Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1225. fundur

Fjarfundur - Microsoft Teams

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
  • Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Fjárhagsáætlun 2021 - Fyrri umræða

Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2021 og tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa tillögu að fjárhagsáætlun 2021 og þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024 til seinni umræðu.

Bókun:

"Undirrituð telur veigamikil rök fyrir því að Kópavogsbær sæki um fullan frest til framlagningar og afgreiðslu fjárhagsáætlunar í samræmi við erindi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

02

Bæjarráð - 3021. fundur frá 29.10.2020

Fundargerð í 31 lið.

Lagt fram.

Bókun:

"Undirritaður telur ófært að Kópavogsbær taki aukinn fjölda undirbúningstíma sérkennara í leikskólum sem samið var um í kjarasamningum af úthlutuðum sérkennslutímum barna. Þetta verður til þess að börn sem þurfa á sérkennsluúrræðum að halda í leikskólum bæjarins munu fá færri tíma en áður. Það verða því þau sem síst skyldi, börnin sem þurfa á sérkennsluúrræðum að halda, sem í raun niðurgreiða kostnað Kópavogsbæjar vegna kjarasamninga."

Pétur H. Sigurðsson.

Bókun:

"Ég tek undir bókun Péturs H. Sigurðssonar."

Bergljót Kristinsdóttir


2.1 - 2006877 - Lántökur Kópavogsbæjar 2020

Frá fjármálastjóra, dags. 26. október, lögð fram beiðni um heimild til lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 3,9 milljarða króna vegna endurfjármögnunar á verðtryggðum húsnæðislánum sem bera meira en 1% vexti. Einnig lögð fram fundargerð lána- og skuldastýringar frá 19. október sl.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 3.900.000.000, til allt að 30 ára.
Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til að endurfjármagna eldri lán sem upphaflega voru tekin vegna framkvæmda sveitarfélagsins sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra, kt. 170766-5049 og Ingólfi Arnarsyni, fjármálastjóra kt. 050656-3149 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Kópavogsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.



2.30 - 2009385 - Reglur um fjárhagsaðstoð. Endurskoðun 2020

Velferðarráð samþykkti framlagðar tillögur að breyttum reglum fyrir sitt leyti þann 26.10.2020 og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir framlagðar breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð.

Bæjarstjórn samþykkir málið með 11 atkvæðum.


03

Bæjarráð - 3022. fundur frá 05.11.2020

Fundargerð í 11 liðum.

Lagt fram.


3.4 - 1812353 - Kársnesskóli við Skólagerði - Hönnun

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 3. nóvember, lögð fram skýrsla VSÓ Ráðgjafar ehf. um áhættumat vegna byggingar Kársnesskóla.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa heimild til útboðs til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir að veita umbeðna heimild með 11 atkvæðum.


04

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 302. fundur frá 23.10.2020

Fundargerð í 7 liðum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.

05

Fundargerðir Barnaverndarnefndar

Fundur nr. 112.

Lagt fram.

06

Forsætisnefnd - 165. fundur frá 05.11.2020

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

07

Fundargerð 260. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 19.10.2020

Fundargerð í 25 liðum.

Lagt fram.

08

Lista- og menningarráð - 118. fundur frá 22.10.2020

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

09

Fundargerð 385. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 14.10.20

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

10

Skipulagsráð - 85. fundur frá 02.11.2020

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð 889. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16.10.20

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

12

Fundargerð 890. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30.10.2020

Fundargerð í 33 liðum.

Lagt fram.

13

Fundargerð 434. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 09.10.2020

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

14

Fundargerð 435. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 15.10.2020

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

15

Fundargerð 507. fundar stjórnar SSH frá 05.10.2020

Fundargerð í 16 liðum.

Lagt fram.

16

Fundargerð 508. fundar stjórnar SSH frá 12.10.2020

Fundargerð í 13 liðum.

Lagt fram.

17

Fundargerð 509. stjórnarfundar SSH frá 19.10.2020

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

18

Fundargerðir Velferðarráðs

Fundargerð í 10 liðum.

Lagt fram.

19

Kosningar í menntaráð 2018-2022

Erlendur Geirdal kjörinn aðalmaður í menntaráð í stað Elvar Páls Sigurðssonar.

20

Kosningar í umhverfis- og samgöngunefnd 2018-2022

Jón Magnús Guðjónsson kjörinn aðalmaður í stað Erlends Geirdals.

Einar Örn Þorvarðarson kjörinn varamaður í stað Margrétar Ágústsdóttur.

21

Kosningar í jafnréttis- og mannréttindaráð 2018-2022

Björn Þór Rögnvaldsson kjörinn aðalmaður í stað Jóns Magnúsar Guðjónssonar.

Lovísa Björk Júlíusdóttir kjörin varamaður í stað Björns Þór Rögnvaldssonar.

22

Kosningar í hafnarstjórn 2018-2022

Pétur Hrafn Sigurðsson kjörinn varamaður í stað Elvars Páls Sigurðssonar.