Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 22. fundur
á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
- Karlotta Helgadóttir - starfsmaður umhverfissviðs
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Dagskrá fundar
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn umhverfissviðs dags. 21. mars 2025 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 7 við Núpalind. Í breytingunni felst nýr byggingarreitur, um 14,3m x 55m að stærð, fyrir tvær færanlegar kennslustofur. Fyrirhugaðar kennslustofur verða samtals 203,26 m² á stærð, tengdar saman með tengigangi og á einni hæð. Hámarks þak- og vegghæð frá gólfi mun vera um 4.08m. Uppdrættir í mkv. 1:2000 og 1:200 dags. 24. mars 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 31. mars og til og með 8. maí 2025. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 3.tl. 3. gr. í viðauka lV. við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024.
Lögð fram fyrirspurn Vigfúsar Halldórssonar arkitekts dags. 12. mars 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 15 við Löngubrekku um að breyta núverandi geymslu í bílskýli í vinnustofu með baðherbergi.
Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 3. desember 2024.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram umsókn Lárusar Kristins Ragnarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 108 við Kársnesbraut dags. 6. maí 2025 um breytingu á deiliskipulaginu „Hafnarbraut 2-10, Kársnesbraut 108-114“ fyrir lóðina nr. 108 við Kársnesbraut. Í breytingunni felst að breyta atvinnuhúsnæði á 2. hæð í íbúðarhúsnæði.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá skv. samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 24. janúar 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 8 við Flesjakór um breytingu á deiliskipulaginu „Hörðuvellir“. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits til suð-vesturs um 5x5,5m. Byggingarmagn eykst úr 226 m² í 268 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,5 í 0,57. Uppdrættir í mkv. 1:1000, 1:400 og 1:250 dags. 19. febrúar 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 31. mars og til og með 8. maí 2025. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan 3.tl. 3. gr. í viðauka lV. við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024.
Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Vatnsendablett dags. 11. mars 2025 um breytingu á deiliskipulaginu „Vatnsendi - Þing“. Í breytingunni felst heimild til að byggja 67 m² bílgeymslu austan við núverandi einbýlishús á lóðinni. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0.03 í 0.04. Uppdrættir í mkv.1:2000, 1:500 og 1:250 dags. 5. maí 2025.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Vatnsendabletti 4A og Glæsihvarfi 1 og 2. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 25. apríl 2025 þar sem byggingarleyfisumsókn Braga Blumenstein arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Skjólbraut er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um 60 m² viðbyggingu við vesturhlið núverandi húss á lóðinni, hækkun á þaki ásamt kvistum. Nýtingarhlutfall eykst úr 0,19 í 0,27. Greinargerð hönnuða dags. 16. febrúar 2025 ásamt uppdráttum í mkv. 1:500 og 1:100 og skráningartöflu dags. 15. febrúar 2023, uppfærðir 8. mars 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram fyrirspurn Michael Blikdal Erichsen arkitekts dags. 5. maí 2025 um breytingu á deiliskipulagi Vatnsendahvarfs vegna lóðinnar nr. 17 við Hlíðarhvarf. Í breytingunni felst heimild að byggja einbýlishús með einni og hálfri hæð frá götu í stað einnar hæðar. Uppdrættir í mkv. 1:200 og 1:100 dags. 2. maí 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 25. apríl 2025 þar sem byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Álfhólsveg er vísað til skipulagsfulltrúa. Á fundi bæjarstjórnar þann 12. nóvember 2024 var byggingarleyfisumsókn lóðarhafa samþykkt og fékk hann heimild til að byggja 158,2 m² tveggja hæða byggingu með tengingu við vesturgafl núverandi íbúðarhúss. Fjölgun íbúða á lóðinni fór því úr einni í tvær og bætt var við bílastæði. Nú er sótt um að bæta við 5,1 m² svölum á 2. hæð til að tryggja brunavarnir. Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 12. nóvember 2023, uppfærðir 8. apríl 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Brekkuhvarf dags. 6. maí 2025 um að breytinu á deiliskipulaginu Melahvarf. Grundarhvarf. Brekkuhvarf. Lóðin er 4.216 m² að stærð. Lóðarhafar vilja skipta henni upp og bæta við einbýlishúsi á norð-vesturhluta lóðarinnar ásamt bílastæðum.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 6 við Bræðratungu dags. 7. maí 2025 um bílastæði á lóðinni.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.