Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Félagsmálaráð - 1354. fundur

í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Sigurjón Örn Þórsson - formaður
  • Kjartan Sigurgeirsson - aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
  • Haukur Guðmundsson - aðalfulltrúi
  • Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
  • Guðbjörg Sveinsdóttir - aðalfulltrúi
  • Ásdís Helga Jóhannesdóttir - aðalfulltrúi
  • Aðalsteinn Sigfússon - félagsmálastjóri
  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - lögfræðingur

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Dagskrá fundar

01

Ferðaþjónusta fatlaðra. Tillaga að uppsögn samnings

Bæjarráð Kópavogs þann 27. júní sl. vísar til úrvinnslu félagsmálaráðs tillögu sem kom fram á fundi bæjarráðs þann 13. júní sl. svohljóðandi: "Undirrituð leggja til að samningi við Smartbíla um ferðaþjónustu í Kópavogi verði sagt upp á grundvelli 6 mánaða uppsagnarákvæðis.$line$Guðríður Arnardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Hjálmar Hjálmarsson"$line$$line$

Félagsmálaráð Kópavogs stendur við fyrri bókun sína frá 4. júní sl. þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð fyrirtækisins Smartbíla ehf. við tilkynningu um meint brot bílstjóra gegn farþega. Félagsmálaráð, sem er fagráð, tekur ekki afstöðu til tillögu bæjarfulltrúa frá 13. júní sl. um að samninginum verði sagt upp á grundvelli 6 mánaða uppsagnarákvæðis. Verkferlar hafa verið endurskoðaðir og eftirlit eflt. Félagsmálaráð gerir kröfu um breytingu á verksamningi þannig að síritar verði settir upp nú þegar í allar bifreiðar þjónustuaðila, í þeim tilgangi að bæta öryggi farþega.

02

Umsagnamál. Stuðningsfjölskylda

Fært í trúnaðarbók.