Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Barnaverndarnefnd - 8. fundur

í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Aðalsteinn Sigfússon - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - lögfræðingur
  • Magnús M Norðdahl - formaður
  • Jóhanna Thorsteinson - aðalfulltrúi
  • Ingibjörg Sveinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Óttar Felix Hauksson - aðalfulltrúi
  • Anna Eygló Karlsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Dagskrá fundar

01

Barnaverndarmál - barn

Fært í trúnaðarbók. Sigrún Ósk Björgvinsdóttir félagsráðgjafi sat fundinn undir þessum lið.

02

Skortur á úrræðum fyrir unglinga í vanda

Barnaverndarnefnd þakkar fyrir ábendinguna og sýndan áhuga. Barnaverndarnefnd óskar eftir því að ráðgjafi í unglingadeild gefi nefndinni upplýsingar um þau úrræði sem unglingum í Kópavogi eiga völ á.

03

Breytingar á reglum um könnun og meðferð einstakra barnaverndarmála hjá barnaverndarstarfsmönnum félagsmálaráðs Kópavogs

Málinu frestað til næsta fundar þar sem fylgiskjal var gallað.

04

Framkvæmdaáætlun í barnavernd

Barnaverndarnefnd samþykkir framkvæmdaáætlunina. Framkvæmdaáætlunin verður tilbúin til undirskriftar á næsta fundi.

05

Önnur mál.

Barnaverndarnefnd samþykkir að fela sviðstjóra velferðarsviðs, eða þann sem hann tilnefndir, í samráði við formann nefndarinnar og sviðstjóra menntasviðs, eða þann sem hún tilnefnir, og formann skólanefndar að boða til sameiginlegs fundar Barnaverndarnefndar og Skólanefndar. Á fundinum verði fjallað um samstarf og samvinnu nefndanna og starfsmanna þeirra, skyldur aðila og verkferla með velferð barna að leiðarljósi. Stefnt er að því að þessi fundur verði haldinn í febrúar 2012.