Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Barnaverndarnefnd - 28. fundur

í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Aðalsteinn Sigfússon - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - lögfræðingur
  • Ingibjörg Sveinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sveinbjörn Strandberg - varafulltrúi
  • Andrés Pétursson - aðalfulltrúi
  • Anna Eygló Karlsdóttir - starfsmaður nefndar
  • Hafsteinn Karlsson - varafulltrúi

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Heimsókn Barnaverndarstofu

Starfsfólk Barnaverndarstofu, Bragi Guðbrandsson forstjóri, Heiða Björg Pálmadóttir lögfræðingur og Páll Ólafsson sviðstjóri komi á fund nefndarinnar sem liður í heimsókn stofunnar til barnaverndarnefnda á landinu.

Barnaverndarstofa lýsti yfir ánægju með vinnubrögð og samstarf við barnaverndarnefnd Kópavogs og segja barnaverndarstaf í Kópavogi til fyrirmyndar á landsvísu. Barnaverndarnefnd Kópavogs þakkar fulltrúum barnaverndarstofu fyrir góða og gagnlega heimsókn og tekur undir þau orð að samstarf milli stofunnar og nefndarinnar er gott.