Bæjarstjórn - 1327. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaðurBoðaði forföllHjördís Ýr Johnson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHelga Jónsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaðurBoðaði forföllKolbeinn Reginsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Á fundi bæjarráðs þann 17. júlí 2025 var samþykkt beiðni um endurupptöku á synjun bæjarstjórnar frá 12. mars 2024 á auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Nónsmára 1-17, en beiðnin byggði m.a. á því að um hafi verið að ræða nýja tillögu sem frábrugðin hafi verið fyrri tillögum. Tillaga á breytingu á deiliskipulagi Nónsmára 1-17, samkvæmt umsókn Hrólfs Carls Cela, arkitekts dags. 12. febrúar 2024 er því til samræmis við framangreinda ákvörðun lögð fram að nýju til auglýsingar.
Bæjarstjórn samþykkir með sex atkvæðum, gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjörgu E. Egilsdóttur, Bergljótu Kristinsdóttur, Helgu Þórólfsdóttur og Þórarins H. Ævarssonar að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Nónsmára 1-17.
Fundarhlé hófst kl. 17:11, fundi fram haldið kl. 20:03
Bókun:
"Undirrituð hafna tillögu um að auglýsa að nýju deiliskipulagsbreytingu fyrir Nónhæð. Málinu á að vera löngu lokið, eftir ítarlegt samráð á sínum tíma átti uppbyggingu að ljúka árið 2022. Engu að síður er henni enn ólokið af hálfu verktakans og nú er farið fram á 16% aukningu á byggingarmagni án þess að fram komi trúverðugar forsendur eða málefnaleg rök fyrir því. Af virðingu við íbúa og til að vernda traust og trúverðugleika stjórnsýslunnar telja undirrituð að afgreiðsla ítrekaðra beiðna um frekari breytingarheimildir grafi undan gildi samráðs og skapi slæmt fordæmi gagnvart öðrum lóðarhöfum."
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Þórarinn Ævarsson
Helga Þórólfsdóttir
Bókun:
"Meirihlutinn harmar þær tafir sem orðið hafa á uppbyggingu á Nónhæð. Neikvæð afstaða minnihlutans er hins vegar ekki til þess fallin að flýta framgangi verkefnisins.
Meirihlutinn leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggja traust og virðingu fyrir stjórnsýslunni, en fellst ekki á þá túlkun minnihlutans að auglýsing deiliskipulagstillögunnar grafi undan samráði eða setji slæmt fordæmi gagnvart öðrum lóðarhöfum. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun íbúða í því skipulagi sem stendur til að auglýsa.
Þvert á móti er auglýsing tillögunnar liður í gagnsæju og lögmætu ferli sem tryggir að íbúar og hagsmunaaðilar fái tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri áður en endanleg ákvörðun er tekin."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet Sveinsdóttir
Hanna Carla Jóhannsdóttir
Bókun:
"Tafir á uppbyggingu á Nónhæð síðustu ár eru alfarið á ábyrgð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Fulltrúar þessara sömu flokka áttu fyrir mörgum árum að vera búnir að tryggja eðlilegan og réttan framgang uppbyggingar samkvæmt samþykktu skipulagi.
Íbúar hafa ítrekað komið sínum sjónarmiðum á framfæri, þegar breytingatillögur hafa komið fram af hálfu verktakans, án þess að mark sé tekið á þeim."
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Þórarinn Ævarsson
Helga Þórólfsdóttir
Bókun:
"Í upphafi skyldi endinn skoða. Þróunaraðili lóðarinnar ber ábyrgð á uppbyggingu á reitnum og þeim töfum sem hafa orðið á verkinu. Bæinn hefur skort úrræði eða heimildir til að ýta á eftir framkvæmdum umfram það sem hefur verið gert. Þessi bókun minnihlutans um að tafir á uppbyggingu séu á ábyrgð núverandi meirihlutaflokka eru rangar. Halda hefði þurft betur á málum í samskiptum bæjarins við þróunaraðila og íbúa á sínum tíma. Það að málið sé ennþá í hártogi er vísbending um að ekki hafi verið byggt á nægilega sterkum grunni þegar verkefninu var hleypt af stað."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet Sveinsdóttir
Hanna Carla Jóhannsdóttir
Bókun:
"Undirrituð vísa þeirri fullyrðingu á bug að tafir skýrist af öðru en málsmeðferð meirihlutans: Frá júní 2020 hefur þróunaraðili ítrekað óskað eftir auknu byggingarmagni. Í febrúar 2022 ákvað meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar að auglýsa breytingu að nýju þrátt fyrir gildandi skipulag og þar með hófst endalaus vandræðagangur málsins. Nú síðast barst beiðni um endurupptöku í mars 2024 sem ekki var afgreidd fyrr en 16 mánuðum síðar, í sumarleyfi bæjarfulltrúa í júlí 2025. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur auk þess ítrekað fjallað um málið, sem undirstrikar óstöðuga og ófyrirsjáanlega málsmeðferð meirihlutans. Það er þessi endurtekna opnun málsins að nýju af hálfu meirihlutans sem hefur tafið framgang, ekki afstaða minnihlutans."
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Þórarinn Ævarsson
Helga Þórólfsdóttir
Bókun:
"Hér fer minnihlutinn með rangt mál. Endurupptökubeiðni var lögð fyrir febrúar 2025, ekki í mars 2024. Tilraunir til að skilgreina hvað hefur orsakað tafir eru ekki í samræmi við staðreyndir málsins, en það er eðlilegt að skipulag taki breytingum á skipulags- og framkvæmdatíma. Að gera slíkar breytingar tortryggilegar er sett fram í pólitískum tilgangi. Ljóst er að betur hefði þurft að halda á málum í upphafi."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet Sveinsdóttir
Hanna Carla Jóhannsdóttir
Helga Þórólfsdóttir vék af fundi kl. 19:07.
Bókun:
"Sú tillaga sem meirihlutinn samþykkir nú að auglýsa, og felur í sér að taka upp þegar samþykkt deiliskipulag, er dagsett 12.febrúar 2024 og var fyrst tekin fyrir í bæjarstjórn í mars 2024."
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Þórarinn Ævarsson
Þórarinn Ævarsson vék af fundi kl. 19:33.
Bókun:
"Beiðni um deiliskipulagsbreytingu sem bæjarfulltrúar minnihlutans kalla hérna „endurupptökubeiðni“ var afgreidd á bæjarstjórnarfundi 12. mars 2024. Endurupptökubeiðnin fór aftur á móti fyrir bæjarráð í febrúar 2025. Að minnihlutinn fullyrði í bókun að endurupptökubeiðnin hafi beðið afgreiðslu í tæpt eitt og hálft ár dregur í dagsljósið hversu langt er hér seilst til að teikna stjórnkerfi bæjarins og meirihlutann upp sem grýlu í þessu máli. Hafa skal það sem sannara reynist!"
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet Sveinsdóttir
Hanna Carla Jóhannsdóttir
Bókun:
"Undirritaðar árétta að beiðni um að taka málið upp að nýju kom fyrir bæjarstjórn 12. mars 2024. Fulltrúar meirihlutans eru hér að rugla saman annars vegar þeirri beiðni og hins vegar síðari beiðni um endurupptöku á höfnun þeirrar beiðnar. Aðalatriðið er að málsmeðferðin hefur verið allt of löng. Nú er verið að afgreiða mál sem fyrst var lagt fram fyrir 19 mánuðum. Tafir málsins tengjast ítrekaðri opnun þess að nýju fyrir tilstuðlan meirihlutans, en hafa ekkert með andstöðu minnihlutans að gera."
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Bókun:
"Margur heldur mig sig. Meirihlutinn frábiður sér að vera sakaður um misskilning þegar fulltrúar minnihlutans tala um breytingu á deiliskipulagi sem endurupptökubeiðni."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Björg Baldursdóttir
Elísabet Sveinsdóttir
Hanna Carla Jóhannsdóttir
Fundargerð í 14 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 9 atkvæðum.
Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
3.2 - 22061304 - Íbúasamráð í skipulagsmálum. Þróun verklagsreglna.
Máli frestað á síðasta fundi bæjarráðs og óskað eftir kynningu á drögum að verklagi fyrir íbúasamráð í skipulagsmálum.
Kynning og umræður.
Gestir véku af fundi kl. 9:01
Bæjarráð vísar tillögum að verklagi um íbúasamráð í skipulagsmálum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum framlagða tillögu að verklagi um íbúasamráð í skipulagsmálum.
3.3 - 25092605 - Starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar SSH 2026
Lagðar fram til umræðu og afgreiðslu tillögur að annars vegar fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar fyrir árið 2026 og hins vegar tillaga að starfsáætlun svæðisskipulagsnefndar fyrir tímabilið janúar 2026 til maí 2026.
Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar fyrir tímabilið janúar 2026 til maí 2026.
3.4 - 25092601 - Ný brunavarnaáætlun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til staðfestingar
Ný brunavarnaáætlun fyrir höfuðborgarsvæðið var samþykkt af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þann 16. september s.l. og af stjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins þann 19. september s.l.
Er brunavarnaáætlunin nú lögð fram til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði og bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar nýrri brunavarnaáætlun SHS til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum brunavarnaáætlum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
3.8 - 25092841 - Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar 2025
Erindi frá Brú lífeyrissjóði, þar sem lögð er fram tillaga um óbreytt endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar 2025.
Umræður.
Bæjarráð vísar tillögu að endurgreiðsluhlutfalli vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu um óbreytt endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar.
Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
4.6 - 25093125 - Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. 2026 til samþykktar
Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, dags. 25.09.2025, lögð fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar uppfærðar gjaldskrár.
Bæjarráð samþykkir uppfærðar gjaldskrár fyrir sitt leiti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum uppfærðar gjaldskrár Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. fyrir árið 2026.
Fundargerð í 12 liðum.
Lagt fram.
5.3 - 25021861 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025
Frá deildarstjóra greiningardeildar, dags. 06.10.2025, lagður fram viðauki nr. 4 við fjárhagsáætlun 2025. Viðaukinn er vegna stofnframlags til félagsins Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu ohf.
Umræður.
Bæjarráð vísar framlögðum viðauka til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2025, vegna stofnframlags til félagsins Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu ohf.
5.5 - 2510039 - Fjárhagsáætlun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030.
Frá SHS, dags. 30.09.2025, lögð fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir framlagða fjárhagsáætlun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2026 með fimm atkvæðum og vísar til staðsetingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum framlagða fjárhagsáætlun Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2026.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
10.4 - 23111613 - Ásbraut. Nýtt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu tillaga umhverfissviðs að deiliskipulagi Ásbrautar dags. 1. október 2025. Í tillögunni er göturými Ásbrautar endurhannað til að bæta stígakerfi og tryggja með samræmdum hætti örugga og greiða umferð gangandi og hjólandi. Tillagan er unnin af VSÓ ráðgjöf og umhverfissviði Kópavogsbæjar. Þá er einnig lagt fram minnisblað um fyrirkomulag hjólainnviða dags. 3. júlí 2025, uppfært 1. október 2025, minnisblað um bílastæði dags. í júlí 2025, uppfært 1. október 2025 og minnisblað um breytingar frá auglýsingu dags. 1. október 2025. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 7. júlí 2025 var samþykkt að auglýsa tillöguna, var hún auglýst til og með 18. september 2025. Þá lagðar fram þær athugasemdir sem bárust á kynningartíma ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2025.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 3. október 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 9 atkvæðum.
- Skýringaruppdráttur, dags.1. október 2025
- Skipulagsuppdráttur dags. 1. október 2025
- Minnisblað um bílastæði uppfært 1.október 2025
- Minnisblað um breytingar frá auglýsingu dags.1.október
- Minnisblað um fyrirkomulag hjólainnviða, uppfært 1.október 2025
- 1. Umsögn - Skipulagsstofnun
- 2. Umsögn- Garðabær
- 3. Umsögn - Veitur
- 4. Umsögn - Reykjavíkurborg
- 5. Umsögn - Landssamtak hjólreiðamanna
- 6. Umsögn - Vegagerðin- Höfuðborgarsvæði
- Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3.október 2025.
- Glærur af 16. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 6. október 2025
Fundargerð 37. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 29.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 985. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitafélaga frá 26.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 613. fundar stjórnar SSH frá 15.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 614. fundar stjórnar SSH frá 22.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 140. fundar stjórnar Svæðisskipulagsnefndar frá 12.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 110. fundar stjórnar Strætó frá 15.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 54. eigendafundar stjórnar Strætó frá 29.09.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 430. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 01.10.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 274. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 19.09.2025.
Lagt fram.