Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Barnaverndarnefnd - 61. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 3. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Kolbrún Þorkelsdóttir - aðalmaður
  • Bragi Michaelsson - aðalmaður
  • Matthías Björnsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Anna Kristinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Magnús M Norðdahl - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Signý Þórðardóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Aðalsteinn Sigfússon - félagsmálastjóri
  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - lögfræðingur
  • Anna Eygló Karlsdóttir - starfsmaður nefndar

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Dagskrá fundar

Barnaverndarmál

01

Barnaverndarmál

Fært í trúnaðarbók

Barnaverndarmál

02

Barnaverndarmál

Fært í trúnaðarbók

Barnaverndarmál

03

Barnaverndarmál

Fært í trúnaðarbók.

Almenn mál

04

Ofbeldisteymi barnaverndar Kópavogs

Þann 15. maí 2015 undirrituðu bæjarstjóri og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu samstarfsyfirlýsingu um átak gegn heimilisofbeldi. Verkefnið var tilraunaverkefni til eins árs og að tímabilinu loknu var gert ráð fyrir árangursmati. RIKK, Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum er nú að ljúka úttekt sinni á verkefninu og niðurstöðu er að vænta á næstu vikum.

Frá 1. júlí 2015 til 30. júní 2016 hefur barnavernd Kópavogs komið að 71 fjölskyldu eða 118 börnum sem upplifað hafa heimilisofbeldi sem er mun meiri fjöldi en gerður var ráð fyrir í upphafi og vinnsla hvers máls er viðameiri.


Í bréfi til nefndarinnar frá ofbeldisteymi og deildarstjóra barnaverndar kemur fram að heimilisofbeldismál eru þung í vinnslu, það eru margir sem koma að þeim og þau krefjast mikils tíma. Starfsfólk barnaverndar hefur lagt sig fram um að sinna málaflokknum vel og veita öfluga og faglega aðkomu og mat starfsmanna er að árangur af þessari vinnu sé mikill. Hins vegar sé ljóst að deildin geti ekki sinnt þessari vinnu áfram með þeim fjölda starfsmanna sem heimild er fyrir í deildinni.


Barnaverndarnefnd Kópavogs er mjög meðvituð um mikilvægi verkefnisins og leggur mikla áherslu á að því sé framhaldið. Til þess að unnt sé að halda áfram þessu nauðsynlega starfi þarf að koma til aukinn stuðningur við barnaverndardeild velferðarsviðs.