Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 10. fundur
á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - starfsmaður umhverfissviðs
- Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir - arkitekt
Starfsmenn
- Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
- Auðun Helgason - lögfræðingur
Ritari
- Auður Dagný Kristinsdóttir
Dagskrá fundar
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 16. september 2022 þar sem umsókn Kristjáns Georgs Leifssonar f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs meið tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í breytingunni felst að bílgeymsla á norðausturhluta lóðarinnar stækkar um 13,5 m til suðurs og hækkar um 0,9 metra.
Nýtingarhlutfall á lóðinni hækkar úr 0,30 í 0,32 við breytinguna. Samþykki lóðarhafa Skjólbrautar 6, Borgarholtsbrautar 5 og 7 liggur fyrir.
Uppdrættir í mælikvarða 1:100 dags. 14. ágúst 2022.
Embætti skipulagsfulltrúa samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skjólbrautar 5, 6, 7, 10, Borgarholtsbrautar 5, 7 og 9.
Lögð fram umsókn Kristins Björgúlfssonar f.h. Sunnuhlíðar dags. 21. september 2022 um breytingar á lóðinni nr. 1B við Kópavogsbraut.
Í breytingunni felst að tveimur bílastæðum verði komið fyrir á austurhluta lóðarinnar og að hluta utan lóðar. Sjá nánar á skýringarmynd.
Embætti skipulagsfulltrúa samþykkir framlagða umsókn sem samræmist gildandi deiliskipulagi.
Kostnaður við breytinguna greiðist af umsækjanda.
Lögð fram umsókn Sigríðar Arngrímsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa um breytt deiliskipulag á lóðinni nr. 23 við Víðigrund.
Í breytingunni felst viðbygging á einni hæð við vesturhlið núverandi einbýlishúss á lóðinni alls 35 m2. Nýtingarhlutfall á lóðinni hækkar úr 0,28 í 0,36 við breytinguna.
Embætti skipulagsfulltrúa samþykkir með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Víðigrundar 11, 13, 21, 25, 29 og 31.