Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Barnaverndarnefnd - 5. fundur

í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Aðalsteinn Sigfússon - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Magnús M Norðdahl - formaður
  • Hanna Dóra Stefánsdóttir - aðalfulltrúi
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ingibjörg Sveinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Rannveig María Þorsteinsdóttir - verkefnastjóri
  • Benedikt Hallgrímsson - varafulltrúi

Ritari

  • Rannveig María Þorsteinsdóttir

Anna Eygló Karlsdóttir yfirmaður barnaverndar sat fundinn.

Dagskrá fundar

01

Barnaverndarmál unglingur

Skráð í trúnaðarbók.

02

Erindi frá Barnaverndarstofu vegna þjónustu við börn sem búa við heimilisofbeldi

Meðfylgjandi er kynning á tilraunaverkefni og drög að umboði fyrir starfsmann.

Nefndin gerir athugasemdir og breytingar við 1. og 7. gr. umboðsdraga og samþykkir umboðið að svo búnu fyrir sitt leyti.

03

Samþykkt fyrir barnaverndarnefnd Kópavogs. Drög

Barnaverndarnefnd samþykkir samþykktina fyrir sitt leyti.

04

Tölulegar upplýsingar í barnavernd 2011

Lagt fram til kynningar.

Nefndin er sammála um að fela formanninum að óska eftir fundi með formanni skólanefndar til að ræða þróun og samstarf barnaverndaryfirvalda og skóla.

05

Framkvæmdaáætlun í barnavernd

Hafin er vinna við framkvæmdaáætlun og gert er ráð fyrir að henni ljúki í september.

06

Áttan. Úrræði barnaverndar

Félagsmálastjóri gerði grein fyrir því að bæjarráð hafi tekið ákvörðun um ráðstöfun á húsnæði í Neðstutröð sem hafi verið ætlað fyrir barnaverndarstarf. Leitað er annarrar aðstöðu. Barnaverndarnefnd lýsir áhyggjum sínum og telur afar brýnt að fundinn verði lausn á húsnæðisvanda Áttunnar.

07

Barnaverndarmál - barn

Máli vísað til lögfræðings Félagsþjónustunnar til umsagnar.