. fundar stjórnar SSH frá 18.03.2024.

Lagt fram.

14

Fundargerð 422. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 20.03.2024

Fundargerð 422. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 20.03.2024.

Lagt fram.

15

Fundargerð 389. fundar stjórnar Strætó frá 11.03.2024

Fundargerð 389. fundar stjórnar Strætó frá 11.03.2024.

Lagt fram.

16

Fundargerð 390. fundar stjórnar Strætó frá 15.03.2024

Fundargerð 390. fundar stjórnar Strætó frá 15.03.2024.

Lagt fram.

17

Fundargerð 46. eigendafundar stjórnar Strætó frá 13.03.2024

Fundargerð 46. eigendafundar stjórnar Strætó frá 13.03.2024.

Lagt fram.

18

Kosningar í hverfakjörstjórnir 2022-2026

Jónas Skúlason tekur sæti Guðmundar Birkis Þorkelssonar í hverfiskjörstjórn Smáranum.

Jónas Skúlason tekur sæti Guðmundar Birkis Þorkelssonar í hverfiskjörstjórn Smáranum.

19

Kosningar í yfirkjörstjórn vegna sveitarstjórnarkosninga, alþingiskosninga og forsetakosninga 2022-2026

Kosning áheyrnarfulltrúa í yfirkjörstjórn.

Geir Guðmundsson er kjörinn áheyrnarfulltrúi í kjörstjórn.

Sigurbjörg E. Egilsdóttir vék af fundi kl. 19:30.