Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 57. fundur
á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
- Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
- Harri Ormarsson - lögfræðingur
Ritari
- Karlotta Helgadóttir
Eftirtaldir verkefnastjórar kynntu mál á fundinum: Elín Mjöll Lárusdóttir og Freyr Snorrason.
Dagskrá fundar
Lagt fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Ólafar Flygenring arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 65 við Kársnesbraut. Sótt er um að skipta út glugga á vesturgafli rishæðar fyrir hurð og byggja 3,5 m² timbursvalir við hana. Jafnframt er sótt um að bæta við þakglugga á norðurhlið rishæðar. Uppdrættir dags. 26. júní 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 1. október til 1. nóvember 2026, engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.
Lögð fram að fyrirspurn Brynjars Darra Baldurssonar arkitekts dags. 18. október 2026 um að lækka fyrirhugað mannvirki um 1m. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. október 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Afgreiðslu frestað.
Lögð fram að nýju fyrirspurn Snorra Þórissonar dags. 19. október 2026 f.h. húsfélagsins nr. 1 við Traðarreit um breytta akstursstefnu götunnar. Spurst er fyrir um breytingu á deiliskipulagi þannig að Álftröð verði tvístefnugata á 25m kafla. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. október 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Frestað.
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Fjallalind um stækkun lóðarinnar að göngustíg til vesturs. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. október 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2026.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2026.
Lögð fram fyrirspurn Jakobs E. Líndal arkitekts dags. 28. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 32 við Auðbrekku um stækkun iðnaðar/þjónusturýmis á jarðhæð um 3,9m til austurs að lóðarmörkum, samtals 45 m².
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram fyrirspurn Jóns Bjarna Baldvinssonar byggingafræðings dags. 29. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar 9 við Suðurbraut vegna 32,6 m² viðbyggingar við suðurhlið hússins
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram fyrirspurn Hildar Bjarnadóttur arkitekts dags. 30. október 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 16 við Auðbrekku um breyta notkunarflokki rýmis á annarri hæð, úr athafnastarfssemi í íbúðarhúsnæði.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram umsagnarbeiðni Samgöngustofu dags. 3. júlí 2026 vegna umsóknar Creative filmmaking ehf. um starfsleyfi ökutækjaleigu með geymslustað að Ögurhvarfi 4b. Sótt er um leyfi til útleigu fjögurra ökutækja.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lögð fram tillaga að lýsingu skipulagsgerðar Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 dags. í október 2026 til að mynda nýtt samfélagsþjónustusvæði á Hólmsheiði þar sem nú er skilgreint opið svæði. Breytingarnar miða að því að Miðstöð um öryggisráðstafanir geti byggst upp á svæðinu.
Vísað til umsagnar verkefnisstjóra aðalskipulags.
Lögð fram fyrirspurn Handknattleiksfélags Kópavogs dags. 9. nóvember 2026 um afstöðu skipulagsfulltrúa um að koma fyrir 7,8 m háu stálmastri með tveimur 3,8*5,8 LED auglýsingaskiltum á bæjarlandi norðan megin við lóðina nr. 1 við Ögurhvarf.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 6. nóvember 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Sveins Ívarssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Hlíðarhvarf er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að stækka opið rými undir innkeyrslu og gera breytingar á gluggum og hurðum. Uppdrættir dags. 1. september 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.