Bæjarstjórn - 1212. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalmaðurBoðaði forföllGuðmundur Gísli Geirdal - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Fjallað um stöðu mála vegna áhrifa af kórónuveirufaraldrinum.
Lagt fram.
Bókun:
"Kópavogur á að sjá sóma sinn í því að veita innflytjendum í Kópavogi upplýsingar um helstu málefni bæjarins á máli sem þeir skilja. Við teljum afar mikilvægt að bæjaryfirvöld komi upp tilkynningasíðum á vef bæjarins bæði á ensku og pólsku til að tryggja að nauðsynlegar upplýsingar komist rétt til skila.
Bergljót Kristinsdóttir
Pétur Hrafn Sigurðsson"
Fundargerð í 17 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.
3.1 - 2003535 - Hækkun á lánalínum Kópavogsbæjar
Frá fjármálastjóra, dags. 17. mars, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar til þess hækka yfirdráttarheimild bæjarins í ljósi efnahagslegra afleiðinga Covid-heimsfaraldurs.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að veita fjármálastjóra heimild til þess að taka skammtímalán í formi yfirdráttarheimildar á veltureikningi í Íslandsbanka hf. Fjárhæð yfirdráttarheimildarinnar verði 1.600.000.000 kr. Um er að ræða hækkun á núverandi skammtímaláni hjá Íslandsbanka hf. (yfirdráttarheimild) um 800.000.000 kr.
Jón Finnbogason vék af fundi undir afgreiðslu neðangreindrar tillögu:
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum að veita fjármálastjóra heimild til þess að taka skammtímalán í formi yfirdráttarheimildar á veltureikningi í
Arion banka hf. Fjárhæð yfirdráttarheimildarinnar verði 1.800.000.000 kr. Um er að ræða hækkun á núverandi skammtímaláni hjá Arion banka hf. (yfirdráttarheimild) um 900.000.000 kr.
Jón Finnbogason sneri aftur til fundar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að veita fjármálastjóra heimild til þess að taka skammtímalán í formi yfirdráttarheimildar á veltureikningi í Landsbanka hf. Fjárhæð yfirdráttarheimildarinnar verði 1.360.000.000 kr. Um er að ræða hækkun á núverandi skammtímaláni hjá Landsbanka hf. (yfirdráttarheimild) um 680.000.000 kr.
Gildistími/lánstími heimilda verði til loka árs 2020 en með möguleika á framlengingu til 20. mars 2021.
3.3 - 2003505 - Rýmkaðar heimildir til að halda fjarfundi
Frá lögfræðideild, dags. 16. mars, lögð fram tillaga vegna rýmkaðra heimilda skv. frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum til að halda fjarfundi í ljósi Covid19 faraldursins.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum tillögu um að bæjarstjórn og nefndum Kópavogsbæjar sé heimilt að funda í fjarfundi á gildistíma undanþágu sveitarstjórnarráðherra.
Fundargerð í 11 liðum.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
5.3 - 2003054 - Reglur um birtingu fylgigagna með fundargerðum á vef Kópavogsbæjar
Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að reglum um birtingu fylgigagna með fundargerðum á vef Kópavogsbæjar. Forsætisnefnd frestaði málinu á fundi sínum þann 5. mars sl. og hvatti bæjarfulltrúa til að kynna sér regludrögin og gera athugasemdir fyrir næsta fund nefndarinnar.
Forsætisnefnd samþykkir að vísa drögum að reglum um birtingu fylgigagna til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum reglur um birtingu fylgigagna með fundargerðum og að þær taki gildi eftir fyrsta fund bæjarstjórnar eftir sumarfrí.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lögð fram.
Fundargerð í 1 lið.
Lögð fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 31 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
13.11 - 1911866 - Grundarhvarf 10. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram tillaga Þorgeirs Þorgeirssonar, arkitekts fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 10 við Grundarhvarf. Í gildandi deiliskipulagi lóðarinnar, samþykkt í bæjarstjórn 2007 og birt í B-deild Stjórnartíðinda 29. mars 2007 nr. 271, er gert ráð fyrir einbýlishúsi á einni hæð á lóðinni allt að 290 m2 að grunnfleti. Flatarmál lóðarinnar er 1.120 m2 og nýtingarhlutfall 0,26. Miðað er við þrjú bílastæði á lóð og hámarkshæð 4,0 m miðað við aðkomuhæð.
Í tillögu að breyttu deiliskipulagi er gert ráð fyrir að á lóðinni rísi einnar hæðar parhús, Grundarhvarf 10b og 10c, samtals um 350 m2 að grunnfleti auk kjallara (tæknirými og geymslur) um 37 m2 að flatarmáli. Áætlað nýtingarhlutfall lóðarinnar er 0,34 og fyrirhuguð hámarkshæð er áætluð 3,9 m miðað við aðkomuhæð. Gert er ráð fyrir bílskýlum undir Grundarhvarfi 10b og 10c ´samt fjórum bílastæðum áa lóð. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. í mars 2020.
Skipulagsráð samþykkir með tilvían til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulagsráðs.
13.13 - 2001090 - Kársnesbraut 64. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram erindi Jakobs Líndal arkitekts dags. 21. nóvember 2019 fh. lóðarhafa Kársnesbrautar 64. Í erindinu er óskað eftir að breyta nýtingu hússins úr einbýlishúsi í gistiheimili í flokki II, gr. 12 samkv. reglugerð um gististaði 1277/2016. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 21. nóvember 2019. Á fundi skipulagsráðs 20. janúar 2020 var afgreiðslu málsins frestað. Þá lagt fram minnisblað skipulags- og byggingardeildar dags. 12. mars 2020.
Hafnað. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulagsráðs.
13.3 - 2003236 - Borgarlínan. Ártún - Hamraborg. Verk- og matslýsing aðalskipulagsbreytinga í Reykjavík og Kópavogi.
Lögð fram, í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006, verk- og matslýsing aðalskipulagsbreytinga í Reykjavík og Kópavogi dags. í febrúar 2020. Í lýsingunni sem nær til fyrstu lotu Borgarlínu frá Ártúni í Reykjavík að Hamraborg í Kópavogi er gerð grein fyrir þeim áherslum sem verða í komandi skipulagsvinnu, forsendum sem skipulagið byggir á, fyrirliggjandi stefnu, umfang umhverfismats, framsetningu skipulagsgagna og fyrirhuguðum kynningum og samráði við skipulagsgerðina. Hrafnkell Á. Proppé og Stefán Gunnar Thors hjá Borgarlínuteymi gera grein fyrir tillögunni.
Skipulagsráð samþykkir að framlöð tillaga að verk- og matlýsingu verði kynnt í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga og laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn Dagur Gissurarson situr hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulagsráðs.
13.5 - 1903010 - Traðarreitir. B29. Tillaga að breyttu aðalskipulagi.
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 fyrir Traðarreit - eystri (B29). Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af Álftröð í austur, Digranesvegi í suður, Skólatröð í vestur og Hávegi í norður. Í gildandi aðalskipulagi er umrætt svæði skilgreint sem íbúðarsvæði. Stærð skipulagssvæðisins er um 7.800 m2 og á því standa nú 8 íbúðarhús með samtals 12 íbúðum sem byggð eru á árunum 1952 til 1955. Í framlagði tillögu er gert ráð fyrir óbreyttri landnotkun en svæðið verði skilgreint sem þróunarsvæði þar sem byggðar verði allt að 180 íbúðir í tveggja til fjögurra hæða fjölbýlishúsum með kjallara og inndreginni þakhæð. Gert er ráð fyrir allt að 200 m2 atvinnuhúsnæðis á jarðhæð með aðkomu frá Álftröð. Samkvæmt tillögunni er áætlað nýtingarhlutfall svæðisins ofanjarðar 2,45 og með kjallara 3,70. Í tillögunni er miðað við 1,3 bílastæði á íbúð og 1 bílastæði á hverja 50 m2 atvinnuhúsnæðis. Tillagan er sett fram í greinargerð ásamt umhverfisskýrslu dags. í mars 2020.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísan til 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að vísa tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar og að hún verði auglýst í samræmi við 31. gr. ofangreindra laga.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Leiðrétting er gerð á ofangreindum texta í 2. mgr. skipulagstillögunnar og er hún samþykkt svohljóðandi: "Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af Álftröð í austur, Digranesvegi til suðurs, lóðarmörkum Kópavogsskóla í vestur og Hávegi í norður."
13.6 - 1901024 - Traðarreitur - eystri. Reitur B29. Deiliskipulag.
Lögð fram að tillaga að deiliskipulagi Traðarreits - eystri, reits B29 sem unnin er af Tark-arkitektum fh. lóðarhafa. Nánar tiltekið afmarkast deiliskipulags-svæðið af Digranesvegi í suður, Skólatröð í vestur, Hávegi í norður og Álftröð í austur. Stærð skipulagssvæðisins er um 7.800 m2 og á því standa nú 8 íbúðarhús með samtals 12 íbúðum sem byggð eru á árunum 1952 til 1955. Í framlagði tillögu er gert ráð fyrir að byggðar verði allt að 180 íbúðir í tveggja til fjögurra hæða fjölbýlishúsum með kjallara og inndreginni þakhæð. Gert er ráð fyrir allt að 200 m2 atvinnuhúsnæðis á jarðhæð með aðkomu frá Álftröð. Samkvæmt tillögunni er áætlað nýtingarhlutfall svæðisins ofanjarðar 2,45 og með kjallara 3,70. Í tillögunni er miðað við 1,3 bílastæði á íbúð og 1 bílastæði á hverja 50 m2 atvinnuhúsnæðis. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000, ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum dags. 16. mars 2020. Þá lagt fram minnisblað VSÓ Ráðgjöf, Traðarreitir, - umferðargreining dags. 23. september 2019; minnisblað VSÓ Ráðgjöf Traðarreitur B29, Hljóðvistarreikningar, dags, 31. október 2019; Digranes í Kópavogi; Traðarreitur B29 áður Álftröð 1-7 og Skólatróð 2-8, Húsakönnun, dags. í nóvember 2019 unnin af Tark-arkitektum og Digranes í Kópavogi - Traðarreitur B29, Nágrannabyggð Digranesvegur og Hávegur, nóvember 2019 unnin af Tark-arkitektum.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísan til 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu að Traðarreit eystri. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.
Leiðrétting er gerð á ofangreindum texta í 2. mgr. skipulagstillögunnar og er hún samþykkt svohljóðandi: "Nánar tiltekið afmarkast deiliskipulagssvæðið af Digranesvegi í suður, lóðarmörkum Kópavogsskóla í vestur, Hávegi í norður og Álftröð í austur".
Leiðrétting er gerð á ofangreindum texta í 7. mgr. skipulagstillögunnar og er hún samþykkt svohljóðandi: "Í tillögunni er miðað við 1,3 bílastæði á íbúð og 1 bílastæði á hverja 50 fm. atvinnuhúsnæðis og að Skólatröð milli Digranesvegar og Hávegar verði lokað fyrir almenna umferð ökutækja".
13.8 - 2001590 - Kársnesbraut 71. Kynning á byggingarleyfi.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Valgeirs Bergs Steindórssonar byggingartæknifræðings dags. í desember 2019 fh. lóðarhafa Kársnesbrautar 71. Í tillögunni er óskað eftir að stækka íbúðarhús á lóðinni, byggt 1960, til vesturs um 65,6 m2. Húsið er í dag 115 m2 en auk þess er á lóðinni stakstæð 48,8 m2 bílgeymsla. Eftir breytingu verður íbúðarhúsið 180,6 m2. Útlit viðbyggingar verður eins og eldra hús og þak og halli sömuleiðis. Á fundi skipulagsráðs 3. febrúar 2020 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum Kársnesbrautar 69 og 75, Holtagerðis 20, 22, 26. Litluvör 9, 11 og 13. Kynningartíma lauk 9. mars 2020. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust á kynningartímanum.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum afgreiðslu skipulagsráðs.
Fundargerð í 14 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fyrir.
Eva Sjöfn Helgadóttir er kjörin aðalmaður í stað Hákonar Helgar Leifssonar.
Vigdís Ásgeirsdóttir er kjörin varamaður í stað Evu Sjafnar Helgadóttur.
Ásmundur Almar Guðjónsson kjörinn aðalmaður í stað Hákonar Helga Leifssonar.
Eva Sjöfn Helgadóttir er kjörin varamaður í stað Hákonar Helga Leifssonar.
Vigdís Ásgeirsdóttir er kjörin varamaður í stað Hákonar Helga Leifssonar.
Ásmundur Almar Guðjónsson er kjörinn varamaður í stað Hákonar Helga Leifssonar.