Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 12. fundur
á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Valdimar Gunnarsson - byggingarfulltrúi
- Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
- Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir - arkitekt
Ritari
- Hildur Inga Rós Guðmundsdóttir
Dagskrá fundar
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 24. febrúar 2023 þar sem umsókn Helga Hjálmarssonar arkitekts dags. 02.02.2023 f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Á lóðinni er einbýlishús byggt árið 1955 ásamt bílskúr byggðum árið 1968, alls 141,8 m². Í breytingunni felst að núverandi íbúðarhús verður rifið og byggt fjögurra íbúða raðhús á tveimur hæðum ásamt stakstæðu skýli fyrir hjól og 2 bíla. Fyrirhugað byggingarmagn á lóðinni eftir breytingu yrði 561,9 m², nýtingarhlutfall ykist við breytinguna úr 0,12 í 0,50. Meðfylgjandi aðaluppdrættir í mkv. 1:500, 1:200 og 1:100 dags. 9. febrúar 2023.
Embætti skipulagsfulltrúa samþykkir með tilvísun í 44. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 30, 32, 34, 39, 41, 43, 47 við Digranesheiði, nr. 18, 20, 21, 22, 23 við Lyngheiði, nr. 4, 6, 8 við Tunguheiði, nr. 1, 3, 3A, 3B, 5 við Skálaheiði og nr. 1, 3, 5, 7 við Gnípuheiði.